Tilkynningar

Vaxandi traust til Alþingis

26.2.2025

Traust almennings til Alþingis hefur aukist um nær tíu prósentustig á tveimur árum, samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups sem mælir árlega traust til helstu stofnana samfélagsins. Traustið mælist nú tæp 34%, en var 24,6% í ársbyrjun 2023.

Sé litið lengra aftur má rifja upp að traust til Alþingis hríðféll eftir efnahagshrunið. Þegar Gallup mældi traust til Alþingis skömmu fyrir hrun, árið 2008, var traustið 42% en féll niður í 13% árið 2009 og 9% 2010.

„Það er gleðiefni að traust almennings til Alþingis fari vaxandi. Löggjafarsamkoman er ein af grunnstoðum lýðræðisins og til hennar á að gera kröfur um góð og fagleg vinnubrögð, svo að hún sé traustsins verð. Þessi jákvæða þróun skiptir líka máli í heimi þar sem lýðræðissamfélög eiga undir högg að sækja,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis.

Traust-til-Althingis