Tilkynningar

Nefndarferð allsherjar- og menntamálanefndar til Hollands

12.1.2026

Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis heimsækir Haag í Hollandi dagana 11.-14. janúar 2026 til að kynna sér menntamál, útlendingamál og löggæslusamstarf innan Evrópu. Nefndin heimsækir m.a. hollenska þingið, stjórnvöld og alþjóðlegar stofnanir.

Nefndin mun heimsækja hollenska þingið sem hefur aðsetur í Haag og fundar með þingmönnum sem eiga sæti í tveimur fastanefndum þingsins, annars vegar nefnd sem fjallar um menntamál og hins vegar um málefni innflytjenda og flóttafólks. Nefndin mun einnig heimsækja Europol og Eurojust ásamt sendiherra Íslands í Brussel, Stefáni Hauki Jóhannessyni. Þá fundar nefndin með fulltrúum frá ráðuneyti menntamála og fær kynningu á menntakerfinu í Hollandi og fræðslu um móttöku og inngildingu nemenda af erlendum uppruna. Einnig er stefnt að fundi með the Dutch Council for Refugees í móttökumiðstöð fyrir flóttafólk. Loks mun nefndin fara í heimsókn í varðhalds-og brottvísunarmiðstöð í Rotterdam þar sem hún fær kynningu á málaflokknum á vegum ráðuneytis innflytjenda og flóttafólks.

Fyrir hönd allsherjar- og menntamálanefndar taka þátt í ferðinni Víðir Reynisson formaður, Jón Pétur Zimsen, Snorri Másson, Grímur Grímsson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, María Rut Kristinsdóttir og Sigurður Örn Hilmarsson.