Skólaþing
Á Skólaþingi fara nemendur efstu bekkja grunnskóla í hlutverkaleik og fylgja reglum um starfshætti Alþingis.
Skólaþing er lokað vegna flutninga. Nýtt og endurbætt Skólaþing verður opnað í kjallara Skúlahúss við Kirkjustræti 4 á næstunni. Sem stendur er ekki tekið við bókunum í Skólaþing.

Í hæfniviðmiðum samfélagsgreina í aðalnámskrá er lögð áhersla á að við lok unglingastigs grunnskóla eigi nemendur að geta útskýrt ólíkar hugmyndir um framkvæmd og gerð lýðræðis, útskýrt hlutverk helstu stofnana samfélagsins og uppbyggingu stjórnkerfisins og greint hvernig stjórnmál tengjast lífi einstaklinga. Nemendur eigi að kunna skil á réttindum, skyldum og gildismati og geta rökrætt stöðu sína sem þátttakendur í samfélaginu.
Markmið Skólaþings
• Að nemendur fái innsýn í dagleg störf þingmanna
• Að nemendur geri sér grein fyrir því hvernig lög verða til
• Að veita innsýn í framkvæmd og ferli lagafrumvarps
• Að vekja áhuga og dýpri skilning nemenda á störfum þingmanna og starfsemi Alþingis
• Að efla skilning og þekkingu nemenda á stjórnskipulagi, störfum Alþingis og lýðræðislegum vinnubrögðum
Um heimsóknina
Tekið er á móti nemendum í húsnæði Skólaþings. Á Skólaþingi fá nemendur tækifæri til að setja sig í spor þingmanna með því að leiða fyrir fram ákveðin málefni sem fyrir þá eru lögð til lykta á þingflokksfundum, nefndarfundum og þingfundum. Jafnframt hlusta þeir á og meta rök sérfræðinga sem kallaðir eru til til að veita þingmönnum ráðgjöf. Þannig er ætlunin að veita innsýn í sambandið milli atburða í samfélaginu, skoðanamyndunar, pólitískra ákvarðana og starfa Alþingis og sýna áhrif almennings, sérfræðinga, fjölmiðla og hagsmunaaðila á löggjafarstarfið. Nemendur eiga að komast að lýðræðislegri niðurstöðu með því að hlusta á og meta rök og álit annarra og skiptast á skoðunum.