3. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 145. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 21. september 2015 kl. 09:30


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 09:30
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 09:30
Brynjar Níelsson (BN), kl. 09:30
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 09:30
Katrín Jakobsdóttir (KJak), kl. 09:30
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:05
Sigríður Á. Andersen (SÁA), kl. 09:30
Valgerður Bjarnadóttir (VBj), kl. 09:30
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 09:30

Nefndarritari: Kolbrún Birna Árdal

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Frestað til næsta fundar.

2) Kosning 1. varaformanns Kl. 09:30
Brynjar Níelsson var kosinn 1. varaformaður.

3) Kynning á þingmálaskrá fjármála- og efnahagsráðherra Kl. 09:35
Á fundinn mætti Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og fór yfir þingmálaskrá fjármála- og efnahagsráðuneytisins og svaraði spurningum nefndarmanna.

4) 2. mál - ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2016 Kl. 10:25
Á fundinn mættu Benedikt S. Benediktsson, Steinar Örn Steinarsson, Guðrún Inga Torfadóttir, Ingibjörg Helga Helgadóttir og Björney Inga Björnsdóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneyti og kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

5) Önnur mál Kl. 11:30
Fleira var ekki gert á fundinum.

Fundi slitið kl. 11:30