Tilkynningar

Netkönnun: Framtíðarsýn fyrir vef Alþingis

23.2.2024

Vakin er athygli á könnun sem sett hefur verið upp á vef Alþingis og eru notendur vefsins hvattir til að taka þátt.

Um þessar mundir er unnið að endurskoðun á og mótun framtíðarsýnar fyrir vef Alþingis. Helsta markmið verkefnisins er að gera vefinn notendavænni og aðgengilegri fyrir fjölbreyttan hóp notenda. Ráðgert er að nýr vefur líti dagsins ljós á árinu 2025.

Ráðgjafafyrirtækið Sjá hefur umsjón með gerð og úrvinnslu könnunarinnar í samstarfi við vefteymi skrifstofu Alþingis. Farið verður með öll svör sem trúnaðarmál og þau eru ekki rekjanleg til einstaklinga.

Mikilvægt er að hafa samráð við helstu hagaðila til þess að fá innsýn í þarfir og kröfur ólíkra hópa sem nota vefinn og er þessi könnun liður í því.

Sjónarmið notenda eru mikilvæg í þessari vinnu og því er dýrmætt að fá svör frá sem allra flestum. Það tekur aðeins um fimm mínútur að svara könnuninni.