Tilkynningar

Alþingi býður í heimsókn 25. október

15.10.2025

Almenningi er boðið að skoða Alþingishúsið og Smiðju laugardaginn 25. október í tilefni af Kvennaári 2025.

Leiðsögn í Alþingishúsinu kl. 11–16 (bókað fyrirfram)

Boðið verður upp á leiðsögn í Alþingishúsinu kl. 11–16. Hleypt er inn á 20 mínútna fresti, hámark 35 manns í senn, og tekur hver leiðsögn 30 mínútur. Boðið verður upp á leiðsögn á ensku kl. 12:00 og 14:00. Þá verður leiðsögn með táknmálstúlkun kl. 14:40.

Gengið er inn í Skála, við hlið Alþingishússins. Nauðsynlegt er að skrá sig fyrirfram.

Skráning í leiðsögn 

Opið hús í Smiðju kl. 11–16 (þarf ekki að bóka)

Á sama tíma, kl. 11 –16, verður opið hús á fyrstu hæð í Smiðju, skrifstofubyggingu Alþingis, Tjarnargötu 9. Gengið er inn um aðalinnganginn á horni Tjarnargötu og Vonarstrætis. Ekki er þörf á skráningu í Smiðju.

Viðburðurinn er liður í dagskrá Kvennaárs 2025.