Alþingi

Valmynd


Hlusta


Lagasafn.  Íslensk lög 1. september 2026.  Útgáfa 157c.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki

2026 nr. 51 9. júní


Ferill málsins á Alþingi.    Frumvarp til laga.

Tóku gildi 1. júlí 2026; um lagaskil sjá 12. gr.; EES-samningurinn: IX. viðauki reglugerð 2020/1503.
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.

1. gr. Lögfesting.
Ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/1503 frá 7. október 2020 um evrópska þjónustuveitendur hópfjármögnunar fyrir fyrirtæki og um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/1129 og tilskipun (ESB) 2019/1937, sem er birt á bls. 372–420 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 34 frá 25. apríl 2024, skulu hafa lagagildi hér á landi með þeim aðlögunum sem leiðir af ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 30/2024 frá 2. febrúar 2024, sem er birt á bls. 53–54 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 51 frá 27. júní 2024, og bókun 1 um altæka aðlögun við EES-samninginn, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið, nr. 2/1993, þar sem bókunin er lögfest.
Í lögum þessum er vísað til reglugerðar (ESB) 2020/1503 með aðlögunum skv. 1. mgr. sem reglugerðar (ESB) 2020/1503.
2. gr. Vísanir til tilskipana.
Eftirfarandi vísanir til tilskipana í reglugerð (ESB) 2020/1503 endurspeglast svo í íslenskum lögum:
    1. Áhættusamt þriðja land skv. 2. mgr. 9. gr. tilskipunar (ESB) 2015/849: Áhættusöm og ósamvinnuþýð ríki samkvæmt lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
    2. Ákvæði landslaga sem lögleiða tilskipun (ESB) 2015/849: Lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
    3. Fagfjárfestir skv. 1.–4. lið I. þáttar II. viðauka við tilskipun 2014/65/ESB: Fagfjárfestir skv. a–d-lið 14. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
    4. Fjárfestingarþjónusta samkvæmt tilskipun 2014/65/ESB: Fjárfestingarþjónusta samkvæmt lögum um markaði fyrir fjármálagerninga.
    5. Framseljanleg verðbréf skv. 44. lið 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB: Verðbréf skv. 64. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
    6. Fyrirtæki sem falla undir 4. og 5. gr. tilskipunar 2009/110/EB: Rafeyrisfyrirtæki skv. 11.– 13. gr. laga um útgáfu og meðferð rafeyris, nr. 17/2013.
    7. Fyrirtæki sem falla undir 7.–9. gr. tilskipunar (ESB) 2015/2366: Greiðslustofnanir skv. 7.– 9. gr. laga um greiðsluþjónustu, nr. 114/2021.
    8. Greiðsluþjónusta samkvæmt tilskipun (ESB) 2015/2366: Greiðsluþjónusta samkvæmt lögum um greiðsluþjónustu.
    9. Greiðsluþjónustuveitandi samkvæmt tilskipun (ESB) 2015/2366: Greiðsluþjónustuveitandi samkvæmt lögum um greiðsluþjónustu.
    10. Innstæðutryggingakerfi samkvæmt tilskipun 2014/49/ESB: Innstæðudeild Tryggingarsjóðs vegna fjármálafyrirtækja samkvæmt lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.
    11. Kröfur til framkvæmdar 1. mgr. 9. gr. tilskipunar 2013/36/ESB: Kröfur skv. 1. mgr. 3. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
    12. Neytendur eins og þeir eru skilgreindir í a-lið 3. gr. tilskipunar 2008/48/EB: Neytandi skv. n-lið 5. gr. laga um neytendalán, nr. 33/2013.
    13. Samstæðureikningsskil í samræmi við tilskipun 2013/34/ESB: Samstæðureikningsskil í samræmi við lög um ársreikninga.
    14. Starfsleyfi samkvæmt tilskipun 2013/36/ESB: Starfsleyfi samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki.
    15. Starfsleyfi sem lánastofnun skv. 8. gr. tilskipunar 2013/36/ESB: Starfsleyfi sem lánastofnun skv. 2. gr. laga um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002.
    16. Starfsleyfi samkvæmt tilskipun 2014/65/ESB: Starfsleyfi samkvæmt lögum um markaði fyrir fjármálagerninga.
    17. Starfsleyfi samkvæmt tilskipun 2009/110/EB: Starfsleyfi samkvæmt lögum um útgáfu og meðferð rafeyris.
    18. Starfsleyfi samkvæmt tilskipun (ESB) 2015/2366: Starfsleyfi samkvæmt lögum um greiðsluþjónustu.
    19. Tryggingakerfi fyrir fjárfesta samkvæmt tilskipun 97/9/EB: Tryggingakerfi fyrir fjárfesta samkvæmt lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta.
    20. Umsjón með útboði án sölutryggingar skv. 7. lið A-þáttar I. viðauka við tilskipun 2014/65/ESB: Umsjón með útboði fjármálagerninga án sölutryggingar skv. g-lið 16. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
    21. Yfirráð eins og þau eru skilgreind í b-lið 35. liðar 1. mgr. 4. gr. tilskipunar 2014/65/ESB: Yfirráð skv. b-lið 43. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
3. gr. Lögbært yfirvald og eftirlit.
Seðlabanki Íslands er lögbært yfirvald hér á landi í skilningi laga þessara. Fjármálaeftirlitið annast eftirlit samkvæmt lögunum og fer með önnur verkefni sem lögin fela lögbæru yfirvaldi. Um eftirlit Fjármálaeftirlitsins fer samkvæmt ákvæðum laga um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
Fjármálaeftirlitið hefur þær eftirlits- og rannsóknarheimildir sem kveðið er á um í 30. gr. reglugerðar (ESB) 2020/1503.
4. gr. Stjórnvaldssektir.
Fjármálaeftirlitið getur lagt stjórnvaldssekt á hvern þann sem brýtur gegn eftirfarandi ákvæðum reglugerðar (ESB) 2020/1503: 3.–5. gr., 1.–6. mgr. 6. gr., 1.–4. mgr. 7. gr., 1.–6. mgr. 8. gr., 1. og 2. mgr. 9. gr., 10. gr., 11. gr., 1. mgr. 12. gr., 2. mgr. 13. gr., 2. og 3. mgr. 15. gr., 1. mgr. 16. gr., 1. og 4. mgr. 18. gr., 1.–6. mgr. 19. gr., 1. og 2. mgr. 20. gr., 1.–7. mgr. 21. gr., 22. gr., 2.–13. mgr. 23. gr., 24.–26. gr. og 1.–3. mgr. 27. gr.
Stjórnvaldssekt sem lögð er á einstakling getur numið allt að 82 millj. kr. Stjórnvaldssekt sem lögð er á lögaðila getur numið allt að 82 millj. kr. en getur þó verið hærri, eða allt að 5% af heildarveltu samkvæmt síðasta samþykkta ársreikningi lögaðilans eða 5% af síðasta samþykkta samstæðureikningi ef lögaðilinn er hluti af samstæðu.
Þrátt fyrir 2. mgr. er heimilt að ákvarða lögaðila stjórnvaldssekt sem nemur allt að tvöföldum ávinningi af broti ef sú fjárhæð er hærri.
Ákvörðun Fjármálaeftirlitsins um stjórnvaldssekt er aðfararhæf. Sé stjórnvaldssekt ekki greidd innan mánaðar frá því að aðila var tilkynnt um hana skal greiða dráttarvexti af fjárhæð sektarinnar. Um ákvörðun og útreikning dráttarvaxta fer eftir lögum um vexti og verðtryggingu.
5. gr. Bann við stjórnunarstörfum.
Fjármálaeftirlitinu er heimilt að leggja bann við því að stjórnarmaður eða framkvæmdastjóri lögaðila sem ber ábyrgð á broti skv. 1. mgr. 4. gr., eða hver annar einstaklingur sem ber ábyrgð á brotinu, gegni stjórnunarstörfum hjá þjónustuveitendum hópfjármögnunar.
6. gr. Saknæmi.
Stjórnsýsluviðurlögum verður beitt óháð því hvort lögbrot eru framin af ásetningi eða gáleysi.
7. gr. Ákvörðun stjórnsýsluviðurlaga og annarra ráðstafana.
Við ákvörðun stjórnsýsluviðurlaga, þar á meðal um fjárhæð stjórnvaldssekta, og annarra ráðstafana vegna brota gegn lögum þessum skal tekið tillit til allra atvika sem máli skipta, eftir því sem við á, þ.m.t. eftirfarandi:
    a. saknæmisstigs,
    b. alvarleika og tímalengdar brotsins,
    c. ábyrgðar hins brotlega,
    d. fjárhagsstöðu hins brotlega, sér í lagi með hliðsjón af heildarveltu lögaðila eða árstekjum og hreinni eign einstaklings,
    e. ávinnings eða taps sem forðað var með brotinu fyrir hinn brotlega,
    f. hvort brotið hafi leitt til taps þriðja aðila,
    g. samstarfsvilja hins brotlega,
    h. fyrri brota hins brotlega,
    i. áhrifa brotsins á hagsmuni fjárfesta.
8. gr. Sátt.
Hafi aðili gerst brotlegur við ákvæði laga þessara, stjórnvaldsfyrirmæli sett á grundvelli þeirra eða ákvarðanir Fjármálaeftirlitsins á grundvelli þeirra er Fjármálaeftirlitinu heimilt að ljúka málinu með sátt með samþykki málsaðila. Sátt er bindandi fyrir málsaðila þegar hann hefur samþykkt og staðfest efni hennar með undirskrift sinni.
Seðlabanki Íslands setur reglur um framkvæmd 1. mgr.
9. gr. Réttur grunaðs manns.
Í máli sem beinist að einstaklingi og lokið getur með stjórnsýsluviðurlögum hefur sá sem rökstuddur grunur leikur á að hafi gerst sekur um lögbrot rétt til að neita að svara spurningum eða afhenda gögn eða muni nema hægt sé að útiloka að það geti haft þýðingu fyrir ákvörðun um brot hans. Fjármálaeftirlitið skal leiðbeina hinum grunaða um þennan rétt.
10. gr. Frestur til að beita stjórnsýsluviðurlögum.
Heimild Fjármálaeftirlitsins til að beita stjórnsýsluviðurlögum samkvæmt lögum þessum fellur niður þegar fimm ár eru liðin frá því að háttsemi lauk.
Frestur skv. 1. mgr. rofnar þegar Fjármálaeftirlitið tilkynnir aðila um upphaf rannsóknar á meintu broti. Rof frests hefur réttaráhrif gagnvart öllum sem staðið hafa að broti.
11. gr. Stjórnvaldsfyrirmæli.
Ráðherra setur reglugerð 1) um nánari framkvæmd reglugerðar (ESB) 2020/1503 um þau atriði sem koma fram í 3. mgr. 48. gr. um framlengingu á umbreytingartímabili að því er varðar hópfjármögnunarþjónustu.
Seðlabanki Íslands setur reglur til að innleiða reglugerðir sem eru samþykktar með stoð í eftirtöldum ákvæðum reglugerðar (ESB) 2020/1503 og hafa verið teknar upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið:
    1. 7. mgr. 6. gr. um einstaklingsmiðaða stýringu lánasafns.
    2. 5. mgr. 7. gr. um kröfur, sniðmát og verklag við meðferð kvartana.
    3. 7. mgr. 8. gr. um ráðstafanir og kröfur varðandi hagsmunaárekstra.
    4. 16. mgr. 12. gr. um kröfur og fyrirkomulag umsóknar um starfsleyfi, þ.m.t. eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur, ásamt ráðstöfunum og verklagi varðandi áætlun um rekstrarsamfellu.
    5. 3. mgr. 16. gr. um staðla, sniðmát og verklagsreglur varðandi upplýsingar í skýrslugjöf.
    6. 7. mgr. 19. gr. um upplýsingar til viðskiptavina.
    7. 3. mgr. 20. gr. um aðferðafræði við útreikning vanskilahlutfalla.
    8. 8. mgr. 21. gr. um mat og upplýsingar í tengslum við viðeigandi hópfjármögnunarþjónustu til reynslulítilla fjárfesta og hermun á getu til að þola tap.
    9. 16. mgr. 23. gr. um lykilupplýsingablað fjárfestingar.
    10. 5. mgr. 28. gr. um eyðublöð, sniðmát og verklagsreglur fyrir tilkynningar á lögum og stjórnvaldsfyrirmælum í tengslum við markaðsefni.
    11. 8. mgr. 31. gr. um tilgreiningu upplýsinga í upplýsingaskiptum milli lögbærra yfirvalda.
    12. 9. mgr. 31. gr. um eyðublöð, sniðmát og verklag við samstarf og upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda.
    13. 4. mgr. 32. gr. um eyðublöð, sniðmát og verklag við samstarf og upplýsingaskipti milli lögbærra yfirvalda, evrópskra eftirlitsstofnana og Eftirlitsstofnunar EFTA.
Seðlabanki Íslands getur sett reglur um heiðarleika, sanngirni og fagmennsku þjónustuveitenda hópfjármögnunar.
    1)Rg. 820/2026.
12. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2026.
Þjónustuveitendum hópfjármögnunar hér á landi sem falla undir lög þessi er heimilt að veita hópfjármögnunarþjónustu til 1. júlí 2027, eða þar til þeir fá starfsleyfi ef það er innan þess tímamarks, samkvæmt lögum þessum.
13. gr. Breyting á öðrum lögum. …
Þú ert hér: Forsíða > Lagasafn > Lög

Lagasafn

  • Kaflar lagasafns
  • Lög samþykkt á Alþingi
  • Brottfallin lög
  • Nýlega samþykkt lög
  • Um lagasafn
  • Leiðbeiningar
  • Hvernig á að tengja í lög?
  • Zip-skrá af lagasafni

  • Þingfundir og mál
    • Tilkynningar
    • Þingmálalistar
      • Laga­frumvörp
      • Þings­ályktunar­tillögur
      • Fyrirspurnir
      • Skýrslur, álit og beiðnir
      • Sérstakar umræður
      • Staða mála
      • Þingmál eftir efnis­flokkum
      • Samantektir um þingmál
    • Leit að þingmálum
      • Leit í málaskrám
      • Ítarleit að þingskjölum
      • Einföld orðaleit í skjala­texta
      • Orðaleit í umsögnum
      • Atkvæðagreiðslur
      • Efnisyfirlit
    • Þingfundir og ræður
      • Fundar­gerðir og upp­tökur
      • Dagskrá þingfundar
      • Nýyfirlesnar ræður
      • Einföld orðaleit í ræðum
      • Ítarleit í ræðum
      • Ræður eftir þingum
      • Reglur um ræðutíma
      • Starfs­áætlun Alþingis
      • Mælendaskrá
    • Yfirlit og úttektir
      • Þingsköp
      • Alþingistíðindi
      • Alþingismál 1845-1913
      • Þingmálaskrá ríkisstjórnar
      • Breytingar á stjórnarskrá frá 1944
      • Leiðbeiningar um þingskjöl
      • Efni um stjórnarskrármál
      • Vantrauststillögur
      • Umsókn um aðild að ESB
      • Efni um Icesave
      • Fjármálastefna, fjármálaáætlun og fjárlög
      • Úttektir rannsókna- og upplýsingaþjónustu
    • Viltu senda umsögn?
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Nýjar þingsályktanir
  • Þingmenn
    • Alþingismenn
      • Alþingismenn
      • Sitjandi aðal- og vara­þing­menn
      • Netföng og símanúmer
      • Heimasíður þingmanna
      • Varamenn sem sitja á Alþingi
      • Varamenn sem hafa tekið sæti
      • Sætaskipun þingmanna
      • Aðstoðarmenn
      • Mögulegir varaþingmenn
    • Þingflokkar
      • Um þingflokka
      • Formenn þingflokka
      • Flokkur fólksins
      • Framsóknarflokkur
      • Miðflokkurinn
      • Samfylkingin
      • Sjálfstæðisflokkur
      • Viðreisn
      • Utan þingflokka
      • Starfsfólk þingflokka
      • Fyrri þingflokkar
    • Kjördæmi
      • Um kjördæmi
      • Reykjavík norður
      • Reykjavík suður
      • Suðvesturkjördæmi
      • Suðurkjördæmi
      • Norðausturkjördæmi
      • Norðvesturkjördæmi
    • Forsetar Alþingis
      • Forseti Alþingis
      • Forsætisnefnd - varaforsetar
      • Forsetatal
    • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar og ráðuneyti frá 1904
      • Ráðherrar frá 1904
      • Lengstur starfs­aldur í ríkis­stjórn
    • Sögulegur fróðleikur
      • Elstir manna á Alþingi
      • Formenn fastanefnda Alþingis
      • Fulltrúar á Þjóðfundinum 1851
      • Kjörnir fulltrúar sem tóku aldrei sæti á Alþingi
      • Konungsfulltrúar
      • Landshöfðingjar
      • Lengstur starfs­aldur þing­manna á Alþingi
      • Skrifstofustjórar Alþingis
      • Yngstir kjörinna alþingismanna
      • Yngstu vara­menn á Alþingi
      • Fyrsta þing þingmanna
    • Hagsmunaskrá og hátterni
      • Um skráningu hagsmuna
      • Hagsmunaskrá
      • Siðareglur
      • Brot á siðareglum
      • Viðbragðsáætlun gegn einelti og áreitni þingmanna
      • Trúnaðarmenn þingflokka
    • Alþingismannatal
      • Kosningarréttur og konur á Alþingi
      • Æviágrip þingmanna frá 1845
      • Leit í alþingismannatali
      • Ýmsar skammstafanir
      • Félag fyrrverandi alþingismanna
      • Raddsýnishorn
    • Starfskjör alþingismanna
      • Laun og kostnaðargreiðslur þingmanna
      • Starfskjör þingmanna
      • Þingfararkaup - laun þingmanna
      • Þingfararkostnaður
      • Árnessjóðurinn - orlofssjóður
      • Ýmis eyðublöð
      • Aðstoðarfólk þingmanna
    • Þingtímabil
      • Númer löggjafar­þinga og tímabil
      • Kjördagar
      • Þingrof
      • Þing­setu­tími - númer ráð­gjafar­þinga 1845-1873
      • Tími frá alþingiskosningum til stjórnarskipta frá 1946
    • Tilkynningar
    • Alþingiskosningar
      • Almennar upplýsingar
      • Kosningar og kosningaúrslit
  • Nefndir
    • Dagskrá nefndarfunda
    • Viltu senda umsögn?
      • Leiðbeiningar um umsagnir um þingmál
      • RSS-áskrift að málum í umsagnarferli
    • Tilkynningar
    • Fastanefndir
      • Allsherjar- og menntamálanefnd
      • Atvinnuveganefnd
      • Efnahags- og viðskiptanefnd
      • Fjárlaganefnd
      • Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
      • Umhverfis- og samgöngunefnd
      • Utanríkismálanefnd
      • Velferðarnefnd
    • Aðrar nefndir
      • Alþjóðanefndir
      • Forsætisnefnd
      • Framtíðarnefnd 2021–2025
      • Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga
      • Kjörbréfanefnd
      • Sérnefndir
      • Þingskapanefnd
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Endurskoðun kosningalaga
      • Sérnefnd til að íhuga viðbrögð Alþingis við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu frá 16. apríl 2024 um alþingiskosningarnar í Norðvesturkjördæmi 25. september 2021
    • Nefndastörf
      • Starfsreglur fastanefnda Alþingis
      • Störf fastanefnda
      • Reglur um meðferð EES-mála
      • Fundargerðir nefnda
      • Upptökur af opnum fundum nefnda
      • Fundartímar fastanefnda
      • Skipan nefnda
      • Sögulegt yfirlit
      • Þingmál til umfjöllunar í þingnefndum
      • EES mál
      • Önnur mál nefnda
    • Rannsóknir
      • Rannsóknarnefndir Alþingis
      • Íbúðalánasjóður
      • Sparisjóðir
      • Fall íslensku bankanna
      • Greinar­gerð um rannsóknar­nefndir
      • Saksóknarnefnd og saksóknari Alþingis
    • Leitarvalmyndir
      • Orðaleit í erindum og umsögnum
      • Orðaleit í fundargerðum nefnda
      • Leit að skipan í nefndum
    • Erindi og umsagnir
      • Leiðbeiningar um ritun umsagna
      • Erindi
      • Viðtakendur umsagnabeiðna
      • Sendendur erinda
  • Alþjóðastarf
    • Íslandsdeildir
      • Alþjóða­þingmanna­sambandið
      • Evrópuráðs­þingið
      • Þingmanna­nefndir EFTA og EES
      • NATO-þingið
      • Norðurlandaráð
      • Vestnorræna ráðið
      • Þingmanna­ráðstefnan um norðurskauts­mál
      • Þing Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu
    • Tilkynningar
    • Yfirlit og starfsreglur
      • Markmið alþjóðastarfsins
      • Þátttaka í alþjóðastarfi
      • Frásagnir af alþjóðastarfi
      • Starfsreglur
      • Yfirlit yfir Íslands­deildir
    • Annað alþjóðastarf
      • Alþjóðastarf forseta Alþingis
      • Annað alþjóðastarf sem heyrir undir forseta Alþingis
      • Sameiginleg þingmanna­nefnd Íslands og Evrópu­sambandsins
  • Lagasafn
    • Kaflar lagasafns
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Brottfallin lög
      • 1990-1995
    • Nýlega samþykkt lög
    • Um lagasafn
    • Leiðbeiningar
    • Hvernig á að tengja í lög?
    • Zip-skrá af lagasafni
  • Ályktanir Alþingis
    • Ályktanir eftir efnisflokkum
    • Skýrslur vegna ályktana
  • Um Alþingi
    • Skrifstofa Alþingis
      • Skipurit og hlutverk
      • Netföng og símanúmer
      • Mannauðsmál
      • Laus störf
      • Rekstraryfirlit
      • Jafnlaunavottun
    • Upplýsingar um Alþingi
      • Um hlutverk Alþingis
      • Hvernig getur þú haft áhrif?
      • Þingsköp
      • Reglur settar af forsætis­nefnd
      • Upplýs­ingar um þing­störfin
      • Áskrift að efni á vef Alþingis
      • Um vef Alþingis
      • Alþingi á samfélagsmiðlum
      • Rannsóknaþjónusta
      • Merki Alþingis og hönnunarstaðall
    • Fræðslu- og kynningarefni
      • Um Alþingis­húsið
      • Nýbygging á Alþingisreit
      • Skólaþing
      • Ungmennavefur
      • Kynning og saga
      • 100 ára fullveldi 2018
      • Alþingi kynningar­bæklingur
      • Háttvirtur þingmaður - handbók
      • Orðskýringar
    • Stofnanir, stjórnir og nefndir
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Ríkis­endurskoðun
      • Umboðs­maður Alþingis
      • Jónshús
      • Rannsóknar­nefndir Alþingis
      • Mannréttindastofnun Íslands
    • Útgefið efni
      • Handbækur Alþingis
      • Ársskýrslur Alþingis
      • Skýrsla um eftirlit Alþingis með framkvæmdar­valdinu
      • Skýrsla um traust til Alþingis
      • Með leyfi forseta
    • Heimsóknir í Alþingishúsið
      • Heimsóknir hópa
      • Aðgengi að Alþingishúsi og Smiðju
      • Fjölmiðlafólk í Alþingis­húsinu
      • Útiþrautaleikur um Alþingishúsið

  • Dansk
  • English

Leita á vefnum


  • Veftré
  • Orðskýringar
  • Alþingistíðindi
  • Skólaþing
  • Ungmennavefur

  • Rafrænir reikningar
  • Umsagnagátt
  • Hakið
  • Vefpóstur
  • Þingmannagátt

Skrifstofa Alþingis - Hafa samband, 101 Reykjavík, Sjá á korti , Kt. 420169-3889 ,[email protected]
Sími 563 0500, Skiptiborðið er opið kl. 9–16 mánudaga til föstudaga.

Persónuverndarstefna


Þetta vefsvæði byggir á Eplica