Tilkynningar

Sumarfundur forsætisnefndar á Snæfellsnesi

4.9.2025

Forsætisnefnd Alþingis kom saman til árlegs vinnufundar í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi og í Stykkishólmi dagana 2. og 3. september. Um langt árabil hefur forsætisnefnd komið saman til lengri vinnufunda áður en nýtt löggjafarþing kemur saman. Að jafnaði eru slíkir sumarfundir haldnir í kjördæmum landsins til skiptis. Rædd voru fjölmörg mál er varða starfsemi og rekstur þingsins og stofnana þess. Auk þess fékk nefndin áhugaverða kynningu á starfsemi Snæfellsjökulsþjóðgarðs frá Ragnhildi Sigurðardóttur þjóðgarðsverði.

_DSC1964

Ásamt forsætisnefnd sat fundinn starfsfólk skrifstofu Alþingis. Einnig sátu ríkisendurskoðandi, umboðsmaður Alþingis og framkvæmdastjóri Mannréttindastofnunar Íslands þann hluta fundarins þar sem fjallað var um málefni þeirra stofnana. Var þetta í fyrsta skipti sem framkvæmdastjóri Mannréttindastofnunar Íslands situr fundinn en stofnunin tók til starfa 1. maí sl. og starfar á vegum Alþingis.

_DSC1994