Ferill 18. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
152. löggjafarþing 2021–2022.
Þingskjal 18 — 18. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 (framlög úr fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga).
Frá umhverfis- og samgöngunefnd.
1. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 13. gr. b er Jöfnunarsjóði sveitarfélaga heimilt á grundvelli samnings að ráðstafa framlagi úr fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að upphæð 50 millj. kr. árlega á árunum 2022–2025 til verkefnisins Römpum upp Ísland, í þeim tilgangi að bæta aðgengi fyrir fatlað fólk á landsvísu.
2. gr.
Greinargerð.
Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga var komið á fót í tengslum við yfirfærslu á málefnum fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga 1. janúar 2011. Hlutverk sjóðsins var að taka yfir réttindi og skyldur tengdar fasteignum í eigu ríkisins sem nýttar höfðu verið í þjónustu við fatlað fólk. Jafnframt tók sjóðurinn yfir eignir, réttindi og skyldur Framkvæmdasjóðs fatlaðra sem var lagður niður. Fasteignasjóðurinn er rekinn innan Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og kveðið er á um hlutverk hans og markmið í 13. gr. b í lögum um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1994.
Með lögum nr. 9/2018 var lögum um tekjustofna sveitarfélaga breytt og fasteignasjóði markað það hlutverk að veita sveitarfélögum framlög vegna uppbyggingar eða breytinga á fasteignum sem nýttar eru í þjónustu við fatlað fólk með miklar eða sértækar stuðningsþarfir. Með lögum nr. 37/2020, um breytingu á ýmsum lögum til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar heimsfaraldurs kórónuveiru (frekari aðgerðir), var hlutverk sjóðsins víkkað og veitir hann nú sveitarfélögum einnig framlög vegna úrbóta í ferlimálum fatlaðs fólks, einkum hvað varðar aðgengi að fasteignum, mannvirkjum og útisvæðum á vegum sveitarfélaga. Í ljósi þess að framlög vegna verkefnisins Römpum upp Ísland munu ekki renna með beinum hætti til tiltekins sveitarfélags og verkefnið mun ekki fela í sér uppsetningu á römpum eingöngu við fasteignir eða svæði sem eru á vegum sveitarfélaga, eins og áskilið er í 1. og 3. mgr. 13. gr. b laga um tekjustofna sveitarfélaga, er nauðsynlegt að leggja fram þetta frumvarp. Með frumvarpinu verður fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga veitt skýr lagaheimild til að veita árlegt framlag, allt að 50 millj. kr., árlega í fjögur ár vegna þessa verkefnis. Ekki er því gert að skilyrði að framlagið renni til tiltekins sveitarfélags eða til fasteigna, mannvirkja eða útisvæða á vegum sveitarfélaga.
Áréttað er að um er að ræða heimild en ekki skyldu til að veita umrætt framlag og jafnframt er gert ráð fyrir að framlagið muni byggjast á samningi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga við þá aðila sem halda utan um verkefnið og að í slíkum samningi verði fjallað um skyldur og réttindi aðila.
Efni frumvarpsins gefur ekki tilefni til þess að ætla að það stangist á við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar Íslands. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á úthlutunarheimildum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem munu hafa jákvæð áhrif á aðgengismál fatlaðs fólk. Frumvarpið hefur hins vegar hvorki áhrif á heildartekjur eða heildarútgjöld Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga né útgjöld eða tekjur sveitarfélaga í heild þar sem gert er ráð fyrir að hið árlega framlag sem veitt verður til verkefnisins verði hluti af þeim framlögum sem þegar eru veitt úr fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á grundvelli 1. og 2. mgr. 13. gr. b laga um tekjustofna sveitarfélaga. Fjárhagsleg áhrif frumvarpsins á ríkissjóð eru engin.