Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 603. máls.
140. löggjafarþing 2011–2012.
Nr. 36/140.

Þingskjal 1372  —  603. mál.


Þingsályktun

um fullgildingu fríverslunarsamnings milli ríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Hong Kong, Kína, samnings um vinnumál milli sömu aðila og landbúnaðarsamnings milli Íslands og Hong Kong, Kína.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd fríverslunarsamning milli aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu og Hong Kong, Kína sem undirritaður var af ráðherrum EFTA-ríkjanna og af Hong Kong, Kína 21. júní 2011 í Schaan, samning milli sömu aðila um vinnumál sem gerður var samhliða fríverslunarsamningnum og landbúnaðarsamning milli Íslands og Hong Kong, Kína sem einnig var undirritaður í Schaan sama dag.

Samþykkt á Alþingi 16. maí 2012.