Alþingi í Lærða skólanum 1845–1879
Minningarskjöldur var afhjúpaður í dag í hátíðarsal Menntaskólans í Reykjavík, þar sem fundir Alþingis voru haldnir eftir endurreisn þess árið 1845. Skjöldurinn er gjöf frá Alþingi til MR í tilefni af því að 150 ár eru liðin frá því að Alþingi fékk löggjafarvald í sérmálum Íslands og frá því að skrifstofa Alþingis var stofnuð.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, og Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, afhjúpuðu minningarskjöldinn.
Þegar Alþingi var endurreist 1845 var Lærði skólinn eins og hann hét þá veglegasta húsið í Reykjavík og í reynd eina húsið í bænum sem gat með góðu móti rúmað starfsemi Alþingis. Þar var því skotið skjólshúsi yfir Alþingi í á fjórða áratug eða allt til þess tíma að hægt var að taka nýreist Alþingishús í notkun 1. júlí 1881.

Viðstödd voru rektor og kennarar MR, forsætisnefnd Alþingis og framkvæmdastjórn skrifstofu Alþingis.