Tilkynningar

Samúðarkveðja til Svíþjóðar

10.2.2025

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, sendi í síðustu viku sænskum starfsbróður sínum Andreas Norlén, forseta sænska þingsins, bréf fyrir hönd Alþingis. Í bréfinu lýsti hún samúð og samhug vegna hinnar mannskæðu skotárásar í Örebro, einkum til fjölskyldna og aðstandenda hinna látnu.