Ferill 507. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
151. löggjafarþing 2020–2021.
Þingskjal 853 — 507. mál.
Frumvarp til laga
um brottfall og breytingu á ýmsum lögum og ákvæðum um presta, trúfélög og lífsskoðunarfélög (sjálfstæði kirkjunnar).
Flm.: Björn Leví Gunnarsson, Jón Þór Ólafsson, Sara Elísa Þórðardóttir, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
1. gr.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
5. gr.
6. gr.
7. gr.
8. gr.
9. gr.
10. gr.
11. gr.
12. gr.
13. gr.
14. gr.
15. gr.
16. gr.
17. gr.
18. gr.
19. gr.
20. gr.
21. gr.
22. gr.
23. gr.
24. gr.
25. gr.
26. gr.
a. Í stað orðanna „eða prest“ í c-lið 1. mgr. 99. gr. laganna kemur: prest, eða forstöðumann trúfélags eða lífsskoðunarfélags.
b. Á eftir orðunum „forstöðumaður trúfélags“ í b-lið 2. mgr. 119. gr. laganna kemur: eða lífsskoðunarfélags.
c. Á eftir orðunum „forstöðumanni trúfélags“ í 3. mgr. 119. gr. laganna kemur: eða lífsskoðunarfélags.
27. gr.
Ekki er heimilt að hlusta á símtöl fanga við lögmann, fulltrúa trúfélags eða lífsskoðunarfélags sem fangi tilheyrir, heilbrigðisstarfsfólk, opinberar stofnanir eða umboðsmann Alþingis.
28. gr.
Greinargerð.
Lagt er til að ýmis lög með ákvæðum um presta, trúfélög eða lífsskoðunarfélög falli brott eða taki breytingum. Lögin sem falla brott eða breytast, bæði gömul og ný, eru lagaleg afskipti af því hvernig prestar, trúfélög eða lífsskoðunarfélög haga starfsemi sinni.
Ekki er vitað til þess að önnur trúfélög, eða önnur félagasamtök, séu með starfsreglur sínar skráðar í landslög, umfram almenn lög um slík félög. Lagafrumvarpið jafnar því stöðu biskupsstofu og sókna landsins á við önnur trúfélög. Með þessu getur þjóðkirkjan einnig einfaldlega breytt reglum sínum á eigin forsendum og án afskipta Alþingis.
Ljóst er líka að margir þeirra lagabálka sem taldir eru upp í frumvarpinu eru löngu úr sér gengnir og eiga ekki lengur við. Meðal þess sem þarna má finna er skylda presta til að heimsækja öll sóknarbörn sín tvisvar á ári og heimild sem nær eingöngu til biskupa að undanskilja sóknarbörn frá fermingu. Má því kalla þetta frumvarp lið í tiltekt í lagasafni landsins og einföldun regluverks.
Með þessari tiltekt er líka lagt af að biskup Íslands, vígslubiskupar, prófastar og prestar þjóðkirkjunnar séu embættismenn samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins enda erfitt að sjá hvaða stjórnsýsluhlutverki þessi embætti eiga að gegna í opinberri stjórnskipan.
Stærsta breyting þessa frumvarps er niðurfelling laga um sóknargjöld. Í stað þess að innheimta þau með hlutfalli af skatttekjum munu trúfélög landsins þurfa að sjá sjálf um innheimtu sóknargjalda. Munu þau því sjálf geta ákvarðað hversu há sóknargjöldin skulu vera og hvernig innheimta þeirra fer fram. Einnig er trú- og lífsskoðunarfélögum í sjálfsvald sett hvort þau hyggist yfirleitt innheimta félags- og sóknargjöld.