Alþingi

Valmynd


Hlusta


Lagasafn.  Íslensk lög 1. september 2026.  Útgáfa 157c.  Prenta í tveimur dálkum.


Lög um skattskyldu orkufyrirtækja

2005 nr. 50 18. maí


Ferill málsins á Alþingi.    Frumvarp til laga.

Tóku gildi 30. maí 2005; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 8. gr. Breytt með: L. 136/2009 (tóku gildi 1. jan. 2010). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).

Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.

I. kafli. Gildissvið og skilgreining.
1. gr. Gildissvið.
Orkufyrirtæki skv. 2. gr. skulu skattskyld skv. 2. gr. laga nr. 90/2003, með síðari breytingum. Skattskyldan tekur til allra orkufyrirtækja þrátt fyrir undanþáguákvæði 4. gr. laga nr. 90/2003. Skattlagning orkufyrirtækja skal vera í samræmi við ákvæði þessara laga og laga nr. 90/2003 eftir því sem við á.
Sé rekstur orkufyrirtækis hluti af starfsemi opinbers aðila skal bæði rekstur og efnahagur hins skattskylda hluta að fullu aðgreindur bókhaldslega frá annarri starfsemi.
2. gr. Skilgreining.
Í lögum þessum merkir orkufyrirtæki fyrirtæki sem stundar vinnslu, dreifingu, flutning, sölu og afhendingu á raforku og heitu vatni.

II. kafli. Endurmat eigna og fyrningar.
3. gr. Um endurmat eigna.
Á árinu 2006 skal endurmeta þær fyrnanlegu eignir, sbr. 33. gr. laga nr. 90/2003, sem voru í eigu skattaðila í byrjun þess árs og aflað var fyrir árslok 2001, samkvæmt ársreikningi 2001, sbr. þó 3. mgr. þessarar greinar.
Endurmatið skal þannig framkvæmt að kostnaðarverði (stofnverði) skal breytt eftir verðbreytingarstuðli fyrir hvert ár fram til ársins 2001. Kostnaðarverð þannig framreiknað myndar nýjan fyrningargrunn. Til frádráttar framreiknuðu kostnaðarverði reiknast sá hundraðshluti fyrninga af kostnaðarverðinu sem um getur í 4. gr. fyrir hvert ár frá og með kaup- og byggingarári til ársloka 2005. Samtala þessara fyrninga telst fengin heildarfyrning en hún skal þó aldrei vera hærri en 90% af framreiknuðu kostnaðarverði, sbr. 42. gr. laga nr. 90/2003. Mismunur framreiknaðs kostnaðarverðs og framreiknaðra fyrninga telst eftirstöðvar fyrningarverðs og skal færður til eignar.
Heimilt er skattaðila að falla frá endurmati eigna sem þegar eru komnar í niðurlagsverð í árslok 2005 skv. 2. mgr. og færa þær til eignar á matsverði þeirra í ársreikningi 2005.
Ákvæði 2. mgr. gilda einnig um endurmat ófyrnanlegra eigna eftir því sem við á.
Ríkisskattstjóri skal fyrir árslok 2005 reikna verðbreytingarstuðul fyrir eignir sem skattaðili hefur eignast fram til 2001 á sama grunni og verðbreytingarstuðull var reiknaður á árunum 1980 til 2001.
Skattaðilar skv. 1. gr., sem eiga eignir í ársbyrjun 2006 sem ber að endurmeta, skulu senda [ríkisskattstjóra] 1) með skattframtali 2007 greinargerð um endurmatið í því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.
Heimilt er að endurmeta eignir sem eru í notkun í ársbyrjun 2006 þótt þær hafi verið gjaldfærðar í undangengnum reikningsskilum ef skattaðili hefði haft rétt til að eignfæra þær og eftir atvikum afskrifa í skattalegu uppgjöri samkvæmt lögum nr. 90/2003, enda eigi ákvæði 4. mgr. ekki við.
Endurmatsbreyting samkvæmt ákvæði þessu telst ekki til tekna en færist með öðru eigin fé.
Í stað endurmats skv. 2.–4. mgr. er á grundvelli samþykkis ríkisskattstjóra heimilt að nota framreiknað verð eins og það var bókfært í árslok 2001, enda hafi endurmat fyrirtækis á eignum sínum verið sambærilegt endurmati skattalaga. Til frádráttar þannig ákvörðuðu endurmetnu verði reiknast sá hundraðshluti fyrninga sem um getur í 4. gr. ár hvert frá og með kaup- og byggingarári til ársloka 2005. Nánari ákvæði um framkvæmd þessarar málsgreinar skulu sett í reglugerð. 2)
    1)L. 136/2009, 105. gr. 2)Rg. 294/2007.
4. gr. Fyrningarhlutföll við endurmat.
Fyrning mannvirkja og búnaðar orkufyrirtækja skal við endurmat vera árlegur hundraðshluti af fyrningargrunni einstakra eigna sem hér segir:
    1. Hitaréttindi, vatnsréttindi, orkuver og virkjanir, þ.m.t. stöðvarhús, stíflur, inntaksmannvirki, lokuhús, brýr og þrýstivatnspípur, 1%.
    2. Aðveitustöðvar, spennistöðvar, dreifistöðvar, aðveitukerfi, dreifikerfi, dælustöðvar, geymar, aðalæðar, aðveituæðar, stofnæðar, flutningsæðar, inntök, mælagrindur og dælustöðvar 2%.
    3. Rafbúnaður í aðveitu- og dreifistöðvum, vegir og ræktun 4%.
    4. Búnaður í dælustöðvum, dreifistöðvum og aðveitustöðvum 5%.
    5. Kerfisráður, stýrikerfi, stjórnkerfi og álagsstýrikerfi 10%.
Um fyrningu annarra eigna orkufyrirtækja við endurmat skulu gilda lágmarksfyrningarhlutföll ákvæðis 37. gr. laga nr. 90/2003 eftir því sem við á.

III. kafli. Fyrningar og söluhagnaður.
5. gr. Fyrningar.
Fyrning mannvirkja og búnaðar orkufyrirtækja skal vera árlegur hundraðshluti af fyrningargrunni einstakra eigna sem hér segir:
    1. Hitaréttindi, vatnsréttindi, orkuver og virkjanir, þ.m.t. stöðvarhús, stíflur, inntaksmannvirki, lokuhús, brýr og þrýstivatnspípur, að lágmarki 1%, að hámarki 3%.
    2. Aðveitustöðvar, spennistöðvar, dreifistöðvar, aðveitukerfi, dreifikerfi, dælustöðvar, geymar, aðalæðar, aðveituæðar, stofnæðar, flutningsæðar, inntök, mælagrindur og dælustöðvar að lágmarki 2%, að hámarki 4%.
    3. Rafbúnaður í aðveitu- og dreifistöðvum, vegir og ræktun að lágmarki 4%, að hámarki 6%.
    4. Búnaður í dælustöðvum, dreifistöðvum og aðveitustöðvum að lágmarki 5%, að hámarki 7%.
    5. Kerfisráður, stýrikerfi, stjórnkerfi og álagsstýrikerfi að lágmarki 10%, að hámarki 12%.
Um fyrningu annarra eigna orkufyrirtækja skulu gilda ákvæði III. kafla laga nr. 90/2003 eftir því sem við á.
Fyrningargrunnur eigna samkvæmt þessari grein telst stofnverð þeirra að teknu tilliti til endurmats skv. 3. gr. laga þessara.
6. gr. Söluhagnaður.
Við ákvörðun á söluhagnaði eigna, sem hafa verið endurmetnar skv. II. kafla, skal framreikna stofnverð þeirra og fyrningar eftir sömu verðbreytingarstuðlum og með sama hætti og við endurmat skv. 3. gr. eftir því sem við á.
Þegar eignir sem ekki hafa verið endurmetnar skv. II. kafla eru seldar er heimilt að framreikna stofnverð þeirra frá kaupári til ársins 2001 með verðbreytingarstuðli kaupárs og telst söluhagnaður þá mismunur á söluverði og 10% af þannig framreiknuðu stofnverði.

IV. kafli. Önnur ákvæði.
7. gr. Reglugerð.
[Ráðherra] 1) er heimilt að kveða nánar á um framkvæmd þessara laga með reglugerð. 2)
    1)L. 126/2011, 402. gr. 2)Rg. 294/2007.
8. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda við álagningu tekjuskatts og eignarskatts á árinu 2007 vegna tekna á árinu 2006 og eigna í lok þess árs.

Þú ert hér: Forsíða > Lagasafn > Lög

Lagasafn

  • Kaflar lagasafns
  • Lög samþykkt á Alþingi
  • Brottfallin lög
  • Nýlega samþykkt lög
  • Um lagasafn
  • Leiðbeiningar
  • Hvernig á að tengja í lög?
  • Zip-skrá af lagasafni

  • Þingfundir og mál
    • Tilkynningar
    • Þingmálalistar
      • Laga­frumvörp
      • Þings­ályktunar­tillögur
      • Fyrirspurnir
      • Skýrslur, álit og beiðnir
      • Sérstakar umræður
      • Staða mála
      • Þingmál eftir efnis­flokkum
      • Samantektir um þingmál
    • Leit að þingmálum
      • Leit í málaskrám
      • Ítarleit að þingskjölum
      • Einföld orðaleit í skjala­texta
      • Orðaleit í umsögnum
      • Atkvæðagreiðslur
      • Efnisyfirlit
    • Þingfundir og ræður
      • Fundar­gerðir og upp­tökur
      • Dagskrá þingfundar
      • Nýyfirlesnar ræður
      • Einföld orðaleit í ræðum
      • Ítarleit í ræðum
      • Ræður eftir þingum
      • Reglur um ræðutíma
      • Starfs­áætlun Alþingis
      • Mælendaskrá
    • Yfirlit og úttektir
      • Þingsköp
      • Alþingistíðindi
      • Alþingismál 1845-1913
      • Þingmálaskrá ríkisstjórnar
      • Breytingar á stjórnarskrá frá 1944
      • Leiðbeiningar um þingskjöl
      • Efni um stjórnarskrármál
      • Vantrauststillögur
      • Umsókn um aðild að ESB
      • Efni um Icesave
      • Fjármálastefna, fjármálaáætlun og fjárlög
      • Úttektir rannsókna- og upplýsingaþjónustu
    • Viltu senda umsögn?
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Nýjar þingsályktanir
  • Þingmenn
    • Alþingismenn
      • Alþingismenn
      • Sitjandi aðal- og vara­þing­menn
      • Netföng og símanúmer
      • Heimasíður þingmanna
      • Varamenn sem sitja á Alþingi
      • Varamenn sem hafa tekið sæti
      • Sætaskipun þingmanna
      • Aðstoðarmenn
      • Mögulegir varaþingmenn
    • Þingflokkar
      • Um þingflokka
      • Formenn þingflokka
      • Flokkur fólksins
      • Framsóknarflokkur
      • Miðflokkurinn
      • Samfylkingin
      • Sjálfstæðisflokkur
      • Viðreisn
      • Utan þingflokka
      • Starfsfólk þingflokka
      • Fyrri þingflokkar
    • Kjördæmi
      • Um kjördæmi
      • Reykjavík norður
      • Reykjavík suður
      • Suðvesturkjördæmi
      • Suðurkjördæmi
      • Norðausturkjördæmi
      • Norðvesturkjördæmi
    • Forsetar Alþingis
      • Forseti Alþingis
      • Forsætisnefnd - varaforsetar
      • Forsetatal
    • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar - ríkisstjórn
      • Ráðherrar og ráðuneyti frá 1904
      • Ráðherrar frá 1904
      • Lengstur starfs­aldur í ríkis­stjórn
    • Sögulegur fróðleikur
      • Elstir manna á Alþingi
      • Formenn fastanefnda Alþingis
      • Fulltrúar á Þjóðfundinum 1851
      • Kjörnir fulltrúar sem tóku aldrei sæti á Alþingi
      • Konungsfulltrúar
      • Landshöfðingjar
      • Lengstur starfs­aldur þing­manna á Alþingi
      • Skrifstofustjórar Alþingis
      • Yngstir kjörinna alþingismanna
      • Yngstu vara­menn á Alþingi
      • Fyrsta þing þingmanna
    • Hagsmunaskrá og hátterni
      • Um skráningu hagsmuna
      • Hagsmunaskrá
      • Siðareglur
      • Brot á siðareglum
      • Viðbragðsáætlun gegn einelti og áreitni þingmanna
      • Trúnaðarmenn þingflokka
    • Alþingismannatal
      • Kosningarréttur og konur á Alþingi
      • Æviágrip þingmanna frá 1845
      • Leit í alþingismannatali
      • Ýmsar skammstafanir
      • Félag fyrrverandi alþingismanna
      • Raddsýnishorn
    • Starfskjör alþingismanna
      • Laun og kostnaðargreiðslur þingmanna
      • Starfskjör þingmanna
      • Þingfararkaup - laun þingmanna
      • Þingfararkostnaður
      • Árnessjóðurinn - orlofssjóður
      • Ýmis eyðublöð
      • Aðstoðarfólk þingmanna
    • Þingtímabil
      • Númer löggjafar­þinga og tímabil
      • Kjördagar
      • Þingrof
      • Þing­setu­tími - númer ráð­gjafar­þinga 1845-1873
      • Tími frá alþingiskosningum til stjórnarskipta frá 1946
    • Tilkynningar
    • Alþingiskosningar
      • Almennar upplýsingar
      • Kosningar og kosningaúrslit
  • Nefndir
    • Dagskrá nefndarfunda
    • Viltu senda umsögn?
      • Leiðbeiningar um umsagnir um þingmál
      • RSS-áskrift að málum í umsagnarferli
    • Tilkynningar
    • Fastanefndir
      • Allsherjar- og menntamálanefnd
      • Atvinnuveganefnd
      • Efnahags- og viðskiptanefnd
      • Fjárlaganefnd
      • Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
      • Umhverfis- og samgöngunefnd
      • Utanríkismálanefnd
      • Velferðarnefnd
    • Aðrar nefndir
      • Alþjóðanefndir
      • Forsætisnefnd
      • Framtíðarnefnd 2021–2025
      • Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga
      • Kjörbréfanefnd
      • Sérnefndir
      • Þingskapanefnd
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Endurskoðun kosningalaga
      • Sérnefnd til að íhuga viðbrögð Alþingis við dómi Mannréttindadómstóls Evrópu frá 16. apríl 2024 um alþingiskosningarnar í Norðvesturkjördæmi 25. september 2021
    • Nefndastörf
      • Starfsreglur fastanefnda Alþingis
      • Störf fastanefnda
      • Reglur um meðferð EES-mála
      • Fundargerðir nefnda
      • Upptökur af opnum fundum nefnda
      • Fundartímar fastanefnda
      • Skipan nefnda
      • Sögulegt yfirlit
      • Þingmál til umfjöllunar í þingnefndum
      • EES mál
      • Önnur mál nefnda
    • Rannsóknir
      • Rannsóknarnefndir Alþingis
      • Íbúðalánasjóður
      • Sparisjóðir
      • Fall íslensku bankanna
      • Greinar­gerð um rannsóknar­nefndir
      • Saksóknarnefnd og saksóknari Alþingis
    • Leitarvalmyndir
      • Orðaleit í erindum og umsögnum
      • Orðaleit í fundargerðum nefnda
      • Leit að skipan í nefndum
    • Erindi og umsagnir
      • Leiðbeiningar um ritun umsagna
      • Erindi
      • Viðtakendur umsagnabeiðna
      • Sendendur erinda
  • Alþjóðastarf
    • Íslandsdeildir
      • Alþjóða­þingmanna­sambandið
      • Evrópuráðs­þingið
      • Þingmanna­nefndir EFTA og EES
      • NATO-þingið
      • Norðurlandaráð
      • Vestnorræna ráðið
      • Þingmanna­ráðstefnan um norðurskauts­mál
      • Þing Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu
    • Tilkynningar
    • Yfirlit og starfsreglur
      • Markmið alþjóðastarfsins
      • Þátttaka í alþjóðastarfi
      • Frásagnir af alþjóðastarfi
      • Starfsreglur
      • Yfirlit yfir Íslands­deildir
    • Annað alþjóðastarf
      • Alþjóðastarf forseta Alþingis
      • Annað alþjóðastarf sem heyrir undir forseta Alþingis
      • Sameiginleg þingmanna­nefnd Íslands og Evrópu­sambandsins
  • Lagasafn
    • Kaflar lagasafns
    • Lög samþykkt á Alþingi
    • Brottfallin lög
      • 1990-1995
    • Nýlega samþykkt lög
    • Um lagasafn
    • Leiðbeiningar
    • Hvernig á að tengja í lög?
    • Zip-skrá af lagasafni
  • Ályktanir Alþingis
    • Ályktanir eftir efnisflokkum
    • Skýrslur vegna ályktana
  • Um Alþingi
    • Skrifstofa Alþingis
      • Skipurit og hlutverk
      • Netföng og símanúmer
      • Mannauðsmál
      • Laus störf
      • Rekstraryfirlit
      • Jafnlaunavottun
    • Upplýsingar um Alþingi
      • Um hlutverk Alþingis
      • Hvernig getur þú haft áhrif?
      • Þingsköp
      • Reglur settar af forsætis­nefnd
      • Upplýs­ingar um þing­störfin
      • Áskrift að efni á vef Alþingis
      • Um vef Alþingis
      • Alþingi á samfélagsmiðlum
      • Rannsóknaþjónusta
      • Merki Alþingis og hönnunarstaðall
    • Fræðslu- og kynningarefni
      • Um Alþingis­húsið
      • Nýbygging á Alþingisreit
      • Skólaþing
      • Ungmennavefur
      • Kynning og saga
      • 100 ára fullveldi 2018
      • Alþingi kynningar­bæklingur
      • Háttvirtur þingmaður - handbók
      • Orðskýringar
    • Stofnanir, stjórnir og nefndir
      • Stjórnir, nefndir og ráð kosin af Alþingi
      • Nefndir skipaðar af forseta og forsætisnefnd Alþingis
      • Ríkis­endurskoðun
      • Umboðs­maður Alþingis
      • Jónshús
      • Rannsóknar­nefndir Alþingis
      • Mannréttindastofnun Íslands
    • Útgefið efni
      • Handbækur Alþingis
      • Ársskýrslur Alþingis
      • Skýrsla um eftirlit Alþingis með framkvæmdar­valdinu
      • Skýrsla um traust til Alþingis
      • Með leyfi forseta
    • Heimsóknir í Alþingishúsið
      • Heimsóknir hópa
      • Aðgengi að Alþingishúsi og Smiðju
      • Fjölmiðlafólk í Alþingis­húsinu
      • Útiþrautaleikur um Alþingishúsið

  • Dansk
  • English

Leita á vefnum


  • Veftré
  • Orðskýringar
  • Alþingistíðindi
  • Skólaþing
  • Ungmennavefur

  • Rafrænir reikningar
  • Umsagnagátt
  • Hakið
  • Vefpóstur
  • Þingmannagátt

Skrifstofa Alþingis - Hafa samband, 101 Reykjavík, Sjá á korti , Kt. 420169-3889 ,[email protected]
Sími 563 0500, Skiptiborðið er opið kl. 9–16 mánudaga til föstudaga.

Persónuverndarstefna


Þetta vefsvæði byggir á Eplica