Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 39. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 347  —  39. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um samstarf við Færeyjar og Grænland um samantekt
um orsakir fækkunar kvenna á Vestur-Norðurlöndum.


Frá utanríkismálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Unni Brá Konráðsdóttur, formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, og Þórð Þórarinsson, framkvæmdastjóra Vestnorræna ráðsins. Kostnaðarmat barst um málið frá mennta- og menningarmálaráðuneyti.
    Með tillögunni er lagt til að Alþingi skori á ríkisstjórnina að efna til samstarfs við stjórnvöld Færeyja og Grænlands um gerð samantektar yfir kannanir og rannsóknir sem lúta að orsökum þess að konum fækkar hlutfallslega meira en körlum meðal íbúa Vestur-Norðurlanda. Teknar verði saman niðurstöður slíkra rannsókna og kannana en einnig lagðar fram tillögur og stefnumörkun sem miðar að því að snúa þessari þróun við.
    Við umfjöllun málsins kom fram að um útgjaldalitla tillögu væri að ræða þar sem ætlunin væri að safna saman og gera yfirlit yfir gögn sem þegar liggja fyrir. Í kostnaðarmati mennta- og menningarmálaráðuneytis til nefndarinnar kemur fram að verði útfærslan á þá lund sem Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins hefur gert ráð fyrir megi búast við óverulegum kostnaði, en yrði verkið falið sérfræðingum mætti gera ráð fyrir allt að 5 millj. kr. kostnaði. Nefndin telur að mennta- og menningarmálaráðuneytið muni geta beitt sér fyrir framkvæmd tillögunnar með ráðdeild og hagsýni að leiðarljósi, eins og tillöguhöfundar gera ráð fyrir, og kostnaður verði þar með óverulegur.
    Tillagan byggist á ályktun nr. 3/2013 sem samþykkt var á ársfundi Vestnorræna ráðsins 20. ágúst 2013 í Narsarsuaq á Suður-Grænlandi en þar er áskorun þessa efnis beint til ríkisstjórnar Íslands og landsstjórna Færeyja og Grænlands.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.
    Guðlaugur Þór Þórðarson, Óttarr Proppé og Össur Skarphéðinsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 10. desember 2013.



Birgir Ármannsson,


form.


Vilhjálmur Bjarnason,


frsm.


Árni Þór Sigurðsson.



Frosti Sigurjónsson.


Sigurður Páll Jónsson.


Silja Dögg Gunnarsdóttir.