Ferill 708. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1372 — 708. mál.
Svar
forseta Alþingis við fyrirspurn frá Karli Gauta Hjaltasyni um útgáfu frímerkja í tilefni af 1100 afmæli Alþingis.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Stendur til að óska eftir heimild Byggðastofnunar til að gefa út frímerki í tilefni af 1100 ára afmæli Alþingis árið 2030?
Fyrir þinginu liggur tillaga til þingsályktunar um hvernig minnast skuli 1100 ára afmælis Alþingis ( þskj. 1100, 630. mál). Tillagan gerir ráð fyrir því að skipuð verði fimm manna framkvæmdanefnd til að undirbúa hátíðarhöld í tilefni afmælisins, en í því felst m.a. að afla hugmynda um hvernig tímamótanna verði minnst af hálfu Alþingis og að vinna úr þeim.
Þegar hafa borist fjölmargar hugmyndir frá almenningi og stofnunum. Lagt er til að nefndin velji hugmyndir og verkefni, þar sem lögð verði áhersla á lýðræði, þátttöku almennings og fræðslu og miðlun um sögu þings og þjóðar, og virki sem flest til þátttöku í að minnast tímamótanna. Gert er ráð fyrir að tillögur nefndarinnar fari til samþykktar hjá forsætisnefnd Alþingis.
Hugmynd um útgáfu frímerkja í tilefni af 1100 ára afmælis Alþingis verður komið á framfæri við framkvæmdanefndina sem metur hvort og með hvaða hætti slík hugmynd er framkvæmanleg.