Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 263, 120. löggjafarþing 13. mál: réttarstaða kjörbarna og foreldra þeirra (breyting ýmissa laga).
Lög nr. 129 12. desember 1995.
I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 57/1987, um fæðingarorlof.
II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 117/1993, um almannatryggingar.
Sömu réttarstöðu hafa stjúpbörn og kjörbörn þegar eins stendur á. Þó skal ekki greiddur barnalífeyrir vegna fráfalls eða örorku stjúpforeldris ef barnið á framfærsluskylt foreldri á lífi.
III. KAFLI
Breyting á lögum nr. 95/1980, um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda.
IV. KAFLI
Breyting á lögum nr. 50/1984, um lífeyrissjóð bænda.
V. KAFLI
Þingskjal 263, 120. löggjafarþing 13. mál: réttarstaða kjörbarna og foreldra þeirra (breyting ýmissa laga).
Lög nr. 129 12. desember 1995.
Lög um réttarstöðu kjörbarna og foreldra þeirra.
1. gr.
Við 1. gr. laganna bætist: eða frumættleiðingar.2. gr.
Við 3. gr. laganna bætist nýr málsliður er orðast svo: Ef barn, sem ættleiða á, er sótt til útlanda er ættleiðandi móður heimilt að hefja töku fæðingarorlofs við upphaf ferðar, enda hafi viðkomandi yfirvöld eða stofnun staðfest að hún fái barn til ættleiðingar.3. gr.
Orðin „Ættleiðandi foreldrar“ og orðin „eða leyfi til ættleiðingar eftir því sem við á“ í 5. gr. laganna falla brott.4. gr.
2. mgr. 14. gr. laganna orðast svo:Sömu réttarstöðu hafa stjúpbörn og kjörbörn þegar eins stendur á. Þó skal ekki greiddur barnalífeyrir vegna fráfalls eða örorku stjúpforeldris ef barnið á framfærsluskylt foreldri á lífi.
5. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. laganna:- 1. mgr. orðast svo:
- Á eftir orðunum „ef fleiri fæðast“ í 1. málsl. 5. mgr. kemur: eða eru ættleidd.
- Orðin „ættleiðandi foreldri“ og orðin „eða leyfi til ættleiðingar eftir því sem við á“ í 6. mgr. falla brott.
6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 16. gr. laganna:- Á eftir orðunum „fyrir fæðinguna“ í 1. málsl. a-liðar kemur: eða frumættleiðinguna.
- Á eftir orðunum „eftir fæðingu“ í 1. málsl. f-liðar kemur: eða frumættleiðingu.
- Orðin „Ættleiðandi foreldrar“ í m-lið falla brott.
7. gr.
2. málsl. 2. mgr. 12. gr. laganna orðast svo: Kjörbarn þeirra skapar sama rétt.8. gr.
3. málsl. 1. mgr. 11. gr. laganna orðast svo: Kjörbarn þeirra skapar sama rétt.9. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 30. nóvember 1995.