Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2012. Útgáfa 140a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um laganefnd
1929 nr. 48 14. júní
Tóku gildi 12. september 1929. Breytt með l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
1. gr. [Ráðherra] 1) er heimilt að skipa þriggja manna nefnd, er nefnist laganefnd. Nefndarmenn skulu skipaðir til 4 ára í senn. Þeir skulu vera heimilisfastir í Reykjavík og tveir þeirra hið fæsta hafa lokið embættisprófi í lögfræði.
1)L. 126/2011, 6. gr.
2. gr. Laganefnd skal skylt að vera ríkisstjórninni, alþingismönnum, þingnefndum og milliþinganefndum til aðstoðar um samningu lagafrumvarpa, samræmd laga og annan undirbúning löggjafarmála.
3. gr. Laganefnd skal gefa út safn af gildandi lögum landsins, í útgáfu, sem handhæg er fyrir almenning. Skal leggja áherslu á að láta sem fullkomnastar og handhægastar efnisskrár fylgja útgáfunni.
Lagasafn þetta skal gefið út að nýju að minnsta kosti á 10 ára fresti, og þá gæta þeirra breytinga, sem orðið hafa á löggjöfinni.
4. gr. Kostnaður við störf laganefndar og útgáfu lagasafns þess, er ræðir um í 3. gr., greiðist úr ríkissjóði. Tekjur af sölu lagasafnsins renna í ríkissjóð.