Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 613, 126. löggjafarþing 310. mál: ráðstafanir í ríkisfjármálum 2001 (breyting ýmissa laga).
Lög nr. 174 21. desember 2000.
Um breytingu á lögum nr. 83/1989, um Þjóðarbókhlöðu og endurbætur menningarbygginga, með síðari breytingum.
Um afnám laga nr. 12/1952, um ráðstöfun erfðafjárskatts og erfðafjár ríkissjóðs til vinnuheimila.
Um breytingu á lögum nr. 83/1984, um erfðafjárskatt.
Um breytingu á lögum nr. 59/1992, um málefni fatlaðra, með síðari breytingu.
Um breytingu á erfðalögum, nr. 8/1962.
Gildistaka.
Þingskjal 613, 126. löggjafarþing 310. mál: ráðstafanir í ríkisfjármálum 2001 (breyting ýmissa laga).
Lög nr. 174 21. desember 2000.
Lög um ráðstafanir í ríkisfjármálum á árinu 2001.
1. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 1. tölul. 1. mgr. 2. gr., sbr. 3.–6. gr. laganna, skulu tekjur af sérstökum eignarskatti umfram 500 m.kr. renna í ríkissjóð á árinu 2001.2. gr.
Lögin falla úr gildi 1. janúar 2001.3. gr.
Ríkissjóður yfirtekur eignir og skuldir erfðafjársjóðs miðað við stöðu þeirra 31. desember 2000.4. gr.
Í stað orðanna „til erfðafjársjóðs“ í 1. mgr. 1. gr. laganna kemur: í ríkissjóð.5. gr.
- 1. tölul. 39. gr. laganna fellur brott.
- Þrátt fyrir ákvæði 40. gr. laganna, sbr. 4. gr. laga nr. 161/1996, um hlutverk Framkvæmdasjóðs fatlaðra greiðist á árinu 2001 af ráðstöfunarfé sjóðsins kostnaður við félagslega hæfingu og endurhæfingu skv. 27. gr. laganna og kostnaður vegna starfsemi stjórnarnefndar skv. 52. gr. laganna.
6. gr.
- Í stað orðsins „erfðafjársjóð“ í fyrri málslið 1. mgr. 55. gr. laganna kemur: ríkissjóð.
- Síðari málsliður 1. mgr. 55. gr. laganna fellur brott.
7. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2001.Samþykkt á Alþingi 16. desember 2000.