Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 566. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Þingskjal 1019  —  566. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu samninga um veiðar
úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2014.


Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Birgi Hrafn Búason frá utanríkisráðuneyti og Jóhann Guðmundsson og Kristján Frey Helgason frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta þrjá samninga um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum á árinu 2014 sem gerðir voru í Reykjavík 28. mars 2014. Um er að ræða sameiginlega bókun um niðurstöður fiskveiðiviðræðna um stjórnun veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum í Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2014; samkomulag milli Íslands og Noregs um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Noregs norðan 62°N, fiskveiðilögsögu Jan Mayen og efnahagslögsögu Íslands á árinu 2014; og samkomulag milli Íslands og Rússneska sambandsríkisins um veiðiheimildir innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 2014.
    Í athugasemdum við tillöguna kemur fram að í samræmi við ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) og fyrri ákvörðun aðila um nýtingarstefnu til lengri tíma var heildaraflamark ákveðið 418.487 lestir á árinu 2014. Er það veruleg lækkun frá undanförnum árum en aflamarkið árið 2013 var 619.000 lestir og 833.000 lestir árið 2012. Veiðiheimildir aðila árið 2014 skiptast í sömu hlutföllum og verið hefur frá árinu 2007 og koma 60.722 lestir í hlut Íslands.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Árni Þór Sigurðsson, Frosti Sigurjónsson, Guðlaugur Þór Þórðarson og Óttarr Proppé voru fjarstaddir við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 2. maí 2014.


Birgir Ármannsson,


form.


Ásmundur Einar Daðason,      frsm.


Silja Dögg Gunnarsdóttir.



Vilhjálmur Bjarnason.


Össur Skarphéðinsson.