Ferill 370. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
153. löggjafarþing 2022–2023.
Þingskjal 1225 — 370. mál.
Svar
félags- og vinnumarkaðsráðherra við fyrirspurn frá Ingu Björk Margrétar Bjarnadóttur um aðgengi fatlaðs fólks að réttinum.
1. Til hvaða aðgerða hefur verið gripið til þess að tryggja fötluðu fólki aðgengi að réttinum, eins og fjallað er um í 13. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem íslensk stjórnvöld hafa fullgilt?
Undanfarin ár hafa verið gerðar ýmsar breytingar á réttarfars- og refsilöggjöf í því augnamiði að tryggja aðgengi fatlaðs fólk að réttinum. Má þar fyrst nefna að með lögum nr. 18/2019 voru gerðar breytingar á lögum um meðferð einkamála, nr. 91/1991, og lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008, þar sem kveðið var sérstaklega á um réttindi þeirra sem reiða sig á íslenskt táknmál til að njóta þjónustu táknmálstúlka í dómsmálum. Með sömu lögum var kveðið á um að ríkissjóður greiði kostnað vegna starfa táknmálstúlka í þeim tilvikum sem skýrslugjafi í einkamáli reiðir sig á íslenskt táknmál til samskipta sem og vegna starfa kunnáttumanna sem aðstoða þá sem geta ekki fyllilega haft orðaskipti á mæltu máli eða íslensku táknmáli við skýrslugjöf. Fyrir breytinguna bar ríkissjóður einungis slíkan kostnað í sakamálum en í einkamálum bar málsaðili kostnaðinn sjálfur.
Í öðru lagi voru með lögum nr. 29/2022 gerðar breytingar á ákvæðum almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, er vörðuðu bæði hatursorðræðu og mismunun. Með þeirri breytingu var fötluðu fólki bætt við upptalningu þeirra hópa sem njóta sérstakrar verndar gegn hatursorðræðu samkvæmt 233. gr. laganna auk þess sem nýjum tölulið var bætt við 70. gr. laganna þar sem talin eru þau atriði sem einkum á að taka til greina þegar hegning er ákveðin. Eftir þá breytingu ber m.a. að líta til þess hvort brot megi rekja til tiltekinna atriða er varða brotaþola, þar á meðal fötlunar hans. Með sömu lögum voru gerðar breytingar á 180. gr. laganna sem fjallar um bann við mismunun við afhendingu á vöru eða þjónustu til jafns við aðra. Er fatlað fólk nú í hópi þeirra sem njóta sérstakrar verndar gegn mismunun samkvæmt ákvæðinu.
Í þriðja lagi samþykkti Alþingi nýverið lög nr. 61/2022 þar sem gerðar voru ýmsar breytingar á lögum um meðferð sakamála, meðal annars í þeim tilgangi að koma til móts við þarfir fatlaðs fólk og bæta réttarstöðu þess við meðferð sakamála á rannsóknarstigi og fyrir dómstólum. Eftir þá breytingu er heimilt að taka skýrslu af vitni með geðræna eða vitsmunalega skerðingu í sér útbúnu húsnæði. Þá stendur fötluðum sakborningi og fötluðu vitni nú til boða að hafa með sér hæfan stuðningsaðila við skýrslugjöf hjá lögreglu og fyrir dómi. Líkt og segir í frumvarpi til laganna getur þessi stuðningsaðili til dæmis verið réttindagæslumaður fatlaðs fólks eða annar hæfur aðili sem sjálfur er ekki vitni eða sakborningur í máli.
Réttindagæslumenn fatlaðs fólks starfa skv. lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011, og reglugerð, nr. 973/2012. Hlutverk réttindagæslumanna er m.a. að fylgjast með högum fatlaðs fólks og veita fötluðum einstaklingum sem eiga erfitt með að gæta réttinda sinna sjálfir aðstoð og ráðgjöf, telji hinn fatlaði einstaklingur eða einhver sem stendur honum nærri að réttindi hans séu ekki virt sem skyldi. Fatlað fólk sem þarf aðstoð við að gæta réttar síns getur leitað til réttindagæslumanna fatlaðs fólks, sem starfa um allt land. Þá starfar sérstök réttindavakt innan félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins sem fylgist með störfum réttindagæslumanna og veitir þeim ráðgjöf og leiðbeiningar eftir þörfum. Öllum sem telja að brotið sé á réttindum fatlaðs einstaklings er skylt að tilkynna það til réttindagæslumanns, en auk þess getur réttindagæslumaður tekið upp mál að eigin frumkvæði. Réttindagæslumaður getur komið ábendingum um úrbætur á framfæri við hlutaðeigandi aðila og gefið honum tiltekinn frest til að verða við ábendingum. Verði ekki orðið við ábendingunum aðstoðar réttindagæslumaður hinn fatlaða einstakling við að beina málinu í viðeigandi kærufarveg.
Með lögum nr. 61/2022 var loks rýmkuð heimild dómara til að kveðja kunnáttumann sér til aðstoðar við skýrslutöku og nær hún nú meðal annars til þess ef um fatlað vitni er að ræða. Þá gaf ríkissaksóknari út fyrirmæli (nr. 3/2018) til lögreglu og ákærenda í október 2018 um meðferð kynferðisbrotamála þegar um fatlaðan sakborning og/eða brotaþola er að ræða. Er tilgangurinn að tryggja jafnræði hvað varðar aðgengi að réttarvörslukerfinu og málsmeðferð þegar fatlað fólk á í hlut. Þar kemur fram að mikilvægt sé að geta aðlagað rannsókn að hverju máli fyrir sig með það í huga að fatlað fólk er margbreytilegur hópur og þarfir hvers og eins mismunandi. Einnig er talið mikilvægt að taka ekki völdin af fólki, forðast forræðis- og verndarhyggju og virða vilja og óskir viðkomandi.
Í stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017–2021 er meðal annars að finna aðgerð sem miðar að því að auka þekkingu lögreglu, ákæruvalds og dómskerfis við rannsókn ofbeldisbrota í þeim tilgangi að tryggja að fatlað fólk njóti verndar réttarkerfisins til jafns við aðra. Árið 2018 héldu réttindavaktin og Lögregluskólinn málþing um réttaröryggi fatlaðs fólks og samvinnu réttindagæslumanna og lögreglu. Meginmarkmiðið var að auka gagnkvæma fræðslu og samvinnu réttindagæslu, lögreglu og saksóknara. Í upphafi árs 2019 var haldin ráðstefna um réttaröryggi fatlaðs fólks á vegum dómstólasýslunnar, réttindavaktar félagsmálaráðuneytisins, nú félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, og Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglunnar. Í samræmi við stefnu og framkvæmdaáætlunina stóð Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar fyrir sérhæfðu námskeiði í skýrslutökum af fólki með sérþarfir, með sérstakri áherslu á einhverfu, vorið 2018. Mennta- og starfsþróunarsetur lögreglunnar leggur nú lokahönd á fræðsluefni fyrir lögreglunema og starfandi lögregluþjóna um fatlað fólk í samvinnu við hagsmunasamtök og fagaðila. Gert er ráð fyrir því að efnið verði hluti af skyldunámi bæði í grunn- og símenntun lögreglumanna. Því til viðbótar hafa verið haldin námskeið fyrir starfandi lögreglumenn um ofbeldi gegn fötluðu fólki á grundvelli styrks frá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu.
Í heimsfaraldrinum vörðu stjórnvöld sérstöku fjármagni til aðgerða gegn ofbeldi, þ.m.t. ofbeldi gegn fötluðu fólki. Greiningadeild ríkislögreglustjóra var falið að vinna skýrslu um ofbeldi gegn fötluðu fólki í þeim tilgangi að átta sig á umfangi vandans og benda á hvaða breytinga væri þörf, svo sem varðandi skráningu mála í lögreglukerfinu þegar um er að ræða fólk með fötlun, þjónustu o.s.frv. Í heimsfaraldrinum var einnig ráðist í gerð 112-appsins en með því er hægt að hafa samband við 112 án þess að hringja. Appið byggir á hönnun fyrir döff fólk en hefur sannað sig sem handhæg lausn fyrir öll sem eiga erfitt með að hringja eða lýsa aðstæðum. Skýrar valmyndir hjálpa notandanum að greina frá því sem er að gerast, síðan er opnað fyrir textasamskipti við neyðarvörð. Um leið og samband er gefið til neyðarvarðar er staðsetning vettvangs send til Neyðarlínunnar ásamt upplýsingum um notanda og lýsingunni á því á hvað er á seyði. Þannig er hægt að bregðast enn hraðar við.
Dómsmálaráðuneytið hefur haldið þrjá fundi nýlega með fulltrúum Þroskahjálpar, ÖBÍ réttindasamtaka, Útlendingastofnunar, kærunefndar útlendingamála, Vinnumálastofnunar, réttindagæslu fatlaðs fólks (Vinnumálastofnun og réttindagæslan bættust við eftir fyrsta fund) og félags- og vinnumarkaðsráðuneytis. Framangreindur hópur hefur rætt um verklag og málsmeðferð þegar fatlaður einstaklingur sækir um alþjóðlega vernd. Fulltrúar Útlendingastofnunar, kærunefndar útlendingamála og Vinnumálastofnunar hafa farið yfir verkferla sína varðandi framangreint, og hagsmunafulltrúum hefur gefist tækifæri til að gera athugasemdir við þá verkferla, auk þess sem umræður við meðferð mála af hálfu stjórnvalda hafa farið fram. Í því samhengi hefur fulltrúi Þroskahjálpar verið með kynningu á meginreglum og ákvæðum samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks um málsmeðferð umsókna fatlaðra einstaklinga um alþjóðlega vernd. Verkferlar eru enn í mótun og er meginmarkmið framangreindrar vinnu að fullvinna verkferla í samræmi við ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Að lokum má nefna að í Barnahúsi, sem veitir börnum sem grunur leikur á að hafi orðið fyrir kynferðislegu áreiti eða ofbeldi þjónustu í barnvænlegu umhverfi, er sérstaklega hugað að þörfum fatlaðra barna. Barnahús er staðsett á höfuðborgarsvæðinu en auk þess opnaði nýtt útibú á Akureyri vorið 2019. Þar að auki sinna sérfræðingar í Barnahúsi greiningu og meðferð í heimabyggð barns sé þess óskað.
2. Kemur til greina að mati ráðherra að tryggja fötluðu fólki aðgengi að réttinum með fjárhagslegum stuðningi í ljósi þess að fáir hópar þurfa oftar að leita réttar síns en fatlað fólk vegna þess hve háð það er stuðningi og þjónustu frá hinu opinbera og er líklegra en aðrir til að búa við fátækt?
Þegar kemur að fjárhagslegri aðstoð til að leita réttar síns fyrir dómstólum getur fatlað fólk, eins og aðrir, sótt um gjafsókn á grundvelli laga um meðferð einkamála og reglugerðar um skilyrði gjafsóknar og starfshætti gjafsóknarnefndar. Um gjafsókn er fjallað í XX. kafla laga um meðferð einkamála, en samkvæmt 1. mgr. 126. gr. laganna verður gjafsókn aðeins veitt ef málstaður umsækjenda gefur nægilegt tilefni til málshöfðunar eða málsvarnar og öðru hvoru eftirfarandi skilyrða er að auki fullnægt:
a. að fjárhag umsækjanda sé þannig háttað að kostnaður af gæslu hagsmuna hans í máli yrði honum fyrirsjáanlega ofviða, enda megi teljast eðlilegt að öðru leyti að gjafsókn sé kostuð af almannafé,
b. að úrlausn máls hafi verulega almenna þýðingu eða varði verulega miklu fyrir atvinnu, félagslega stöðu eða aðra einkahagi umsækjenda.
Dómsmálaráðherra getur í reglugerð kveðið nánar á um skilyrði gjafsóknar, þ.m.t. hvenær nægilegt tilefni sé til veitingar gjafsóknar, þau atriði sem líta ber til við mat á fjárhagsstöðu umsækjenda og heimildir til takmörkunar. Ráðherra skipar gjafsóknarnefnd til þess að veita umsagnir um umsóknir um gjafsókn og veitir gjafsóknir á grundvelli þeirra. Í gildi er nú reglugerð um skilyrði gjafsóknar og starfshætti gjafsóknarnefndar, nr. 45/2008. Í reglugerðinni er m.a. kveðið á um viðmiðunartekjur umsækjenda um gjafsókn sem líta ber til við mat á því hvort gjafsókn verði veitt vegna efnahags umsækjanda sem og hvenær heimilt er að víkja frá þeim viðmiðunarmörkum. Það er til að mynda heimilt þegar aflahæfi umsækjanda er verulega skert til frambúðar vegna varanlegrar örorku, sem og ef málskostnaður verður fyrirsjáanlega hár miðað við efnahag umsækjanda. Þá skal við mat á því hvort gjafsókn verði veitt hafa til viðmiðunar það sjónarmið hvort úrlausn máls varði verulega miklu fyrir atvinnu, félagslega stöðu eða aðra einkahagi umsækjanda.
Þannig er í grunninn gengið út frá því að gjafsókn sé veitt þeim sem ekki geta kostað mál sitt sjálfir og sérstaklega tekið fram að taka megi tillit til þess, við mat á því hvort veita eigi gjafsókn, þegar aflahæfi umsækjanda er verulega skert til frambúðar. Það getur átt við um fatlað fólk sem aðra.
3. Telur ráðherra að ríki og sveitarfélög hafi sinnt frumkvæðisskyldu sinni og upplýst fatlað fólk um þau réttindi sem það á í ljósi þess að það hefur oft ekki getu, þekkingu og fjármuni til þess að sækja sér upplýsingar?
Sveitarfélög veita félagslega ráðgjöf samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, en markmið hennar er skv. 16. gr. að veita upplýsingar og leiðbeiningar um félagsleg réttindamál annars vegar og stuðning vegna félagslegs og persónulegs vanda hins vegar. Því til viðbótar kemur fram í 42. gr. að félagsmálanefndir skuli vinna að því að fötluðu fólki séu tryggð sambærileg lífskjör og jafnrétti á við aðra þjóðfélagsþegna. Í stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2017–2021 er í markmiði A-4 kveðið á um að fatlað fólk geti nálgast upplýsingar um rétt sinn og þjónustu. Kemur þar m.a. fram að vefsíður, fræðsluefni og upplýsingar, svo sem um réttindi og þjónustu, séu aðgengilegar fötluðu fólki á auðskildu máli og byggist á aðferðafræði algildrar hönnunar. Táknmálstúlkun verði aðgengileg, sem og punktaletur, textun og upplýsingar, bæði ritaðar og rafrænar, á auðskildu máli.
Það er því skýrt hlutverk sveitarfélaga að upplýsa fatlað fólk um réttindi sín, þ.m.t. um þau úrræði sem standa til boða þegar einstaklingur þarf að leita réttar síns hjá viðeigandi stjórnvöldum, en ekki liggur fyrir hvernig upplýsingagjöf er háttað til íbúa í hverju sveitarfélagi fyrir sig.
Eins og greinir í svari við fyrsta lið fyrirspurnarinnar starfa réttindagæslumenn í hverjum landshluta og geta sveitarfélög bæði vísað íbúum til þeirra en einnig getur starfsfólk sveitarfélaga leitað til þeirra ef grunur leikur á um að fatlað fólk sé órétti beitt. 1.510 mál voru unnin af réttindagæslumönnum árið 2021, en um 3.600 erindi bárust árið 2022. Má því áætla að þjónustu réttindagæslumanna sé vel þekkt.
Vert er að geta þess að við gerð aðgerðaráætlunar um innleiðingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem nú stendur yfir, er staða mála hvað varðar hverja grein samningsins rýnd og tillögur lagðar fram til úrbóta. Fyrstu tillögur vinnuhópa, sem samanstanda af fulltrúum hagsmunaaðila, sveitarfélaga og ríkisins, voru kynntar á fjölmennu samráðsþingi hinn 16. febrúar síðastliðinn þar sem viðstöddum gafst m.a. kostur á að kjósa um tillögur.