Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2023. Útgáfa 153c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Norðurlanda um aðstoð í skattamálum
1990 nr. 46 8. maí
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 31. maí 1990.
1. gr.

Ríkisstjórninni er heimilt að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Norðurlanda um aðstoð í skattamálum sem undirritaður var í Kaupmannahöfn 7. desember 1989 og prentaður er sem fylgiskjal með lögum þessum.
1)
1)Sjá Stjtíð. A 1990, bls. 77–84.
2. gr.

Þegar samningur sá, er um ræðir í 1. gr., hefur öðlast gildi að því er Ísland varðar skulu ákvæði hans hafa lagagildi hér á landi.
…
3. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.