83. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 18. júní 2019 kl. 20:27


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 20:27
Ari Trausti Guðmundsson (ATG) 1. varaformaður, kl. 20:27
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 20:27
Bergþór Ólason (BergÓ), kl. 20:27
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 20:27
Helga Vala Helgadóttir (HVH), kl. 20:27
Karl Gauti Hjaltason (KGH), kl. 20:27
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 20:27
Smári McCarthy (SMc) fyrir Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 20:27

Vilhjálmur Árnason boðaði forföll.

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 20:27
Fundargerð 82. fundar samþykkt.

2) 270. mál - póstþjónusta Kl. 20:28
Nefndin ræddi málið.

3) Pósttilskipunin 2008/6/EB. Kl. 20:54
Nefndin afgreiddi álit um málið til utanríkismálanefndar.

4) 55. mál - skilgreining auðlinda Kl. 20:56
Framsögumaður málsins, Bergþór Ólason, kynnti drög að nefndaráliti.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum. Allir viðstaddir nefndarmenn standa að nefndaráliti. Auk þess skrifar Vilhjálmur Árnason undir álitið með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

5) Önnur mál Kl. 21:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 21:00