Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 413. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1219 — 413. mál.
1. Hver er fjárhæð lána heimila, ekki lögaðila, vegna íbúðarhúsnæðis í eigu banka og lífeyrissjóða greint eftir árum frá árinu 2007 til dagsins í dag og sundurliðað í verðtryggð, óverðtryggð og gengisbundin lán?
Að beiðni ráðuneytisins aflaði Fjármálaeftirlitið upplýsinga til svars við þessum lið fyrirspurnarinnar hjá viðskiptabönkum, sparisjóðum og lífeyrissjóðum. Tölur vantar fyrir SPRON undir stjórn Dróma, sex lífeyrissjóðum (áætluð fjárhæð undir 20 ma.kr.) og tveimur litlum sparisjóðum. Árið 2007 er áætlað mat fyrir Íslandsbanka (þá Glitnir).
Tafla 1. Fjárhæð lána vegna íbúðarhúsnæðis í þús.kr. í eigu banka og lífeyrissjóða 1
1 Árslokastaða hvers árs, þ.e. kröfuvirði útlánasafns gagnvart lántaka (upphaflegur höfuðstóll + ógreiddar verðbætur + ógreiddir áfallnir vextir).
2. Hver er fjárhæð áfallinna a) vaxta, b) verðbóta á húsnæðislán, sundurliðað með sama hætti og í 1. tölul.?
Að beiðni ráðuneytisins aflaði Fjármálaeftirlitið upplýsinga til svars við þessum lið fyrirspurnarinnar hjá viðskiptabönkum, sparisjóðum og lífeyrissjóðum. Tölur vantar fyrir SPRON undir stjórn Dróma, sex lífeyrissjóðum (áætluð fjárhæð undir 20 ma.kr.) og tveimur litlum sparisjóðum. Árið 2007 er áætlað mat fyrir Íslandsbanka (þá Glitnir).
a)
Tafla 2. Fjárhæð ógreiddra áfallinna vaxta vegna húsnæðislána í þús.kr. í eigu banka og lífeyrissjóða
2 Ógreiddir áfallnir vextir miðað við 31/12 hvers árs.
3 Áhrif vegna gengisbreytinga.
b)
Tafla 3. Fjárhæð verðbóta á húsnæðislánum í þús.kr. í eigu banka og lífeyrissjóða
4 Verðbætur sem lagst hafa á höfuðstól frá upphafsdegi lánsins og hafa ekki enn verið greiddar.
5 Áhrif vegna gengisbreytinga.
Tafla 4. Fjárhæð verðbóta á greiðslujöfnunarreikning í þús.kr. í eigu banka og lífeyrissjóða
Samantekt
3. Hver er fjöldi heimila með íbúðaskuldir á bilinu: 0–5, 5–10, 10–20, 20–30, 30–40, 40–50, 50–60, 60–70, 70–80, 80–90, 90–100 millj. kr.?
Upplýsingar um íbúðaskuldir eru fengnar hjá ríkisskattstjóra. Tölur fyrir 2007–2010 eru byggðar á framtalsgögnum ríkisskattstjóra en 2011 á tölum frá lánastofnunum þar sem ekki er búið að yfirfara upplýsingar sem fram koma í framtali 2012. Tölur fyrir árið 2011 eru því ekki fyllilega sambærilegar við tölur úr framtalsgögnum árin á undan og ber að taka þeim með fyrirvara. 1
Tafla 8. Íbúðaskuldir heimila
4. Hvert er hlutfall íbúðalánanna af fasteignamati heimilanna: 0–10, 11–20, 21–30, 31–40, 41–50, 51–60, 61–70, 71–80, 81–90, 91–100 og meira en 100%?
Upplýsingar um fasteignamat íbúða eru fengnar hjá ríkisskattstjóra. Tölur fyrir árin 2007–2010 eru byggðar á framtalsgögnum ríkisskattstjóra en 2011 á tölum frá lánastofnunum þar sem ekki er búið að yfirfara upplýsingar sem fram koma í framtali 2012. Tölur fyrir árið 2011 eru því ekki fyllilega sambærilegar við tölur úr framtalsgögnum árin á undan og ber að taka þeim með fyrirvara. Sérstaklega er tekið fram að tölur um fasteignir sem standa á móti lánum eru ekki fullunnar og eins á eftir að handreikna ákveðinn fjölda lána að loknum framtalsskilum.
Tafla 9. Fasteignaskuldir heimila sem hlutfall af fasteignamati
140. löggjafarþing 2011–2012.
Þingskjal 1219 — 413. mál.
Svar
efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Kristjáns Þórs Júlíussonar um fjárhæð
lána heimila vegna íbúðarhúsnæðis í eigu banka og lífeyrissjóða.
1. Hver er fjárhæð lána heimila, ekki lögaðila, vegna íbúðarhúsnæðis í eigu banka og lífeyrissjóða greint eftir árum frá árinu 2007 til dagsins í dag og sundurliðað í verðtryggð, óverðtryggð og gengisbundin lán?
Að beiðni ráðuneytisins aflaði Fjármálaeftirlitið upplýsinga til svars við þessum lið fyrirspurnarinnar hjá viðskiptabönkum, sparisjóðum og lífeyrissjóðum. Tölur vantar fyrir SPRON undir stjórn Dróma, sex lífeyrissjóðum (áætluð fjárhæð undir 20 ma.kr.) og tveimur litlum sparisjóðum. Árið 2007 er áætlað mat fyrir Íslandsbanka (þá Glitnir).
Tafla 1. Fjárhæð lána vegna íbúðarhúsnæðis í þús.kr. í eigu banka og lífeyrissjóða 1
| Ár | Verðtryggð lán | Óverðtryggð lán | Gengisbundin lán |
| 2007 | 553.880.558 | 1.531.379 | 60.382.074 |
| 2008 | 638.812.730 | 1.791.243 | 154.930.355 |
| 2009 | 660.690.790 | 4.462.603 | 183.879.540 |
| 2010 | 664.236.854 | 41.553.724 | 152.464.427 |
| 2011 | 692.052.246 | 135.130.406 | 10.229.350 |
2. Hver er fjárhæð áfallinna a) vaxta, b) verðbóta á húsnæðislán, sundurliðað með sama hætti og í 1. tölul.?
Að beiðni ráðuneytisins aflaði Fjármálaeftirlitið upplýsinga til svars við þessum lið fyrirspurnarinnar hjá viðskiptabönkum, sparisjóðum og lífeyrissjóðum. Tölur vantar fyrir SPRON undir stjórn Dróma, sex lífeyrissjóðum (áætluð fjárhæð undir 20 ma.kr.) og tveimur litlum sparisjóðum. Árið 2007 er áætlað mat fyrir Íslandsbanka (þá Glitnir).
a)
Tafla 2. Fjárhæð ógreiddra áfallinna vaxta vegna húsnæðislána í þús.kr. í eigu banka og lífeyrissjóða
| Þar af ógreiddir áfallnir vextir frá upphafi2 | |||
| Ár |
Verðtryggð lán | Óverðtryggð lán | Gengisbundin lán3 |
| 2007 | 1.878.334 | 28.715 | 291.958 |
| 2008 | 2.627.562 | 71.919 | 882.362 |
| 2009 | 3.525.240 | 112.075 | 788.118 |
| 2010 | 5.027.620 | 295.326 | 1.011.786 |
| 2011 | 6.284.090 | 1.530.922 | 200.291 |
3 Áhrif vegna gengisbreytinga.
b)
Tafla 3. Fjárhæð verðbóta á húsnæðislánum í þús.kr. í eigu banka og lífeyrissjóða
| Þar af ógreiddar verðbætur frá upphafsdegi lánsins4 | |||
| Ár | Verðtryggð lán | Óverðtryggð lán | Gengisbundin lán5 |
| 2007 | 71.542.318 | 0 | 365.463 |
| 2008 | 153.969.466 | 2.097 | 65.724.002 |
| 2009 | 189.662.125 | 874 | 68.104.747 |
| 2010 | 192.710.565 | 0 | 56.225.862 |
| 2011 | 214.795.758 | 0 | 1.957.451 |
5 Áhrif vegna gengisbreytinga.
Tafla 4. Fjárhæð verðbóta á greiðslujöfnunarreikning í þús.kr. í eigu banka og lífeyrissjóða
| Þar af á greiðslujöfnunarreikning | |||
| Ár | Verðtryggð lán | Óverðtryggð lán | Gengisbundin lán |
| 2007 | 94.993 | 1.174 | 0 |
| 2008 | 597.759 | 431 | 0 |
| 2009 | 1.142.343 | 91 | 69.618 |
| 2010 | 4.003.004 | 10 | 720.098 |
| 2011 | 6.198.676 | 7 | 26.659 |
Samantekt
| Tafla 5. Verðtryggð lán, fjárhæðir í ma.kr. | |||||
| Höfuðstóll | Verðbætur | Greiðslujöfnuður | Vextir | Lokastaða | |
| 2007 | 480,36 | 71,54 | 0,09 | 1,88 | 553,88 |
| 2008 | 481,62 | 153,97 | 0,60 | 2,63 | 638,81 |
| 2009 | 466,36 | 189,66 | 1,14 | 3,53 | 660,69 |
| 2010 | 462,50 | 192,71 | 4,00 | 5,03 | 664,24 |
| 2011 | 464,77 | 214,80 | 6,20 | 6,28 | 692,05 |
| Tafla 6. Óverðtryggð lán, fjárhæðir í ma.kr. |
|||||
| Höfuðstóll | Verðbætur | Greiðslujöfnuður | Vextir | Lokastaða | |
| 2007 | 1,50 | 0,00 | 0,00 | 0,03 | 1,53 |
| 2008 | 1,72 | 0,00 | 0,00 | 0,07 | 1,79 |
| 2009 | 4,35 | 0,00 | 0,00 | 0,11 | 4,46 |
| 2010 | 41,26 | 0,00 | 0,00 | 0,30 | 41,55 |
| 2011 | 133,60 | 0,00 | 0,00 | 1,53 | 135,13 |
| Tafla 7. Gengislán, fjárhæðir í ma.kr. |
|||||
| Höfuðstóll | Gengisbreytinga | Greiðslujöfnuður | Vextir | Lokastaða | |
| 2007 | 59,72 | 0,37 | 0,00 | 0,29 | 60,38 |
| 2008 | 88,32 | 65,72 | 0,00 | 0,88 | 154,93 |
| 2009 | 114,92 | 68,10 | 0,07 | 0,79 | 183,88 |
| 2010 | 94,51 | 56,23 | 0,72 | 1,01 | 152,46 |
| 2011 | 8,04 | 1,96 | 0,03 | 0,20 | 10,23 |
3. Hver er fjöldi heimila með íbúðaskuldir á bilinu: 0–5, 5–10, 10–20, 20–30, 30–40, 40–50, 50–60, 60–70, 70–80, 80–90, 90–100 millj. kr.?
Upplýsingar um íbúðaskuldir eru fengnar hjá ríkisskattstjóra. Tölur fyrir 2007–2010 eru byggðar á framtalsgögnum ríkisskattstjóra en 2011 á tölum frá lánastofnunum þar sem ekki er búið að yfirfara upplýsingar sem fram koma í framtali 2012. Tölur fyrir árið 2011 eru því ekki fyllilega sambærilegar við tölur úr framtalsgögnum árin á undan og ber að taka þeim með fyrirvara. 1
Tafla 8. Íbúðaskuldir heimila
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
4. Hvert er hlutfall íbúðalánanna af fasteignamati heimilanna: 0–10, 11–20, 21–30, 31–40, 41–50, 51–60, 61–70, 71–80, 81–90, 91–100 og meira en 100%?
Upplýsingar um fasteignamat íbúða eru fengnar hjá ríkisskattstjóra. Tölur fyrir árin 2007–2010 eru byggðar á framtalsgögnum ríkisskattstjóra en 2011 á tölum frá lánastofnunum þar sem ekki er búið að yfirfara upplýsingar sem fram koma í framtali 2012. Tölur fyrir árið 2011 eru því ekki fyllilega sambærilegar við tölur úr framtalsgögnum árin á undan og ber að taka þeim með fyrirvara. Sérstaklega er tekið fram að tölur um fasteignir sem standa á móti lánum eru ekki fullunnar og eins á eftir að handreikna ákveðinn fjölda lána að loknum framtalsskilum.
Tafla 9. Fasteignaskuldir heimila sem hlutfall af fasteignamati
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
- Neðanmálsgrein: 1
- 1 Talsverður mismunur er á fjölda milli áranna 2010 og 2011 en það getur meðal annars stafað af tvítalningum vegna skuldbreytinga og uppgreiðslna lána en þessi mismunur verður leiðréttur hjá ríkisskattstjóra áður en álagningin liggur fyrir.