Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1465, 145. löggjafarþing 667. mál: skattar og gjöld (tryggingagjald, samsköttun milli skattþrepa).
Lög nr. 54 10. júní 2016.
I. KAFLI
Breyting á lögum um tryggingagjald, nr. 113/1990, með síðari breytingum.
II. KAFLI
Breyting á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum.
III. KAFLI
Breyting á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, nr. 45/1987, með síðari breytingum.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, með síðari breytingum.
V. KAFLI
Breyting á lögum um fjársýsluskatt, nr. 165/2011.
Gjalddagi ógreidds fjársýsluskatts og fjársýsluskatts sem undanþeginn er staðgreiðslu er 1. nóvember ár hvert og eindagi mánuði síðar.
VI. KAFLI
Breyting á tollalögum, nr. 88/2005, með síðari breytingum.
VII. KAFLI
Breyting á lögum um gjald af áfengi og tóbaki, nr. 96/1995, með síðari breytingum.
Ákvæði 1. gr. öðlast gildi og kemur til framkvæmda 1. júlí 2016.
Ákvæði 2.–4. og 7.–9. gr. öðlast gildi og koma til framkvæmda nú þegar.
Ákvæði 5. og 6. gr. öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. janúar 2016.
Þingskjal 1465, 145. löggjafarþing 667. mál: skattar og gjöld (tryggingagjald, samsköttun milli skattþrepa).
Lög nr. 54 10. júní 2016.
Lög um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta og gjöld (tryggingagjald, samsköttun milli skattþrepa o.fl.).
1. gr.
Í stað „5,90%“ í 3. mgr. 2. gr. laganna kemur: 5,40%.2. gr.
2. mgr. 53. gr. a laganna fellur brott.3. gr.
Á eftir orðunum „skal fylgja undirritaður ársreikningur“ í 2. málsl. 1. mgr. 90. gr. laganna kemur: með sundurliðunum og skýringum.4. gr.
4. mgr. 11. gr. laganna fellur brott.5. gr.
Orðin „eða greiðsla farið fram þá að hluta eða fullu“ í 2. málsl. ákvæðis til bráðabirgða XXX í lögunum falla brott.6. gr.
Á undan tollskrárnúmerunum 2204.1021–2204.1029 í h-lið viðauka við lögin kemur: 2203.0091–2203.0099.7. gr.
Á eftir 5. mgr. 10. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:Gjalddagi ógreidds fjársýsluskatts og fjársýsluskatts sem undanþeginn er staðgreiðslu er 1. nóvember ár hvert og eindagi mánuði síðar.
8. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 104. gr. laganna:- Við 2. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Óheimilt er að bjóða öðrum vörur verslunarinnar til sölu.
- Á eftir orðunum „skv. 2. mgr.“ í 3. mgr. kemur: þar á meðal áfengi og tóbak.
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:- 5. tölul. 1. mgr. orðast svo: Af samtals 6 einingum af sterku áfengi, léttvíni og/eða öli sem ferðamenn hafa meðferðis til landsins.
- 6. tölul. 1. mgr. orðast svo: Af samtals 11 einingum af sterku áfengi, léttvíni og/eða öli sem skipverjar á íslenskum skipum eða skipum í leigu íslenskra aðila hafa meðferðis eftir að hafa verið 15 daga eða lengur í ferð. Af samtals 6 einingum af sterku áfengi, léttvíni og/eða öli hafi ferð varað skemur en 15 daga. Skipstjóra, yfirstýrimanni, yfirvélstjóra og bryta, svo og matsveinum á farþega- og vöruflutningaskipum, er jafnframt heimilt að taka gjaldfrjálst aukalega til risnu um borð jafnstóran skammt og þeir mega hafa gjaldfrjálst samkvæmt þessum lið.
- 7. tölul. 1. mgr. orðast svo: Af samtals 5 einingum af sterku áfengi, léttvíni og/eða öli sem flugverjar, þ.m.t. flugverjar í aukaáhöfn, hafa meðferðis, eftir að hafa verið 15 daga eða lengur í ferð. Af samtals 3 einingum af sterku áfengi, léttvíni og/eða öli hafi ferð varað skemur en 15 daga.
- 2. mgr. orðast svo:
- Hverja 0,25 lítra af sterku áfengi, þ.e. áfengi sem í er meira en 21% af vínanda að rúmmáli.
- Hverja 0,75 lítra af léttvíni, þ.e. áfengi annað en öl sem í er 21% eða minna af vínanda að rúmmáli.
- Hverja 3 lítra af öli, sbr. 1. tölul. 1. mgr. 3. gr.
- Hverja 3 lítra af gosvíni, gerjaðri drykkjarvöru eða blöndu gerjaðra drykkjarvara og óáfengra drykkja sem flokkast undir vöruliði 2206 og 2208 enda sé varan að hámarki 6% að styrkleika.
10. gr.
Lög þessi öðlast gildi og koma til framkvæmda sem hér segir:Ákvæði 1. gr. öðlast gildi og kemur til framkvæmda 1. júlí 2016.
Ákvæði 2.–4. og 7.–9. gr. öðlast gildi og koma til framkvæmda nú þegar.
Ákvæði 5. og 6. gr. öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda 1. janúar 2016.
Samþykkt á Alþingi 2. júní 2016.