Tilkynningar
Ný útgáfa lagasafnsins
Ný útgáfa lagasafnsins (157c) hefur verið birt á vef Alþingis. Þar er lagasafnið uppfært til 1. september 2026.
Tilvísanir til stjórnvaldsfyrirmæla, þ.e. reglugerða, reglna og auglýsinga sem hafa almennt gildi, eru að jafnaði birtar í lagasafninu til sama tíma en opinber birting þeirra er á vef Stjórnartíðinda. Breytingar á stofnreglugerðum hafa ekki verið uppfærðar en eru aðgengilegar á vef Stjórnartíðinda og í reglugerðasafni.