Ferill 144. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 579 — 144. mál.
3. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um kílómetragjald á ökutæki.
Frá 1. minni hluta efnahags- og viðskiptanefndar.
Fyrsti minni hluti telur að frumvarp til laga um kílómetragjald sé á margan hátt mikilvægt skref í átt að notendamiðaðri gjaldtöku vegna notkunar vegakerfisins. Margvísleg efnisatriði frumvarpsins þarfnast þó endurskoðunar til að tryggja sanngirni, fyrirsjáanleika og meðalhóf í framkvæmd, til að draga úr óæskilegum áhrifum á almenning og atvinnulíf, sérstaklega á landsbyggðinni, og stuðla að traustri og ábyrgri innleiðingu nýs gjaldkerfis, og leggur 1. minni hluti því fram eftirfarandi tillögur til breytinga.
Um breytingartillögur 1. minni hluta.
Undanþága ökutækja sem eru 25 ára og eldri.
Lögð er til breyting á 4. gr. sem miðar að því að ökutæki sem eru 25 ára og eldri verði undanþegin kílómetragjaldi í stað þess að undanþága miðist við fasta dagsetningu, svo sem fyrstu skráningu fyrir árið 1965 eins og mælt er fyrir um í 2. tölul. 4. gr. frumvarpsins. Aldursviðmið sem byggist á því að ökutæki séu 25 ára og eldri er m.a. sveigjanlegra gagnvart þróun bílaflotans, raunsærra og auðveldara í framkvæmd fyrir almenning. Slík ökutæki eru almennt notuð afar takmarkað, ekki hluti af daglegri umferð eða atvinnunotkun, og hafa því óveruleg áhrif á slit vegakerfisins sem er meginforsenda kílómetragjalds. Tillagan fellur vel að meginreglu frumvarpsins um notendamiðaða gjaldtöku þar sem gjaldtaka á ekki að ná til ökutækja sem eru lítið notuð eða eingöngu í varðveislu eða tómstundanotkun.
Gjaldtaka vegna ökutækjaleigna verði á hvern hafinn dag í stað fastra tímabila.
Í 12. gr. frumvarpsins er kveðið á um skil ökutækjaleigna á daggjaldi. Í lokamálslið 2. mgr. ákvæðisins í frumvarpinu kom fram að lágmarkstímabil daggjalds vegna hvers ökutækis væri einn almanaksmánuður. Meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar ( þskj. 487) lagði til breytingu þess efnis að fram kæmi í lokamálslið 2. mgr. 12. gr. að lágmarkstímabil daggjalds yrði 15 dagar. Fyrsti minni hluti er á þeirri skoðun að óþarft sé að kveða á um tiltekið lágmarkstímabil og leggur fyrir vikið til að lokamálsliður 2. mgr. 12. gr. falli brott.
Fast 70% gjaldhlutfall eftirvagna frá og með 2026.
Lögð er til breyting á gjaldtöku eftirvagna sem nú er ætlað að vera þrepaskipt til ársins 2027 áður en fullri gjaldtöku er náð, sbr. 6. gr. og ákvæði til bráðabirgða VI. Breytingin sem hér er lögð til er að gjaldtaka verði ávallt 70% af gjaldtöku annarra ákvæða.
Stigvaxandi hækkun gjaldhlutfalls eftirvagna getur haft óhagstæð áhrif á flutningskostnað, sérstaklega í flutningum til og frá landsbyggðinni. Slíkar kostnaðarhækkanir geta leitt til aukins verðþrýstings á vörur og þjónustu utan höfuðborgarsvæðisins og haft áhrif á rekstrarskilyrði fyrirtækja margvíslegra atvinnugreina sem reiða sig á langar flutningsleiðir. Með því móti getur samkeppnisstaða fyrirtækja á landsbyggðinni versnað gagnvart fyrirtækjum sem starfa nær stærri markaði höfuðborgarsvæðisins. Með hliðsjón af stöðu efnahagsmála og hárri verðbólgu er mikilvægt að ríkið stígi varlega til jarðar með hækkun skatta og gjalda.
Þrátt fyrir að lagt sé til að hlutfallið hækki í 70% árið 2026, í stað 60% eins og stefnt er að með frumvarpinu, er með tillögu 1. minni hluta tryggt að gjaldhlutfallið haldist óbreytt til lengri tíma sem eykur fyrirsjáanleika og stöðugleika fyrir atvinnulíf og umfram allt einstaklinga á landsbyggðinni.
Fyrsti minni hluti leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. 2. tölul. 4. gr. orðist svo: Ökutæki sem eru 25 ára eða eldri.
2. Eftirfarandi breytingar verði á 6. gr.:
a. Í stað orðanna „2.–4. tölul.“ í 1. mgr. komi: 2.–3. tölul.
b. Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
Fjárhæð gjalds á hvern ekinn kílómetra ökutækis sem fellur undir 4. tölul. 1. mgr. 3. gr. skal vera 70% af fjárhæð hlutaðeigandi gjaldflokks skv. 1. mgr.
3. Lokamálsliður 2. mgr. 12. gr. falli brott.
4. 4. tölul. 1. mgr. ákvæðis til bráðabirgða VI falli brott.
Alþingi, 16. desember 2025.
Stefán Vagn Stefánsson.