Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 672, 122. löggjafarþing 343. mál: fæðingarorlof (feður).
Lög nr. 147 29. desember 1997.
I. KAFLI
Breytingar á lögum um fæðingarorlof, nr. 57/1987, með síðari breytingum.
Auk réttar foreldra skv. 1. mgr. á faðir rétt á tveggja vikna fæðingarorlofi sem taka má hvenær sem er fyrstu átta vikurnar eftir fæðingu eða heimkomu barns, þó skal réttur föður vera fjórar vikur ef um er að ræða alvarlegan sjúkleika barns eða alvarleg veikindi móður. Jafnframt á faðir rétt á fæðingarorlofi í tvær vikur til viðbótar fyrir hvert barn umfram eitt. Notfæri faðir sér ekki rétt samkvæmt þessari málsgrein fellur hann niður.
Réttur föður til fæðingarorlofs er bundinn því skilyrði að hann sé í hjúskap eða skráðri óvígðri sambúð með móður barnsins.
II. KAFLI
Breytingar á lögum um almannatryggingar, nr. 117/1993, með síðari breytingum.
Faðir á rétt á tveggja vikna fæðingarorlofi sem taka má hvenær sem er fyrstu átta vikurnar eftir fæðingu eða heimkomu barns, þó skal réttur föður vera fjórar vikur ef um er að ræða alvarlegan sjúkleika barns eða alvarleg veikindi móður. Jafnframt á faðir rétt á fæðingarorlofi í tvær vikur til viðbótar fyrir hvert barn umfram eitt. Notfæri faðir sér ekki rétt samkvæmt þessari málsgrein fellur hann niður.
Réttur föður til fæðingarorlofs er bundinn því skilyrði að hann sé í hjúskap eða skráðri óvígðri sambúð með móður barnsins.
Faðir í fæðingarorlofi á rétt á greiðslu fæðingarstyrks í hlutfalli við lengd orlofsins. Þá á hann rétt á hlutfallslegri greiðslu fæðingardagpeninga í samræmi við ákvæði d-liðar 16. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Ákvæði laga þessara skulu gilda um þá feður sem geta nýtt sér rétt samkvæmt lögunum við gildistöku þeirra.
Þingskjal 672, 122. löggjafarþing 343. mál: fæðingarorlof (feður).
Lög nr. 147 29. desember 1997.
Lög um breytingu lagaákvæða um fæðingarorlof.
1. gr.
Við 2. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:Auk réttar foreldra skv. 1. mgr. á faðir rétt á tveggja vikna fæðingarorlofi sem taka má hvenær sem er fyrstu átta vikurnar eftir fæðingu eða heimkomu barns, þó skal réttur föður vera fjórar vikur ef um er að ræða alvarlegan sjúkleika barns eða alvarleg veikindi móður. Jafnframt á faðir rétt á fæðingarorlofi í tvær vikur til viðbótar fyrir hvert barn umfram eitt. Notfæri faðir sér ekki rétt samkvæmt þessari málsgrein fellur hann niður.
Réttur föður til fæðingarorlofs er bundinn því skilyrði að hann sé í hjúskap eða skráðri óvígðri sambúð með móður barnsins.
2. gr.
Í stað orðanna „hluta fæðingarorlofs“ í 3. málsl. 4. gr. laganna kemur: fæðingarorlof.3. gr.
Á eftir 16. gr. laganna kemur ný grein, 16. gr. a, svohljóðandi:Faðir á rétt á tveggja vikna fæðingarorlofi sem taka má hvenær sem er fyrstu átta vikurnar eftir fæðingu eða heimkomu barns, þó skal réttur föður vera fjórar vikur ef um er að ræða alvarlegan sjúkleika barns eða alvarleg veikindi móður. Jafnframt á faðir rétt á fæðingarorlofi í tvær vikur til viðbótar fyrir hvert barn umfram eitt. Notfæri faðir sér ekki rétt samkvæmt þessari málsgrein fellur hann niður.
Réttur föður til fæðingarorlofs er bundinn því skilyrði að hann sé í hjúskap eða skráðri óvígðri sambúð með móður barnsins.
Faðir í fæðingarorlofi á rétt á greiðslu fæðingarstyrks í hlutfalli við lengd orlofsins. Þá á hann rétt á hlutfallslegri greiðslu fæðingardagpeninga í samræmi við ákvæði d-liðar 16. gr.
4. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 1998.Samþykkt á Alþingi 19. desember 1997.