Ferill 706. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


150. löggjafarþing 2019–2020.
Þingskjal 1214  —  706. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.


Frá utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2366 frá 25. nóvember 2015 um greiðsluþjónustu á innri markaðnum, um breytingu á tilskipunum 2002/65/EB, 2009/110/EB og 2013/36/ESB og á reglugerð (ESB) nr. 1093/2010 og niðurfellingu á tilskipun 2007/64/EB og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2055 frá 23. júní 2017 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2366 er lúta að tæknilegum eftirlitsstöðlum fyrir samstarf og upplýsingaskipti á milli lögbærra yfirvalda að því er varðar neytingu greiðslustofnana á staðfesturétti og frelsi til að veita þjónustu.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2019 frá 14. júní 2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn frá 2. maí 1992 (sbr. fskj. I), og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2366 frá 25. nóvember 2015 um greiðsluþjónustu á innri markaðnum, um breytingu á tilskipunum 2002/65/EB, 2009/110/EB og 2013/36/ESB og á reglugerð (ESB) nr. 1093/2010 og niðurfellingu á tilskipun 2007/64/EB og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2055 frá 23. júní 2017 um viðbætur við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2366 er lúta að tæknilegum eftirlitsstöðlum fyrir samstarf og upplýsingaskipti á milli lögbærra yfirvalda að því er varðar neytingu greiðslustofnana á staðfesturétti og frelsi til að veita þjónustu (sbr. fskj. II).
    Þar sem lagastoð var ekki fyrir hendi til innleiðingar á umræddri reglugerð var ákvörðun nr. 165/2019 tekin af sameiginlegu EES-nefndinni með stjórnskipulegum fyrirvara af Íslands hálfu. Í tillögu þessari er gerð nánari grein fyrir því hvað felst í slíkum fyrirvara, sbr. 103. gr. EES-samningsins. Jafnframt er gerð grein fyrir efni gerðarinnar sem hér um ræðir. Hún felur ekki í sér breytingar á þeim meginreglum sem í EES-samningnum felast.

2. Um upptöku ESB-gerða í EES-samninginn og um stjórnskipulegan fyrirvara.
    Á hverju ári er nokkur fjöldi ESB-gerða tekinn upp í EES-samninginn með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar. Þó er um að ræða tiltölulega lágt hlutfall af heildarfjölda þeirra gerða sem ESB samþykkir. Í skýrslu utanríkisráðuneytisins, „Gengið til góðs – skref í átt að bættri framkvæmd EES-samningsins“, kemur fram að á tímabilinu frá árinu 1994 til ársloka 2016 tók Ísland upp 13,4% þeirra gerða sem ESB samþykkti á sama tímabili.
    Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar, nema eitthvert þeirra beiti heimild skv. 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir. Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
    Almennt hafa íslensk stjórnvöld einungis gert stjórnskipulegan fyrirvara þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi, en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrárinnar að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu, en einnig hefur tíðkast að heimila stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt til samræmis við viðkomandi ákvörðun.
    Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á augljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.
    Umrædd ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar felur í sér breytingu á EES-samningnum en þar sem hún kallar á lagabreytingar hér á landi var hún tekin með stjórnskipulegum fyrirvara. Í samræmi við það sem að framan segir er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeirri breytingu á EES-samningnum sem í ákvörðuninni felst.

3. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2366 frá 25. nóvember 2015 um greiðsluþjónustu á innri markaðnum.
    Tilskipunin felur í sér nýjan heildarramma um greiðsluþjónustu sem tekur við af reglum tilskipunar 2007/64/EB um greiðsluþjónustu á innri markaðnum. Nýju tilskipuninni er meðal annars ætlað að greiða fyrir nýsköpun á sviði greiðsluþjónustu, svo sem með net- og farsímagreiðslum, efla samkeppni á markaði greiðsluþjónustu og tryggja betur öryggi neytenda.

4. Lagabreytingar og hugsanleg áhrif hér á landi.
    Tilskipunin verður innleidd með nýjum heildarlögum um greiðsluþjónustu um sama efni og við gildistöku þeirra falla lög um greiðsluþjónustu, nr. 120/2011, úr gildi. Sú leið er í samræmi við þá leið sem farin var í ESB þar sem eldri tilskipun um greiðsluþjónustu féll úr gildi við gildistöku endurskoðaðrar tilskipunar. Í kjölfar gildistöku nýrra laga um greiðsluþjónustu mun Seðlabanki Íslands setja reglur til nánari útfærslu, sem innleiða munu afleiddar gerðir greiðsluþjónustutilskipunarinnar.
    Helstu breytingar sem innleiðing tilskipunarinnar hefur í för með sér eru að gildissvið laga um greiðsluþjónustu verður víðara en áður. Nýir aðilar munu koma inn á markað greiðsluþjónustu og mun sú þjónusta sem þeir veita neytendum falla undir gildissvið laganna. Þessum aðilum ber annars vegar að skrá sig hjá Fjármálaeftirlitinu og hins vegar að fá starfsleyfi sem greiðslustofnun. Eftirlit með þeim verður því bætt. Á sama tíma munu þessir nýju aðilar geta fengið aðgang að greiðslureikningum neytenda með þeirra samþykki hjá bönkum í gegnum ákveðið viðmót sem bönkum ber að bjóða upp á. Tryggja þarf öryggi og skilvirkni þessara samskipta og verður lögunum meðal annars ætlað að tryggja það.


5. Samráð við Alþingi.
    Í reglum Alþingis um þinglega meðferð EES-mála er kveðið á um að ESB-gerðir, sem fyrirhugað er að fella inn í EES-samninginn en munu ekki taka gildi á Íslandi nema að undangengnu samþykki Alþingis, skuli sendar utanríkismálanefnd til umfjöllunar. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2366 var send utanríkismálanefnd til samræmis við framangreindar reglur. Í bréfi utanríkismálanefndar, dags. 29. nóvember 2018, kemur fram að nefndin hafi fjallað um gerðina og telur ekki þörf á frekari umfjöllun. Í bréfinu eru ekki gerðar athugasemdir við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn.


Fylgiskjal I.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 165/2019 frá 14. júní 2019 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.


www.althingi.is/altext/pdf/150/fylgiskjol/s1214-f_I.pdf


Fylgiskjal II.


Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2366 frá 25. nóvember 2015 um greiðsluþjónustu á innri markaðnum, um breytingu á tilskipunum 2002/65/EB, 2009/110/EB og 2013/36/ESB og á reglugerð (ESB) nr. 1093/2010 og niðurfellingu á tilskipun 2007/64/EB.


www.althingi.is/altext/pdf/150/fylgiskjol/s1214-f_II.pdf