Ferill 285. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 521  —  285. mál.




Svar


menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Bryndísi Haraldsdóttur um greiðslur fyrir afnot bóka og hljóðrita á bókasöfnum.


     1.      Hver hefur þróun fjárframlaga úr ríkissjóði verið fyrir afnot bóka á bókasöfnum sl. 10 ár, sbr. III. kafla laga um bókmenntir, nr. 91/2007?
    Samkvæmt upplýsingum frá Rithöfundasambandi Íslands, sem annast umsýslu vegna greiðslna fyrir afnot á bókasöfnum skv. 7. og 8. gr. laga um bókmenntir, nr. 91/2007, hefur fjárframlag úr ríkissjóði vegna afnota á bókasöfnum verið sem að aftan greinir.

Ár Fjárhæð í kr. Ár Fjárhæð í kr.
2016 70.000.000 2021 197.400.000
2017 71.800.000 2022 193.800.000
2018 71.400.000 2023 182.200.000
2019 76.400.000 2024 184.600.000
2020 124.900.000 2025 146.000.000
    Samtals 1.318.500.000

     2.      Hver er tilgangur og markmið greiðslna samkvæmt fyrrnefndum kafla laga um bókmenntir?
    Markmið laga um bókmenntir, nr. 91/2007, koma fram í 1. gr. Þar segir: „Markmið laga þessara er að efla íslenskar bókmenntir og bókaútgáfu og búa íslenskri bókmenningu hagstæð skilyrði.“ Ekki eru tilgreind markmið fyrir III. kafla laganna sérstaklega og því verður að gera ráð fyrir því að almenn markmið 1. gr. eigi jafnframt við um þann hluta þar sem fjallað er um greiðslur fyrir afnot á bókasöfnum.

     3.      Hvernig hafa fyrrnefnd fjárframlög ríkissjóðs skipst, á sama tímabili, á milli rithöfunda, þýðenda, myndhöfunda, tónskálda og annarra aðila?
    Ekki liggja fyrir upplýsingar hjá umsýsluaðila um hvernig fjárframlögin skiptast.

     4.      Hve stór hluti fyrrnefndra fjárframlaga hefur, á sama tímabili, farið til rétthafa vegna hljóðrita?
    Samkvæmt upplýsingum frá Rithöfundasambandi Íslands, sem annast umsýslu vegna greiðslna fyrir afnot á bókasöfnum skv. 7. og 8. gr. laga um bókmenntir, nr. 91/2007, er hlutdeild vegna hljóðrita sem að aftan greinir.

Ár 2021 2022 2023 2024 2025
Hlutfall 23% 16% 16% 17% 17%

    Rétt er að taka fram að árið 2021 var fyrst miðað við útlánatölur frá Hljóðbókasafni Íslands, ásamt útlánatölum frá Landskerfi bókasafna, sbr. reglur um greiðslur fyrir afnot efnis á bókasöfnum, nr. 250/2021.

     5.      Liggja fyrir upplýsingar um hversu stór hluti úthlutana rennur til barnabókahöfunda?
    Ekki liggja fyrir upplýsingar hjá umsýsluaðila um það hversu stór hluti rennur til barnabókahöfunda.

     6.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir auknum fjárframlögum úr ríkissjóði til höfunda fyrir afnot bóka á bókasöfnum, m.a. til að koma til móts við lækkun greiðslna til barnabókahöfunda?
    Ráðherra hefur þegar beitt sér fyrir því að framlag vegna greiðslna fyrir afnot á bókasöfnum verði hækkað verulega. Í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar á yfirstandandi löggjafarþingi ( þskj. 450, 1. mál) er lagt til að framlagið verði aukið um 80 millj. kr.