25. fundur
umhverfis- og samgöngunefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu, föstudaginn 12. desember 2014
kl. 14:40
Mættir:
Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) formaður, kl. 14:40Haraldur Einarsson (HE) 2. varaformaður, kl. 14:40
Birgir Ármannsson (BÁ), kl. 14:40
Elín Hirst (ElH), kl. 14:40
Róbert Marshall (RM), kl. 14:40
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 14:40
Katrín Júlíusdóttir og Jón Þór Ólafsson voru fjarverandi.
Nefndarritari: Heimir Skarphéðinsson
Bókað:
1) 422. mál - úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála Kl. 14:40
Formaður lagði fram drög að nefndaráliti og lagði til að málið yrði afgreitt sem allir viðstaddir nefndarmenn voru sammála um.
Að áliti nefndarinnar standa: HöskÞ, HE, BÁ, ElH, SSv, RM, SÁÁ.
2) 423. mál - varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum Kl. 14:40
Formaður lagði fram drög að nefndaráliti og lagði til að málið yrði afgreitt sem allir viðstaddir nefndarmenn voru sammála um.
Að áliti nefndarinnar standa: HöskÞ, HE, BÁ, ElH, SSv, RM, SÁÁ.
3) Önnur mál Kl. 14:45
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 14:45