Ferill 623. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1080 — 623. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um skattaívilnanir til kaupskipa.
Flm.: Jens Garðar Helgason, Guðlaugur Þór Þórðarson, Jón Pétur Zimsen.
Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að undirbúa og leggja fram á Alþingi frumvarp til laga um skattaívilnanir til kaupskipa.
Greinargerð.
Í ljósi landfræðilegrar legu landsins gefur auga leið að langstærstur hluti vöruflutninga til og frá landinu er og hefur verið sjóleiðina. Þótt flutningar með flugi hafi færst í aukana hin síðari ár er það enn svo að meira en 90% flutninga á vörum og birgðum til landsins er með skipum. Milli ríkja hefur verið mikil og hörð samkeppni um skráningar skipa í alþjóðlegar skipaskrár sínar. Óhætt er að fullyrða að í þeirri samkeppni hafi Ísland orðið undir. Á níunda áratug síðustu aldar voru nærri fjörutíu skip skráð hér á landi en síðasta skipið var skráð úr landi árið 2004. Raunar er það svo að langstærstur hluti flotans er skráður í Færeyjum.
Að mati flutningsmanna tillögunnar er það hreint þjóðaröryggismál að þjóð, sem treystir að nær öllu leyti á birgðaflutninga á sjó, hafi lögsögu yfir kaupskipaflota sínum. Slíkt er sérlega brýnt á tímum sem nú, þegar óvissa ríkir í alþjóðamálum og óljóst hvaða áhrif það mun hafa á birgðakeðjur og tengsl þjóða ef um fimmtungur orkubirgða heimsins skilar sér ekki inn á markaði.
Kringum aldamót, eftir því sem fækkaði í flotanum jafnt og þétt, reyndu stjórnvöld að sporna við þróuninni. Árið 1998 var skipaður starfshópur sem skilaði drögum að frumvarpi til laga um íslenska alþjóðlega skipaskrá og annar slíkur ári síðar. Hópurinn skilaði af sér skýrslu árið 2001 en ekkert frumvarp var lagt fram á Alþingi. Um sama leyti og síðasta kaupskipið var skráð úr landi var að nýju skipaður starfshópur um efnið. Sá hópur skilaði af sér tillögum sem síðar urðu að lögum um íslenska alþjóðlega skipaskrá, nr. 38/2007, og lögum um skattlagningu kaupskipaútgerðar, nr. 86/2007.
Skemmst er frá því að segja að setning laganna náði ekki því marki sem stefnt var að og helgast það af tvennu. Annars vegar lá fyrir að í lögum nr. 86/2007 fælist ríkisaðstoð og var því leitað álits Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) á því hvort ríkisaðstoðin samræmdist undanþágureglum EES-samningsins. Að mati ESA sprengdu lögin þann ramma, m.a. vegna þess að skattlagning þess, svokallaður tonnaskattur, þótti of lágur í samanburði við önnur ríki innan EES, binditími skipa á skránni þótti of stuttur og að í undanþágunni fólust engin skilyrði um þjóðerni skipverja. Rétt er að geta þess að við setningu laga nr. 86/2007 var tekið mið af fyrirkomulagi ívilnunar í Færeyjum en þar sem Færeyjar standa utan EES hafa þær meira svigrúm en ríki innan samningsins til útfærslu skattlagningar kaupskipa.
Hins vegar höfðu tiltekin ákvæði frumvarps þess sem síðar varð að lögum nr. 38/2007 mætt talsverðri andstöðu verkalýðshreyfingarinnar og raunar hafði vinna starfshópanna kringum aldamótin strandað af sömu sökum. Vegna athugasemda verkalýðshreyfingarinnar var ákvæði frumvarpsins, um að um kjör skipverja færi eftir kjarasamningum í lögheimilisríki skipverja, fellt brott í samþykktum lögum.
Lög nr. 86/2007 voru að lokum felld brott með lögum nr. 164/2011 en á gildistíma þeirra hafði ekkert kaupskip skráð sig á íslensku alþjóðlegu skipaskrána. Á þeim fimmtán árum sem liðið hafa síðan hefur ekki fjölgað á skránni.
Fyrir liggur að á vormánuðum 2021 kynnti samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið í samráðsgátt, sbr. mál nr. S-92/2021, drög að frumvarpi til nýrrar heildarlöggjafar um íslenska alþjóðlega skipaskrá. Samhliða var stefnt að því að fjármála- og efnahagsráðuneytið legði fram drög að frumvarpi um skattaívilnanir til kaupskipa en ekki varð af því. Flutningsmenn tillögunnar telja brýnt að þráðurinn verði tekinn upp þar sem honum var sleppt og að bæði frumvörp komi til meðferðar þingsins.
Ljóst er að ákvörðun um fánaríki kaupskipa er hrein rekstrarákvörðun útgerðar þess og að fyrirkomulag skattlagningar ræður þar mestu. Auðnist Íslandi að fjölga skipum á alþjóðlegu íslensku skipaskránni er ljóst að skatttekjur hér á landi munu aukast, jafnt vegna flutninganna sjálfra sem og farmanna um borð, auk þess sem mögulegt er að ýmis afleidd störf skapist í landi vegna umsýslu við greinina.
Flutningsmenn tillögunnar telja ívilnunina því ekki aðeins brýna út frá þjóðaröryggi, heldur mæla önnur atriði einnig með því að skapa rekstrargrundvöll fyrir greinina hér á landi. Alþingi ályktar því að fjármála- og efnahagsráðherra beri að leggja fram á Alþingi frumvarp um skattaívilnanir til kaupskipa til að gera Ísland samkeppnishæft á þessum vettvangi.