Tilkynningar

Samúðarkveðjur til Noregs vegna fráfalls Haraldar konungs V.

28.8.2026

Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, sendi norskum starfsbróður sínum, Masud Gharahkhani, forseta Stórþingsins, samúðarkveðjur fyrir hönd Alþingis vegna fráfalls Haraldar konungs V. Hún bað hann jafnframt að koma kveðjum á framfæri við þingmenn Stórþingsins, konungsfjölskylduna og norsku þjóðina:

„Í 35 ár var Haraldur konungur fastur punktur í lífi norsku þjóðarinnar, konungur sem Norðmenn litu á sem einn af sínum. Hann gegndi embætti sínu af einlægni og kímni og fyrir það þótti okkur, sem utan Noregs stöndum, einnig vænt um hann. Ísland og Noregur eiga sameiginlegar rætur og engin tengsl okkar ná lengra aftur. Haraldur konungur ræktaði þær alla sína valdatíð og heimsókna hans hingað til lands er minnst. Ísland hefur misst vin og á þessum dögum deilum við sorg ykkar. Alþingi óskar jafnframt hans hátign Hákoni konungi VIII. styrks og farsældar í því starfi sem honum hefur nú hlotnast.“

Flaggad-i-halfa-stong

Flaggað var í hálfa stöng á Alþingishúsinu í dag vegna fráfalls Haraldar konungs V.