Ferill 112. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


151. löggjafarþing 2020–2021.
Nr. 8/151.

Þingskjal 525  —  112. mál.


Þingsályktun

um ráðstafanir til að draga úr notkun pálmaolíu á Íslandi.


    Alþingi ályktar að fela ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að vinna áætlun um takmörkun á notkun pálmaolíu í allri framleiðslu á Íslandi og leggja fram frumvarp um bann við notkun hennar í lífdísil. Ráðherra kynni Alþingi niðurstöður sínar og leggi fram frumvarp til laga um bann við notkun pálmaolíu í lífdísil eigi síðar en í lok árs 2021.

Samþykkt á Alþingi 8. desember 2020.