Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1499, 132. löggjafarþing 595. mál: eldi vatnafiska (heildarlög).
Lög nr. 57 14. júní 2006.

Lög um eldi vatnafiska.


I. KAFLI
Markmið, gildissvið og skilgreiningar.

1. gr.

Markmið.
     Markmið laga þessara er að skapa skilyrði til uppbyggingar eldis vatnafisks og efla þannig atvinnulíf og byggð í landinu. Við framkvæmd laganna skal þess ávallt gætt að sem minnst röskun verði á vistkerfi villtra ferskvatnsfiskstofna og að sjálfbærri nýtingu þeirra sé ekki stefnt í hættu.

2. gr.

Gildissvið.
     Lög þessi taka til eldis vatnafisks á íslensku forráðasvæði. Við framkvæmd þeirra skal gætt samræmis við framkvæmd laga um lax- og silungsveiði, laga um fiskrækt, laga um varnir gegn fisksjúkdómum og laga um eldi nytjastofna sjávar.

3. gr.

Skilgreiningar.
     Í lögum þessum, reglugerðum og reglum, settum á grundvelli þeirra, er merking hugtaka sem hér segir:
  1. Alifiskur: Fiskur sem alinn er eða látinn ganga sjálfala í tjörnum eða ílátum.
  2. Eldisdýr: Lifandi fiskur, krabbadýr eða lindýr frá eldisstöð, óháð þroskastigi, að meðtöldum dýrum sem lifa upprunalega villt en eru ætluð fyrir eldisstöð.
  3. Fiskeldi: Geymsla, gæsla og fóðrun vatnafiska og annarra vatnadýra, klak- og seiðaeldi, hvort sem er í söltu eða ósöltu vatni.
  4. Fiskeldisstöð: Staður þar sem vatn, sjór, land eða mannvirki er nýtt í þágu fiskeldis.
  5. Fiskrækt: Hvers konar aðgerðir sem ætla má að skapi eða auki fisk í veiðivatni.
  6. Fiskræktarslepping: Slepping samstofna smáseiða eða gönguseiða í því skyni að auka fiskigengd í veiðivatni.
  7. Fiskstofn: Hópur fiska sömu tegundar sem hrygnir á tilteknum stað og tíma en gerir það ekki í neinum mæli með öðrum hópum á öðrum stað eða tíma.
  8. Fiskur: Fiskur í merkingu laga þessara tekur til allra tegunda lagardýra sem lifa í vatni og sjó, hvort sem er við náttúrulegar aðstæður eða í eldi.
  9. Geldstofn: Vatnafiskur sem ekki framleiðir frjóar kynfrumur.
  10. Göngusilungur: Silungur er gengur úr sjó í ósalt vatn, svo sem sjóbirtingur (urriði) og sjóreyður (bleikja).
  11. Heilsárseldi: Hefðbundið eldi í sjókvíum frá 50 gramma göngustærð upp í markaðsstærð.
  12. Kvíaeldi: Fiskeldi í netkvíum (netbúrum) í fersku vatni eða söltu.
  13. Kynbætur: Markvisst val með tilliti til ákveðinna arfgengra eiginleika. Slíkir eiginleikar geta verið mikill vaxtarhraði eða síðkynþroski. Til undaneldis eru valdir fiskar sem sýna ákjósanlega eiginleika umfram aðra fiska í stofninum. Slíku vali er viðhaldið og það aukið með vali í hverri kynslóð.
  14. Lagardýr: Öll dýr með kalt blóð sem lifa og geta afkvæmi í sjó eða fersku vatni.
  15. Netlög: Vatnsbotn 115 metra út frá bakka landareignar að stöðuvatni, svo og sjávarbotn 115 metra út frá stórstraumsfjöruborði landareignar.
  16. Sjávarfiskur: Fiskur sem lifir allan sinn lífsferil í sjó.
  17. Sjór: Salt vatn utan árósa.
  18. Skiptieldi: Eldi á fiski í strandeldi upp í 250–1.000 grömm og framhaldseldi í sjókvíum upp í markaðsstærð.
  19. Strandeldi: Eldi fiska til slátrunar í tönkum eða kerum á landi.
  20. Straumvatn: Ósalt vatn, á eða ósasvæði sem í er greinilegur straumur, þá er enginn vöxtur er í, og um stórstraumsfjöru.
  21. Stöðuvatn: Ósalt vatn sem eigi er í greinilegur straumur annar en sá sem stafar af sjávarföllum, vindi eða aðrennsli í leysingum.
  22. Vatn: Ósalt vatn með föstu legi eða farvegi, straumvatn eða stöðuvatn.
  23. Vatnadýr: Öll dýr með kalt blóð sem lifa að hluta eða allan sinn lífsferil í fersku vatni.
  24. Vatnafiskur: Lax (Salmo salar), silungur (urriði (Salmo trutta), bleikja (Salvelinus alpinus) og regnbogasilungur (Oncorhynchus mykiss)), áll (Anguilla anguilla) eða annar vatnafiskur ef ræktaður verður.
  25. Vatnasilungur: Silungur sem elur allan aldur sinn í ósöltu vatni, svo sem vatnaurriði, vatnableikja (reyður), lækjasilungur og murta.
  26. Veiðivatn: Á eða stöðuvatn sem veiði er í eða mætti í vera ef fiskur væri ræktaður þar.
  27. Villtur fiskstofn: Fiskstofn þar sem meiri hluti fisks er klakinn í náttúrulegu umhverfi, elst þar upp og er kominn undan villtum foreldrum.
  28. Örmerkingar: Merkingar á fiski með málmflísum í trjónuna.


II. KAFLI
Stjórnsýsla.

4. gr.

Stjórnsýsla.
     Landbúnaðarráðherra fer með yfirstjórn mála samkvæmt lögum þessum, en framkvæmd stjórnsýslunnar er að öðru leyti í höndum Landbúnaðarstofnunar sem hefur eftirlit með því að ákvæðum laganna sé framfylgt.
     Starfa skal sérstök nefnd sem nefnist fiskeldisnefnd. Hún skal vera stjórnvöldum og hagsmunaaðilum til ráðgjafar og stefnumótunar um fiskeldi bæði á landi og í sjó. Í nefndinni eiga sæti fimm menn sem landbúnaðarráðherra skipar til fjögurra ára í senn, einn án tilnefningar sem jafnframt er formaður, einn samkvæmt tilnefningu Landssambands fiskeldisstöðva, einn samkvæmt tilnefningu sjávarútvegsráðherra, einn samkvæmt tilnefningu Hafrannsóknastofnunarinnar og einn samkvæmt tilnefningu Veiðimálastofnunar. Varamenn skal skipa með sama hætti og aðalmenn.
     Ráðherra skal í samræmi við fyrirmæli einstakra greina laga þessara setja nánari ákvæði um framkvæmd þeirra í reglugerð. Við setningu reglugerða skal ávallt leitað faglegrar umsagnar Landbúnaðarstofnunar og Veiðimálastofnunar.
     Fiskeldisstöðvar skulu hafa með sér samtök, Landssamband fiskeldisstöðva, sem gæta sameiginlegra hagsmuna fiskeldismanna.

5. gr.

Svæðaskipting fiskeldis.
     Landbúnaðarráðherra skal, ef vistfræðileg eða hagræn rök mæla með því, ákveða samkvæmt lögum þessum skiptingu fiskeldissvæða meðfram ströndum landsins. Áður en ákvörðun um slíka svæðaskiptingu er tekin skal ráðherra afla umsagnar umhverfisráðuneytis, Landbúnaðarstofnunar, fisksjúkdómanefndar, Landssambands fiskeldisstöðva, Landssambands veiðifélaga og Veiðimálastofnunar.

6. gr.

Staðbundið bann við starfsemi.
     Landbúnaðarráðherra getur, að fenginni umsögn Landbúnaðarstofnunar, fisksjúkdómanefndar og Veiðimálastofnunar, takmarkað eða bannað fiskeldi eða ákveðnar eldisaðferðir í einstaka fjörðum, flóum eða á landsvæðum sem teljast sérlega viðkvæm gagnvart starfsemi þeirri sem fram fer samkvæmt lögum þessum.
     Við ákvörðun ráðherra skv. 1. mgr. skal taka mið af því að markmið laga þessara er m.a. að vernda villta laxfiskastofna og hlífa þeim við fisksjúkdómum og öðrum neikvæðum vistfræðiáhrifum. Skal í því sambandi m.a. litið til staðsetningar eldisstöðva, stærðar þeirra, fjarlægðar frá veiðiám og veiðiverðmætis á viðkomandi svæði, þ.e. firði eða flóa. Jafnframt skal litið til þess hvort fiskeldissvæði séu á gönguleiðum lax og silungs og hvort straumar geti leitt sleppifisk í ár.
     Um skaðabætur vegna tjóns, sem leiðir af banni eða takmörkun samkvæmt grein þessari, fer eftir því sem mælt er fyrir um í 19. gr.

III. KAFLI
Rekstrarleyfi til fiskeldis.

7. gr.

Rekstrarleyfi.
     Til starfrækslu fiskeldisstöðva þarf rekstrarleyfi sem Landbúnaðarstofnun veitir.
     Áður en leyfi skv. 1. mgr. er veitt skal Landbúnaðarstofnun afla umsagnar fisksjúkdómanefndar og Fiskistofu. Einnig skal stofnunin leita umsagnar Veiðimálastofnunar um hvort náttúrulegar aðstæður á fyrirhuguðu starfssvæði fiskeldisstöðvar eða fyrirhugaðar eldistegundir, eldisstofnar eða eldisaðferðir gefi tilefni til hættu á neikvæðum vistfræðiáhrifum sem leitt getur af leyfisskyldri starfsemi.

8. gr.

Umsókn um rekstrarleyfi.
     Umsókn um rekstrarleyfi til fiskeldis skal vera skrifleg. Þar skulu m.a. koma fram upplýsingar um eignaraðild að fiskeldisstöð, fagþekkingu umsækjenda rekstrarleyfis á viðkomandi sviði, stærð stöðvar, framleiðslumagn hennar, eldistegundir og eldisaðferðir, matsskyldu vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum og starfsleyfi samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir.
     Umsókn skulu fylgja skilríki um heimild til afnota lands, vatns og sjávar. Umsókn skulu einnig fylgja áætlun um fjármögnun mannvirkja og annars búnaðar, rekstraráætlun, leyfi til mannvirkjagerðar, leyfi til starfsemi samkvæmt ákvæðum annarra laga sem varða slíkan atvinnurekstur, svo og önnur gögn sem Landbúnaðarstofnun eru nauðsynleg til að meta hvort skilyrði til útgáfu rekstrarleyfis séu fyrir hendi.

9. gr.

Málsmeðferð umsóknar.
     Við meðferð umsóknar um rekstrarleyfi til fiskeldis skal Landbúnaðarstofnun leggja mat á sjúkdómstengda og vistfræðilega þætti sem kunna að fylgja starfsemi fiskeldisstöðvar.
     Veiti fyrirliggjandi gögn ekki nægilegar upplýsingar til þess að mat verði lagt á þá þætti sem um getur í 1. mgr. getur Landbúnaðarstofnun lagt fyrir umsækjanda að láta í té frekari upplýsingar áður en rekstrarleyfi er veitt. Í því skyni getur stofnunin lagt fyrir hann að rannsaka á eigin kostnað hvort fyrirhuguð starfsemi fiskeldisstöðvar feli í sér aukna hættu á fisksjúkdómum eða hvort um neikvæð vistfræðileg áhrif geti orðið að ræða.
     Rannsóknir umsækjanda skv. 2. mgr. geta m.a. falist í merkingum á fiski, samantekt á veðurfars- og haffræðilegum upplýsingum, samantekt um aðra hagsmuni í veiðimálum og fiskeldi á svæðinu, mat á stöðu fiskstofna í helstu ám á svæðinu og mat á göngu laxfiska í nágrenni fyrirhugaðrar eldisstöðvar. Ráðherra getur í reglugerð mælt nánar fyrir um þau atriði sem rannsókn lýtur að.

10. gr.

Efni og útgáfa rekstrarleyfis.
     Telji Landbúnaðarstofnun að umsókn um rekstrarleyfi fullnægi skilyrðum laga þessara skal stofnunin gefa út rekstrarleyfi til tíu ára í senn. Ef vistfræðileg rök mæla með því er heimilt að gefa út rekstrarleyfi til skemmri tíma.
     Í rekstrarleyfi skulu vera ákvæði um stærð fiskeldisstöðvar og hvort um sé að ræða seiðaeldi, strandeldi, skiptieldi eða heilsárseldi. Þá skal í rekstrarleyfi kveðið á um leyfilegar tegundir í eldi, leyfilega eldisstofna, leyfilegt framleiðslumagn og skyldu rekstrarleyfishafa til að annast vöktun og rannsóknir á nánasta umhverfi sínu. Jafnframt skulu í rekstrarleyfi vera ákvæði um varúðarráðstafanir til að koma í veg fyrir að fiskur sleppi vegna eldis eða flutnings á fiski, og ákvæði um áætlun um aðgerðir til að endurheimta fisk sem sleppur.
     Ráðherra er í reglugerð heimilt að mæla fyrir um nánari skilyrði sem setja má í rekstrarleyfi. Slík skilyrði geta m.a. falið í sér skyldu leyfishafa til að standa að rannsóknum sambærilegum þeim sem greinir í 2. og 3. mgr. 9. gr. og skyldu til vöktunar á nærliggjandi veiðivötnum, vöktunar á kynþroska og heilbrigði fiska í eldi o.fl.
     Við útgáfu rekstrarleyfis skal þess ávallt gætt að fullnægt sé ákvæðum laga um mat á umhverfisáhrifum og laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.

IV. KAFLI
Starfræksla fiskeldisstöðva.

11. gr.

Upphaf starfsemi.
     Rekstrarleyfi samkvæmt lögum þessum tekur þá fyrst gildi þegar Landbúnaðarstofnun hefur gert úttekt á fiskeldisstöð. Markmið úttektar er að staðreyna eftir föngum að rekstrarleyfishafi sé fær um að fullnægja skilyrðum laga þessara og skilmálum rekstrarleyfis.
     Fiskeldisstöðvum er óheimilt að flytja eldisfisk eða seiði í fiskeldisstöð fyrr en rekstrarleyfi er fengið og úttekt hefur farið fram.

12. gr.

Friðunarsvæði í sjó.
     Til að tryggja eftir föngum að sem minnst röskun verði á starfsemi rekstrarleyfishafa samkvæmt lögum þessum er Landbúnaðarstofnun heimilt, að fenginni umsögn Veiðimálastofnunar og Hafrannsóknastofnunarinnar, að ákveða friðunarsvæði í sjó framan við frárennsli fiskeldisstöðva með sömu skilyrðum og kveðið er á um í 5. mgr. 15. gr. og 16. gr. laga um lax- og silungsveiði.
     Ef sannað þykir að veiðitakmarkanir skv. 1. mgr. hafi í för með sér tjón á fjárhagslegum hagsmunum eiganda sjávarjarðar skulu þeir bæta honum tjónið sem takmörkunin er til hagsbóta fyrir. Bætur skulu ákveðnar með mati skv. VII. kafla laga um lax- og silungsveiði.

13. gr.

Veiðar fisks sem sleppur.
     Rekstrarleyfishafi samkvæmt lögum þessum, sem missir vatnafisk úr fiskeldisstöð, skal án tafar tilkynna slíkan atburð til Landbúnaðarstofnunar.
     Rekstrarleyfishafa er skylt að grípa til allra þeirra ráðstafana, sem nauðsynlegar eru og í hans valdi standa, til þess að varna því að slíkur atburður, sem greinir í 1. mgr., valdi vistfræðilegu tjóni. Er honum í því skyni m.a. skylt, þrátt fyrir friðun á villtum fiski á svæðinu og án tillits til réttar eigenda sjávarjarða í netlögum, að gera allt sem í hans valdi stendur til að veiddur verði slíkur fiskur á svæði innan 200 metra frá stöðinni. Skal hver eldisstöð eiga og viðhalda nauðsynlegum búnaði í því skyni. Ráðherra skal í reglugerð setja nánari fyrirmæli um hvernig að slíkum veiðum skal staðið.
     Skylda til veiða skv. 2. mgr. takmarkast við þrjá sólarhringa frá því að ljóst er að fiskur hafi sloppið út, ef slíkur atburður gerist á göngutíma laxfiska, en veiðitíminn í slíkum tilvikum skal að öðru leyti háður ákvörðun Landbúnaðarstofnunar. Veiðar þær sem hér um ræðir skulu ávallt fara fram í samráði við fulltrúa Landbúnaðarstofnunar.
     Ef rekstrarleyfishafi hefur ekki hafið aðgerðir skv. 2. mgr. innan tólf klukkustunda frá því að ljóst er að eldisfiskur slapp út getur Landbúnaðarstofnun, ef þörf krefur, gefið út almenna heimild til veiða á svæðinu með sömu skilyrðum og fram koma í 2. mgr.
     Allan kostnað Landbúnaðarstofnunar og annarra stjórnvalda vegna nauðsynlegra aðgerða samkvæmt þessari grein skal rekstrarleyfishafi greiða.

14. gr.

Eftirlit og skýrslugjöf.
     Landbúnaðarstofnun skal hafa eftirlit með fiskeldisstöðvum í samræmi við fyrirmæli laga þessara. Eftirlitið skal ná til rekstrar- og fiskeldisþátta í starfsemi stöðvanna og þess að skilyrði í rekstrarleyfi séu haldin.
     Í því skyni skal rekstrarleyfishafi árlega gefa Landbúnaðarstofnun skýrslu um starfsemi sína. Þar skulu m.a. koma fram upplýsingar um framleiðslumagn stöðvar, eldisrými, fóðurnotkun, birgðir af fiski, uppruna hans, sjúkdóma og önnur óhöpp í rekstri, svo og önnur þau atriði sem stofnuninni eru nauðsynleg til virks eftirlits samkvæmt lögum þessum. Þá skal færð dagbók um starfsemina í fiskeldisstöðvum samkvæmt reglugerð sem landbúnaðarráðherra setur. Eftirlitsaðilum skal ætíð vera heimill aðgangur að eldisstöð og dagbók hennar.
     Ráðherra skal í reglugerð mæla nánar fyrir um eftirlitshlutverk Landbúnaðarstofnunar.
     Landbúnaðarstofnun er heimilt að fela aðilum sem hlotið hafa faggildingu samkvæmt lögum um faggildingu o.fl. að annast framkvæmd eftirlitsins samkvæmt sérstökum samningi. Þeir skulu bundnir þagnarskyldu um það sem þeir fá vitneskju um við framkvæmd eftirlitsins og leynt á að fara. Um þagnarskylduna gilda ákvæði 18. gr. laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, og skal brot á henni varða refsingu skv. 136. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940.
     Fyrir eftirlit Landbúnaðarstofnunar eða faggiltra eftirlitsaðila á hennar vegum skulu fiskeldisstöðvar greiða árlegt eftirlitsgjald sem miðast við raunkostnað við eftirlitið samkvæmt gjaldskrá sem landbúnaðarráðherra staðfestir. Eftirlitsgjald skal innheimt með einni greiðslu á ári eigi síðar en 1. nóvember ár hvert. Landbúnaðarstofnun skal annast innheimtu eftirlitsgjaldsins. Ef eftirlitsgjald er ekki greitt á eindaga reiknast hæstu lögleyfðir dráttarvextir af fjárhæð þess frá gjalddaga til greiðsludags. Eftirlitsgjald má innheimta með fjárnámi.

V. KAFLI
Niðurfelling rekstrarleyfis.

15. gr.

Forsendubrestur.
     Ef fiskeldisstöð hefur ekki innan 24 mánaða frá útgáfu rekstrarleyfis hafið starfsemi í samræmi við rekstraráætlun, sem umsókn fylgdi í samræmi við ákvæði 8. gr., er Landbúnaðarstofnun heimilt að fella rekstrarleyfi úr gildi.
     Áður en gripið er til niðurfellingar leyfis skv. 1. mgr. skal Landbúnaðarstofnun ávallt veita rekstrarleyfishafa skriflega viðvörun og hæfilegan frest til úrbóta.

16. gr.

Niðurfelling rekstrarleyfis.
     Landbúnaðarstofnun getur fellt niður rekstrarleyfi ef leyfishafi eða starfsmenn hans brjóta gegn ákvæðum laga þessara eða stjórnvaldsfyrirmælum sem sett eru á grundvelli þeirra. Einnig er heimilt að fella leyfi niður ef leyfishafi eða starfsmenn hans brjóta gegn skilyrðum rekstrarleyfis eða skilyrðum þess er að öðru leyti ekki fullnægt. Þá er og heimilt að fella rekstrarleyfi niður ef leyfishafi verður ófær um að stunda rekstur og þegar eldisfiskur sleppur ítrekað frá fiskeldisstöð.
     Áður en gripið er til niðurfellingar leyfis skv. 1. mgr. skal Landbúnaðarstofnun ávallt veita rekstrarleyfishafa skriflega viðvörun og hæfilegan frest til úrbóta.

VI. KAFLI
Ýmis ákvæði.

17. gr.

Framsal.
     Framsal, leiga og veðsetning á rekstrarleyfi til fiskeldis án skriflegs samþykkis Landbúnaðarstofnunar er óheimil. Slíku samþykki skal þinglýst í samræmi við ákvæði þinglýsingalaga.

18. gr.

Eldi annarra lagardýra en ferskvatnsfiska.
     Eldi annarra lagardýra en þeirra sem falla undir ákvæði laga þessara eða annarra laga, í kvía- og strandeldi, skal hlíta sömu reglum og eldi vatnafiska, eftir því sem við getur átt.

19. gr.

Skaðabætur.
     Ef rekstrarleyfishafi samkvæmt lögum þessum verður umfram aðra fyrir tjóni vegna þess að tekin er ákvörðun um bann eða takmörkun á starfsemi með heimild í 6. gr. laga þessara skal slíkt tjón bætt úr ríkissjóði. Um ákvörðun bóta fer samkvæmt almennum reglum.
     Ef sannað þykir að missir eldisfisks úr fiskeldisstöð valdi tjóni á hagsmunum veiðiréttarhafa, sem verndar njóta samkvæmt lax- og silungsveiðilögum, skal viðkomandi rekstrarleyfishafi bæta tjónið á grundvelli mats skv. VII. kafla laga um lax- og silungsveiði. Hið sama á við um tjón annarra þeirra sem hafbeit, fiskeldi eða fiskrækt stunda.
     Ef sannað þykir að starfsemi samkvæmt lögum þessum valdi tjóni í veiðivatni samkvæmt lax- og silungsveiðilögum í öðrum tilvikum en þeim sem greinir í 2. mgr. skal það tjón bætt eftir mati skv. VII. kafla þeirra laga, ef eigi semur.

20. gr.

Tilflutningur eldisfisks.
     Kynbættan eldislax er eingöngu heimilt að nýta til fiskeldis og óheimilt er að sleppa honum í fiskrækt eða hafbeit. Þó getur Landbúnaðarstofnun veitt rannsóknaraðila undanþágu til sleppitilrauna í óverulegum mæli, að fenginni umsögn Veiðimálastofnunar eða annarra fagaðila, sé Veiðimálastofnun umsækjandi.
     Flutningur eldistegunda, sem ekki eru tilgreindar í rekstrarleyfi, milli fiskeldisstöðva, svo og flutningur og sleppingar lifandi fisks og frjóvgaðra hrogna milli ótengdra vatnasvæða, er óheimill.
     Að fenginni umsögn fisksjúkdómanefndar getur Landbúnaðarstofnun veitt rekstrarleyfishafa undanþágu til flutnings á eldistegundum, sem ekki eru tilgreindar í rekstrarleyfi, milli fiskeldisstöðva ef ástæður mæla ekki gegn slíku. Landbúnaðarstofnun skal í þeim tilvikum einnig leita umsagnar Veiðimálastofnunar um hvort náttúrulegar aðstæður á fyrirhuguðu starfssvæði fiskeldisstöðvar eða vatnasvæði gefa tilefni til neikvæðra vistfræðilegra áhrifa.

21. gr.

Eldisbúnaður.
     Innflutningur á notuðum eldisbúnaði er óheimill. Til slíks búnaðar teljast eldiskvíar, eldisker, nætur, fóðrar, fiskidælur og tæki til flutnings á fiski. Þó er heimilt að flytja inn notuð vísindatæki og tæknibúnað sem sannanlega er hægt að sótthreinsa að mati fisksjúkdómanefndar. Sækja skal um leyfi fyrir innflutningi á notuðum vísinda- og tæknibúnaði til Landbúnaðarstofnunar sem getur heimilað innflutning að fenginni jákvæðri umsögn fisksjúkdómanefndar. Landbúnaðarráðherra skal í reglugerð setja nánari fyrirmæli um notkun flutningstækja og búnaðar sem notaður er í starfsemi rekstrarleyfishafa.

VII. KAFLI
Reglugerðarheimild, refsiákvæði o.fl.

22. gr.

Reglugerðarheimild o.fl.
     Landbúnaðarráðherra setur nánari reglur um framkvæmd laga þessara með reglugerð. Þar skal m.a. kveðið á um útgáfu rekstrarleyfa, merkingar á seiðum í kvíaeldi, fóðurnotkun, endurnýjun eldisbúnaðar, úttekt á fiskeldisstöðvum, eftirlit með starfsemi fiskeldisstöðva, flutning eldistegunda milli fiskeldisstöðva, flutning fisks og frjóvgaðra hrogna milli ótengdra vatnasvæða o.fl.
     Landbúnaðarstofnun er, eftir því sem þörf krefur, heimilt að setja svæðis- eða tímabundnar reglur á grundvelli slíkra reglugerða.

23. gr.

Um refsingar.
     Það varðar stjórnarmenn og framkvæmdastjóra rekstrarleyfishafa sektum eða fangelsi allt að tveimur árum, ef sakir eru miklar, ef eldisfiskur sleppur úr fiskeldisstöð þar sem umbúnaði við fiskeldið hefur verið áfátt vegna athafna eða athafnaleysis þeirra sem framið hefur verið af ásetningi eða gáleysi.
     Sömu refsingu varðar það stjórnarmenn og framkvæmdastjóra rekstrarleyfishafa ef þeir brjóta gegn ákvæðum 1. eða 2. mgr. 13. gr. laga þessara af ásetningi eða gáleysi.

VIII. KAFLI
Gildistökuákvæði.

24. gr.

Gildistaka o.fl.
     Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 2006. Um leið falla úr gildi 62.–77. gr., 93. gr. og 97. gr. laga nr. 76/1970, um lax- og silungsveiði, með síðari breytingum.
     Við gildistöku laga þessara verða eftirfarandi breytingar á lögum nr. 33/2002, um eldi nytjastofna sjávar:
  1. 4. gr. orðast svo:
  2.      Landbúnaðarráðherra skipar fimm menn í fiskeldisnefnd til fjögurra ára í senn, einn án tilnefningar sem jafnframt er formaður, einn samkvæmt tilnefningu Landssambands fiskeldisstöðva, einn samkvæmt tilnefningu sjávarútvegsráðherra, einn samkvæmt tilnefningu Hafrannsóknastofnunarinnar og einn samkvæmt tilnefningu Veiðimálastofnunar. Varamenn skal skipa með sama hætti og aðalmenn. Fiskeldisnefnd skal vera stjórnvöldum og hagsmunaaðilum til ráðgjafar og stefnumótunar um fiskeldi bæði á landi og í sjó.
  3. Orðin „sbr. 78. gr. laga nr. 76 25. júní 1970, um lax- og silungsveiði, með síðari breytingum“ í 5. gr. falla brott.


Ákvæði til bráðabirgða.
     Frá gildistöku laga þessara og til loka ársins 2010 skal starfa samráðsnefnd um framkvæmd þeirra, laga um lax- og silungsveiði, laga um Veiðimálastofnun, laga um fiskrækt og laga um varnir gegn fisksjúkdómum. Hlutverk samráðsnefndar er að fylgjast með og stuðla að greiðri framkvæmd og virkum skoðanaskiptum þeirra er lögin varða helst. Nefndin skal skipuð af landbúnaðarráðherra og í henni sitja ellefu fulltrúar tilnefndir af eftirtöldum aðilum: Landssambandi veiðifélaga, Landssambandi stangaveiðifélaga, Landssambandi fiskeldisstöðva, Félagi eigenda sjávarjarða, fisksjúkdómanefnd, Veiðimálastofnun, Landbúnaðarstofnun, Fiskistofu, umhverfisráðuneyti og sjávarútvegsráðuneyti. Þá skipar landbúnaðarráðherra einn nefndarmann án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar.

Samþykkt á Alþingi 3. júní 2006.