Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 349. máls.
143. löggjafarþing 2013–2014.
Prentað upp.

Þingskjal 1100  —  349. mál.
Viðbót.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu
EES-nefndarinnar nr. 226/2013 um breytingu á II. viðauka
(Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir, vottun) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Önnu Katrínu Vilhjálmsdóttur frá utanríkisráðuneyti og Rúnar Guðjónsson frá innanríkisráðuneyti.
    Utanríkismálanefnd hefur áður, í samræmi við reglur um þinglega meðferð EES-mála, fjallað um tilskipun 2012/4/ESB, er varðar merkingu og rekjanleika sprengiefna, sbr. 2. gr. reglnanna, til mats á því hvort efnislegra aðlagana væri þörf. Málið var þá komið til umfjöllunar í vinnuhópi EFTA og var utanríkismálanefnd upplýst um málið skv. 2. mgr. 24. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, sbr. 2. og 7. gr. framangreindra reglna, með skeyti frá utanríkisráðuneyti dags. 2. maí 2013 ásamt fylgigögnum. Í því ferli hlaut gerðin efnislega umfjöllun í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis. Málið er einnig samstofna 537. máli 140. löggjafarþings sem nefndin hefur fjallað um.
    Með tillögunni er nú leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 226/2013, frá 13. desember 2013, um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir, vottun) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn tilskipun framkvæmdastjórnarinnar 2012/4/ESB frá 22. febrúar 2012 um breytingu á tilskipun 2008/43/EB um að koma á, samkvæmt tilskipun ráðsins 93/15/EBE, kerfi til að auðkenna og rekja sprengiefni til almennra nota. Sex mánaða frestur, samkvæmt EES- samningnum, til að aflétta stjórnskipulegum fyrirvara var veittur til 13. júní 2013. Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 4. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála frá 1. október 2010.
    Tilskipunin kveður á um samræmingu á markaðssetningu og kerfi fyrir auðkenningu, greinanleika og rekjanleika sprengiefna til nota við mannvirkjagerð. Í grundvallaratriðum er um að ræða tæknilegar reglur er varða öryggi vegna notkunar á sprengiefnum við mannvirkjagerð.
    Innleiðing tilskipunarinnar kallar á lagabreytingar hér á landi og mun innanríkisráðherra í því skyni leggja fram frumvarp til breytinga á vopnalögum, nr. 16/1998. Frumvarpið mun að líkindum koma til umfjöllunar í allsherjar- og menntamálanefnd.
    Ekki er gert ráð fyrir að innleiðing tilskipunarinnar hafi í för með sér stjórnsýslulegar eða efnahagslegar afleiðingar.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.
    Ásmundur Einar Daðason og Frosti Sigurjónsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 12. maí 2014.


Birgir Ármannsson,
form., frsm.
Vilhjálmur Bjarnason. Árni Þór Sigurðsson.
Guðlaugur Þór Þórðarson. Óttarr Proppé. Silja Dögg Gunnarsdóttir.
Össur Skarphéðinsson.