Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2026. Útgáfa 157c. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um innviðafélag
2026 nr. 70 28. júní
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 7. júlí 2026.
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
fjármála- og efnahagsráðherra eða
fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi.
Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði.
1. gr.
Stofnun innviðafélags.

Ráðherra skal koma á fót hlutafélagi um fjármögnun og uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja.

Heimilt er að leggja til félagsins eignir og réttindi eftir því sem nánar greinir í lögum þessum.

Ákvæði laga um hlutafélög gilda um félagið ef ekki er kveðið á um annað í lögum þessum.
2. gr.
Tilgangur og markmið félagsins.

Tilgangur félagsins er að hrinda í framkvæmd uppbyggingu stórra þjóðhagslega mikilvægra samgönguverkefna og tryggja fjármögnun og hraðari framvindu slíkra framkvæmda.

Meginmarkmið félagsins vegna verkefna sem það tekur að sér skulu vera að:
a. Tryggja hagkvæma, faglega og skilvirka verkefnastjórn varðandi undirbúning og framkvæmd stærri samgöngumannvirkja.
b. Skapa farveg fyrir fjármögnun mikilvægra samgönguinnviða.
c. Byggja upp sérhæfða þekkingu á innviðafjármögnun og áhættustýringu.
3. gr.
Hlutverk félagsins.

Hlutverk félagsins er einkum að:
a. Fara með eignarhald, fjármögnun, uppbyggingu, viðhald og rekstur samgöngumannvirkja sem það tekur að sér.
b. Innheimta gjöld af umferð vegna notkunar samgöngumannvirkja.
c. Tryggja fjárhagslega sjálfbærni þess við uppbyggingu samgöngumannvirkja.
d. Tryggja faglegan undirbúning og áhættustýringu vegna ákvarðana þess um fjárfestingar í samgönguinnviðum, í samræmi við lög og viðmið sem gilda um opinberar framkvæmdir.
4. gr.
Hlutafé félagsins.

Við stofnun félagsins skal allt hlutafé þess vera í eigu ríkissjóðs. Sá ráðherra er fer með eignir ríkisins skal fara með hlut ríkisins í félaginu og framkvæmd laga þessara.

Ráðherra, í samráði við ráðherra sem fer með samgöngumál, og samkvæmt heimild í 6. gr. fjárlaga, er heimilt að færa yfir til félagsins eignarhald á þegar byggðum samgöngumannvirkjum sem tilheyra ríkinu í formi hlutafjár.

Ráðherra er heimilt að auka við hlutafé félagsins þar sem fjárfestum verður boðið að skrá sig fyrir nýjum hlutum í opnu ferli en þó þannig að ríkissjóður eigi alltaf ráðandi hlut í félaginu.
5. gr.
Stjórn félagsins.

Stjórn félagsins skal skipuð þremur til fimm einstaklingum og skal val þeirra staðfest á hluthafafundi ár hvert, sbr. ákvæði laga um hlutafélög. Fjöldi varamanna skal ákveðinn í samþykktum félagsins.

Alþingi er heimilt að kjósa einn til tvo áheyrnarfulltrúa sem sitja stjórnarfundi félagsins. Áheyrnarfulltrúi skal ekki vera kjörinn fulltrúi á Alþingi eða í sveitarstjórnum. Kosning Alþingis skal liggja fyrir innan tveggja vikna frá boðun aðalfundar ár hvert. Áheyrnarfulltrúi hefur rétt til að sitja stjórnarfundi og tjá sig um málefni félagsins með almennum hætti. Áheyrnarfulltrúi hefur hvorki atkvæðis- né tillögurétt á stjórnarfundum. Þá hefur áheyrnarfulltrúi ekki rétt til að fá sérálit sitt skráð í gerðabók. Þar sem áheyrnarfulltrúi tekur ekki þátt í formlegri ákvarðanatöku eða atkvæðagreiðslum í stjórn ber hann ekki sömu lagalegu skaðabótaábyrgð og stjórnarmenn skv.
134. gr. laga um hlutafélög, nr. 2/1995. Áheyrnarfulltrúi er bundinn trúnaði um allt sem fer fram á stjórnarfundi félagsins.
6. gr.
Samningar um uppbyggingu innviða.

Félaginu er heimilt að gera samning við ráðherra sem fer með samgöngumál, einn samning eða fleiri eftir þörfum, um uppbyggingu og rekstur samgönguverkefna á grundvelli samgönguáætlunar í samræmi við tilgang og hlutverk félagsins. Í samningi skal tryggt að félagið geti staðið undir kostnaði við undirbúning og framkvæmd verkefna, þ.m.t. stofnkostnaði, rekstri, viðhaldi og fjármagnskostnaði, með tekjum af veggjöldum, sbr. 7. gr., eða eftir atvikum beinum fjárframlögum frá ríkinu til að verkefni geti talist fjárhagslega sjálfbært.

Samningur skv. 1. mgr. er háður samþykki ráðherra, sbr.
40. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015.
7. gr.
Veggjöld.

Félaginu er heimilt að innheimta veggjöld fyrir notkun samgöngumannvirkja í samræmi við
17. gr. vegalaga, nr. 80/2007. Gjaldtaka af umferð skal miðast við að standa straum af byggingarkostnaði, viðhaldi, rekstri, þróun og eðlilegum afrakstri af fjárfestingu vega eða skilgreinds samgöngukerfis. Heimilt er einnig að byggja gjaldtöku á sjónarmiðum um vernd umhverfis, þróun skilgreinds samgöngukerfis, umferðaröryggi og stýringu umferðar.

Gjaldskrá fyrir hvert samgöngumannvirki skal birt opinberlega. Ákvæði 3. málsl. 5. mgr.
17. gr. vegalaga, nr. 80/2007, gildir ekki um gjaldskrá félagsins. Félaginu er heimilt að leggja á viðbótarálag í þeim tilvikum þegar ekið er um gjaldskyld mannvirki án þess að greiða fyrir aðgang að þeim í samræmi við gjaldskrá.

Eigandi ökutækis, eða skráður umráðamaður ef um kaupleigu, eignaleigu eða fjármögnunarleigu samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er að ræða, ber ábyrgð á greiðslu veggjalda. Gjöld skv. 1. og 2. mgr. eru aðfararhæf án undangengins dóms eða sáttar. Skráður eigandi, þ.m.t. meðeigandi, og umráðamaður bera óskipta ábyrgð á greiðslu veggjalds ásamt dráttarvöxtum og innheimtukostnaði.

Félaginu er heimilt að gera samninga við aðra um innheimtu gjalda sé það metið fjárhagslega hagkvæmt. Um vanskil veggjalda fer samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu.
8. gr.
Heimild til lántöku o.fl.

Félaginu er heimilt að taka lán til að standa undir fjármögnun verkefna þess.

Félaginu er heimilt að stofna dótturfélög um einstök verkefni eða til að annast afmarkaða þætti af verkefnum félagsins, í samræmi við samþykktir þess og lög þessi.

Félaginu er heimilt að annast önnur verkefni sem falla vel að hlutverki þess. Félaginu er jafnframt heimilt að gera hvers konar samninga við aðra aðila til að ná markmiðum sínum á sem hagkvæmastan hátt.
9. gr.
Slit félagsins.

Heimilt er að slíta félaginu þegar það hefur lokið verkefnum við uppbyggingu og staðið skil á fullnaðaruppgjöri á öllum framkvæmdum.
10. gr.
Gildistaka.

Lög þessi öðlast þegar gildi.
…
11. gr.
Breytingar á öðrum lögum. …
Ákvæði til bráðabirgða.

Ráðherra, í samráði við ráðherra sem fer með samgöngumál, er heimilt að færa yfir til innviðafélags eignarhald á samgöngumannvirkjum eða samningstengdum réttindum sem þeim tilheyra í formi hlutafjár frá ríkissjóði. Heimildin tekur til samgöngumannvirkja við Hornafjarðarfljót, Vaðlaheiðarganga og Ölfusárbrúar. Sé heimildin ekki nýtt fyrir 1. júlí 2028 fellur hún úr gildi.