31. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 156. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, þriðjudaginn 27. maí 2025 kl. 09:01


Mætt:

Guðbrandur Einarsson (GE) formaður, kl. 09:01
Ingibjörg Davíðsdóttir (IngD) 1. varaformaður, kl. 09:01
Ása Berglind Hjálmarsdóttir (ÁBH) 2. varaformaður, kl. 09:01
Halla Hrund Logadóttir (HHL), kl. 09:01
Jens Garðar Helgason (JGH), kl. 09:01
Jónína Björk Óskarsdóttir (JBÓ), kl. 09:01
Ólafur Adolfsson (ÓA), kl. 09:01
Pétur Marteinn Urbancic Tómasson (PMU), kl. 09:01
Sigurður Helgi Pálmason (SHP), kl. 09:01

Nefndarritari: Inga Skarphéðinsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:01
Fundargerð 30. fundar var samþykkt.

2) 271. mál - stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála Kl. 09:01
Á fund nefndarinnar mættu Ólafur Kr. Hjörleifsson og Ingilín Kristmannsdóttir frá innviðaráðuneytinu. Kynntu þau málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

kl. 09:30
Þá mættu á fund nefndarinnar Sigríður Elín Þórðardóttir og Reinhard Reynisson frá Byggðastofnun, Bergþóra Þorkelsdóttir og Guðmundur Valur Guðmundsson frá Vegagerðinni og Ólafur Árnason og Ottó Björgvin Óskarsson frá Skipulagsstofnun.
Fulltrúar Byggðastofnunar tóku þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði.

Að síðustu mættu á fund nefndarinnar Pétur Arason frá Húnabyggð, Unnur Valborg Hilmarsdóttir og Þorleifur Karl Eggertsson frá Húnaþingi vestra og Gerður Sigtryggsdóttir frá Þingeyjarsveit. Tóku þau þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði.

Eftir að gestir véku af fundi ræddi nefndin málið og samþykkti með vísan til 51. gr. þingskapa að óska eftir minnisblaði frá innviðaráðuneytinu þar sem fram komi afstaða ráðuneytisins til þeirra umsagna sem ráðuneytið telur rétt að bregðast við.

3) 268. mál - verndar- og orkunýtingaráætlun Kl. 10:49
Á fund nefndarinnar mættu Sigríður Svana Helgadóttir og Hafsteinn S. Hafsteinsson frá umhverfis- , orku- og loftslagsráðuneyti. Gestirnir kynntu málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 272. mál - sveitarstjórnarlög Kl. 11:48
Á fund nefndarinnar mættu Valgerður Rún Benediktsdóttir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Páll Björgvin Guðmundsson og Hildigunnur Hafsteinsdóttir frá Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga tók þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði.

5) 270. mál - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga Kl. 09:15
Nefndin samþykkti með vísan til 51. gr. þingskapa að óska eftir minnisblaði frá innviðaráðuneytinu þar sem fram komi afstaða ráðuneytisins til þeirra umsagna sem ráðuneytið telur þörf á að bregðast við auk viðbótarspurninga frá nefndinni.

6) Önnur mál Kl. 11:59
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:59