Ferill 102. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


146. löggjafarþing 2016–2017.
Þingskjal 161  —  102. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um jafnræði í skráningu foreldratengsla.


Flm.: Svandís Svavarsdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Birgitta Jónsdóttir, Einar Brynjólfsson, Björn Leví Gunnarsson, Ásta Guðrún Helgadóttir.


    Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að setja reglugerð um framkvæmd laga um þjóðskrá og almannaskráningu, nr. 54/1962, þar sem tryggt verði að jafnræði ríki með foreldrum barna með tilliti til skráningar foreldratengsla í þjóðskrá og afnumin verði sú mismunun sem nú á sér stað gagnvart mæðrum í samkynja hjúskap eða sambúð.

Greinargerð.

    Þessi þingsályktunartillaga var lögð fyrir 145. löggjafarþing haustið 2015 (146. mál) af Svandísi Svavarsdóttur og þremur öðrum þingmönnum Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs. Þar sem málið kom ekki til afgreiðslu á 145. þingi og forsendur eru enn hinar sömu er það lagt fyrir Alþingi á nýjan leik.
    Mæðrum í samkynja hjúskap eða skráðri sambúð er gert að afhenda Þjóðskrá Íslands yfirlýsingu um að barn þeirra sé getið með tilstyrk tæknifrjóvgunar, ella verður sú kona ein skráð foreldri sem ól barnið. Þessi krafa er ekki gerð til gagnkynhneigðs fólks í hjúskap eða skráðri sambúð sem hefur notið atbeina tæknifrjóvgunar við barnsgetnað og verður þessi framkvæmd því til þess að fólki er mismunað á grundvelli kynferðis.
    Þjóðskrá skýrir ákvörðun sína með því að ákvæði barnalaga, nr. 76/2003, krefjist þess að kona tilgreini föður barns síns. Lögin tryggja þannig rétt barns til vitneskju um uppruna sinn og á þeim grundvallar Þjóðskrá Íslands eftirfylgni sína við lög nr. 54/1962 hvað varðar kröfu um að mæður í samkynja hjúskap eða skráðri sambúð gefi yfirlýsingu um að barn þeirra sé getið með tilstyrk tæknifrjóvgunar.
    Samkvæmt hinni svokölluðu „pater est“-reglu er gengið út frá því sem vísu að eiginmaður eða sambúðarmaður konu sem elur barn sé faðir þess. Af augljósum náttúrulegum ástæðum er ekki hægt að ganga út frá þessu þegar tvær konur eru í hjónabandi eða sambúð og parinu fæðist barn.
    Án þess að ætlunin sé að rýra rétt einstaklinganna til að öðlast vitneskju um uppruna sinn sýnist það furðu mikill ósveigjanleiki að gera þá kröfu til samkynhneigðra kvenna einna að þær sanni aðild tæknifrjóvgunar að getnaði barnsins þegar málum er svo háttað að fjöldi gagnkynhneigðra einstaklinga í hjúskap eða sambúð nýtir sér einnig leið tæknifrjóvgunar til að geta börn 1 en þarf ekki að standa nein skil á upplýsingum um uppruna erfðaefnis þeirra.
    Þar sem Þjóðskrá Íslands hefur ekki sýnt neina tilburði til að breyta verklagi sínu þótt undan því hafi verið kvartað og ekki verður fallist á það sjónarmið sem haldið hefur verið fram af hennar hálfu að nauðsynlegt sé að breyta barnalögum til þess að hverfa megi frá mismununinni er lagt til að dómsmálaráðherra taki málið í sínar hendur og láti útbúa reglugerð sem bindi enda á þá mismunun sem mæður í samkynja hjúskap eða sambúð þurfa nú að þola af hendi Þjóðskrár Íslands.

1     Sjá skýrslur frá fæðingarskráningunni sem kvenna- og barnasvið Landspítalans hefur gefið út um árabil með upplýsingum um fjölda barna sem fæðast eftir tæknifrjóvgun.