Ferill 216. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 366  —  216. mál.
Síðari umræða.



Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvörðunar sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 25/2020 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn.

Frá utanríkismálanefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Gaut Sturluson frá utanríkisráðuneyti og Ólaf Hjörleifsson frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 25/2020 frá 7. febrúar 2020 um breytingu á XIII. viðauka (Flutningastarfsemi) við EES-samninginn frá 2. maí 1992, og fella inn í samninginn reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1042 frá 23. júlí 2018 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 965/2012 að því er varðar tæknilegar kröfur og stjórnsýslumeðferðir er varða stuðningsáætlanir, sálrænt mat á flugáhöfn, sem og kerfisbundna og handahófskennda skimun fyrir geðvirkum efnum til að tryggja heilbrigði flugliða og öryggis- og þjónustuliða og að því er varðar uppsetningu á landslagsgreiningarkerfi í nýlega framleiddar flugvélar, knúnar hverfihreyflum með 5700 kg skráðan hámarksflugtaksmassa eða minna og samþykktar hafa verið til að bera sex til níu farþega.
    Framsetning tillögunnar telst að mati nefndarinnar í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
    Nefndin leggur til að tillagan verði samþykkt.

Alþingi, 18. nóvember 2020.

Sigríður Á. Andersen,
form.
Ari Trausti Guðmundsson, frsm. Bryndís Haraldsdóttir.
Gunnar Bragi Sveinsson. Logi Einarsson. Njáll Trausti Friðbertsson.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir. Silja Dögg Gunnarsdóttir. Þorgerður K. Gunnarsdóttir.