Ferill 176. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 188  —  176. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011 (leiðrétting, framlenging gildistíma).

Frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.



1. gr.

    Í stað 3. mgr. 6. gr. laganna kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
    Heildarfjárhæð flutningsjöfnunarstyrkja skal ákveðin með reglugerð sem ráðherra setur. Flutningsjöfnunarstyrkir til hvers framleiðanda mega ekki fara fram úr fjárhæð þeirri í gjaldmiðli Evrópusambandsins á þriggja ára tímabili sem Evrópusambandið tilgreinir sem minniháttaraðstoð Eftirlitsstofnunar EFTA og er þar af leiðandi ekki tilkynningarskyld til stofnunarinnar. Við umreikning yfir í íslenskar krónur skal miða við gengi samkvæmt reglum sem kveðið er á um í reglugerð sem ráðherra setur. Við útreikning hámarksfjárhæðar skal reikna með aðra styrki sem framleiðandi hefur fengið frá opinberum aðilum. Í þessu sambandi eru þó undanskildir sérstakir styrkir sem aðili hefur fengið samkvæmt styrkjareglum sem Eftirlitsstofnun EFTA hefur samþykkt.

2. gr.

    Í stað dagsetningarinnar „31. desember 2025“ í 1. málsl. 12. gr. laganna kemur: 31. desember 2030.

3. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Frumvarp þetta er samið í innviðaráðuneytinu í samvinnu við Byggðastofnun og felur í sér lagfæringu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011, og framlengingu á gildistíma þeirra. Flutningsjöfnunarstyrkjum úr ríkissjóði, sem ætlað er að styðja við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni, var komið á með setningu laga um svæðisbundna flutningsjöfnun, sem tóku gildi 1. janúar 2012. Var markmiðið að jafna þannig flutningskostnað framleiðenda sem staðsettir eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa því við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar. Lögin giltu upphaflega til ársloka 2013, en með lögum nr. 132/2013 var gildistími þeirra framlengdur til ársloka 2018 og með lögum nr. 125/2018 var gildistíminn framlengdur til ársloka 2025.
    Samkvæmt lögunum hefur Byggðastofnun umsjón með afgreiðslu flutningsjöfnunarstyrkja, leggur mat á umsóknir og kallar eftir þeim gögnum sem nauðsynleg eru. Í 5. gr. laganna er fjallað um skilyrði styrkveitinga. Þar kemur m.a. fram sú meginregla sem getið er um hér að framan, þ.e. að styrkir séu veittir til framleiðenda sem staðsettir eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn og búa við skerta samkeppnisstöðu vegna hærri flutningskostnaðar. Einnig segir að styrkir séu veittir annars vegar vegna flutnings frá styrksvæði ef framleiðslan er annaðhvort fullunnin eða hálfunnin vara, þ.e. vara sem hefur farið í gegnum ákveðið framleiðsluferli á styrksvæðinu, og hins vegar vegna flutnings á hrávöru eða hálfunninni vöru til styrksvæðis, þ.e. vöru sem vantar til að endanleg framleiðsla á vöru geti átt sér stað á styrksvæðinu. Styrksvæðin eru síðan tiltekin sérstaklega í 4. gr. og í 6. gr. er fjallað um útreikning framlaga.
    Frekari upplýsingar um svæðisbundna flutningsjöfnun er að finna í skýrslu sem innviðaráðherra gefur Alþingi ár hvert um framkvæmd og þróun svæðisbundinnar flutningsjöfnunar, sbr. 10. gr. laganna. Nefna má að í skýrslu ráðherra fyrir árið 2024 sem fyrirhugað er að leggja fram á 156. þingi er rakið að fjárheimildir ársins til veitingar styrkja voru 163,3 millj. kr. Þegar samþykktar umsóknir eru hærri en fjárveiting ársins, að frádregnum kostnaði Byggðastofnunar, eru styrkveitingar lækkaðar hlutfallslega í samræmi við það, sbr. 4. mgr. 6. gr. Samþykktar styrkumsóknir voru 467,7 millj. kr. á árinu 2024 og var útgreiðsluhlutfall því 34,4%. Í skýrslu ráðherra eru styrkveitingar jafnframt flokkaðar nánar, m.a. eftir atvinnugreinum og landsvæðum.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Við undirbúning á framlagningu frumvarps til laga um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun fyrir 154. löggjafarþing, þar sem lagðar voru til breytingar á 6. gr. laganna, voru gerðar athugasemdir við að í 3. mgr. 6. gr. væri að finna tilvísun til 200.000 evra. Bent var á að íslenskar krónur væru lögeyrir hér á landi og ætti það að endurspeglast í íslenskri löggjöf nema veigamikil rök mæltu með því að víkja frá því. Með frumvarpi þessu er m.a. ætlunin að bæta úr þessu.
    Við vinnslu þessa frumvarps kom í ljós að ekki er lengur miðað við gengi sem Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) gefur út og birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins og á vef stofnunarinnar við umreikning yfir í íslenskar krónur eins og getið er um í 2. málsl. 3. mgr. 6. gr. Við nánari eftirgrennslan hefur frá 1. janúar 2020 verið stuðst við annað verklag samkvæmt fyrirmælum frá Evrópu og hefur því verklagi verið fylgt við útreikninga frá 1. janúar 2020.
    Þá liggur fyrir að löggjöfin muni renna sitt skeið hinn 31. desember 2025. Fyrir liggur vilji til að viðhalda þeirri styrkvæðingu sem lögin kveða á um enda er gert ráð fyrir fjármögnun styrkjanna í fjármálaáætlun til næstu fimm ára, þ.e. til ársins 2030.

3. Meginefni frumvarpsins.
    Í 1. málsl. 3. mgr. 6. gr. laganna kemur fram að flutningsjöfnunarstyrkir til hvers framleiðanda skuli aldrei vera hærri en sem nemur 200.000 evrum á þriggja ára tímabili. Síðan segir að við umreikning yfir í íslenskar krónur skuli miða við gengi sem ESA gefi út og birt sé í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins og á vef stofnunarinnar. Íslensk króna er lögeyrir hér á landi skv. 1. mgr. 1. gr. laga um gjaldmiðil Íslands, nr. 22/1968. Það á að endurspeglast í íslenskri löggjöf nema veigamikil rök mæli gegn því.
    Viðmiðið 200.000 evrur á hverju þriggja ára tímabili er til komið þar sem fjárhæðin var hámark þess styrks sem þá féll undir reglur um minniháttaraðstoð (de minimis) ESA og var þar af leiðandi ekki tilkynningarskyld til ESA. Þessi fjárhæð hefur nú hækkað upp í 300.000 evrur frá 1. janúar 2024.
    Í 1. gr. frumvarpsins er lagt til að í stað 3. mgr. 6. gr. laganna komi ný málsgrein þar sem kveðið er á um að heildarfjárhæð flutningsjöfnunarstyrkja skuli ákveðin með reglugerð sem ráðherra setur. Fram kemur að þessir styrkir megi ekki fara fram úr fjárhæð þeirri á þriggja ára tímabili sem Evrópusambandið tilgreinir sem minniháttaraðstoð Eftirlitsstofnunar EFTA og er þar af leiðandi ekki tilkynningarskyld til stofnunarinnar.
    Styrkurinn þarf því ekki að ná hámarksfjárhæðinni, þ.e. 300.000 evrum, á þriggja ára tímabili heldur má hann ekki fara yfir fjárhæðina eða þá fjárhæð sem Evrópusambandið tiltekur hverju sinni.
    Á tímabilinu 2000–2019 var sett árlegt gengi fyrir hvern gjaldmiðil EFTA-ríkis Evrópska efnahagssvæðisins sem miðað var við þegar evrur voru umreiknaðar yfir í krónur. Frá og með 1. janúar 2020 tók við nýtt kerfi sem notast hefur verið við síðan þá. Nýja kerfið notar almennt mánaðarlega/daglega umreikningsgengi gjaldmiðla og er samþykkt af framkvæmdastjórn Evrópusambandsins. Reglurnar má nálgast á vef EFTA en reglur verða teknar upp í reglugerð sem ráðherra setur.
    Gert er ráð fyrir að sett verði reglugerð þar sem kveðið verði á um framangreindar reglur og um hámarksfjárhæðina í evrum. Breytingareglugerðin verði birt samhliða birtingu laganna nái frumvarpið fram að ganga.
    Þá er lagt til að gildistími laganna verði framlengdur til loka árs 2030. Fyrir lok gildistímans verði metið hvort tilefni sé til að halda flutningsjöfnunarstyrkjum til streitu.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Í athugasemdum með frumvarpi því er varð að lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011 (371. mál á 140. lögþ.) er rakin forsaga þess að lögin voru sett og þær forsendur sem lágu að baki því kerfi sem komið var á. Kemur þar m.a. fram að flutningsjöfnunarstyrkir til framleiðenda framleiðsluvara sem falla undir C-bálk í íslensku atvinnugreinaflokkuninni ÍSAT2008 flokkist sem ríkisstyrkir samkvæmt reglum EES-samningsins og eru ákvæði laganna sniðin að ríkisstyrkjareglum samningsins.
    Þak er hins vegar sett á styrki til hvers framleiðanda sem nemur nú 300.000 evrum á hverju þriggja ára tímabili, eins og áður er rakið. Inn í þá fjárhæð skal einnig reikna aðra styrki sem framleiðandi hefur fengið frá opinberum aðilum. Með því að setja þetta hámark á styrki fellur ríkisaðstoðin undir reglur Evrópuréttar um minniháttaraðstoð (de minimis) og er því ekki tilkynningarskyld til ESA. Áfram er gert ráð fyrir að hámarksstyrkur til framleiðanda geti ekki numið hærri upphæð en 300.000 evrum og er efni frumvarpsins því ekki tilkynningarskylt til ESA.
    Frumvarpið þykir ekki fela í sér álitaefni sem kalli á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar.

5. Samráð.
    Drög að frumvarpinu voru birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda 3.-18. febrúar 2025 (mál nr. S-11/2025). Alls var ellefu hagsmunaaðilum boðið sérstaklega að gera athugasemdir við frumvarpið. Tvær umsagnir bárust, annars vegar frá Samtökum iðnaðarins og hins vegar frá Samtökum fyrirtækja í landbúnaði.
    Í umsögn Samtaka iðnaðarins kemur fram að samtökin styðji markmið frumvarpsins um að jafna aðstöðumun fyrirtækja á landsbyggðinni sem búa við hærri flutningskostnað en fyrirtæki í þéttbýli, líkt og fram hafi komið í fyrri umsögnum samtakanna um málið. Sérstaklega telja samtökin jákvætt að gildistími laganna verði framlengdur til ársins 2030. Þetta skapi aukinn fyrirsjáanleika fyrir fyrirtæki í framleiðsluiðnaði sem treysta á þennan stuðning. Þá hvetja samtökin stjórnvöld til að fylgja lögunum og opinberum stefnum við framkvæmd. Benda samtökin á að framleiðslufyrirtæki treysti á fyrirsjáanleika í rekstri og eigi það sérstaklega við um smærri framleiðendur og annan viðkvæman rekstur. Samtökin vilja vekja athygli á því að fjárveitingar til flutningsjöfnunar hafi ekki fylgt vaxandi flutningskostnaði og vísa í umsögn Samtaka fyrirtækja í landbúnaði máli sínu til stuðnings. Árið 2023 nam útgreiðsluhlutfall styrkja 54,6%, en fyrir árið 2024 var hlutfallið einungis 34,4%, líkt og þar kemur fram. Þetta dragi verulega úr áhrifum laganna og þeim jákvæðu markmiðum sem að sé stefnt og dragi þannig úr samkeppnisstöðu framleiðslufyrirtækja á landsbyggðinni. Til að ná markmiðum laganna sé nauðsynlegt að fjárhæðir styrkja fylgi þróun flutningskostnaðar. Samtök iðnaðarins leggja því áherslu á mikilvægi þess að fjárveitingar verði endurskoðaðar reglulega og að tryggt verði að raunverulegur stuðningur við fyrirtæki í iðnaði á landsbyggðinni haldist í hendur við kostnaðarþróun.
    Í umsögn Samtaka fyrirtækja í landbúnaði kemur fram að samtökin styðji áform um breytingar á lögunum. Markmið laganna sé að styðja við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni sem býr við skerta samkeppnisstöðu vegna lengri flutningsleiða og þar með hærri flutningskostnaðar. Samtökin benda á að heildarupphæð umsókna hafi aukist mjög undanfarin ár sökum hækkandi flutningskostnaðar án þess að fjárveitingar til svæðisbundinnar flutningsjöfnunar hafi aukist. Þannig var sú fjárhæð sem sett var á fjárlög ekki fullnýtt fyrr en fyrir árið 2018, þegar heildarupphæð umsókna var í fyrsta sinn hærri en það fé sem var til ráðstöfunar. Síðan þá hefur hlutfall greiddra styrkja af umsóknum dregist saman ár frá ári og árið 2023 var útgreiðsluhlutfallið einungis 54,6%. Fram kemur í umsögninni að í greinargerð frumvarpsdraganna komi fram að fjárveitingar til svæðisbundinnar flutningsjöfnunar hafi verið 163,3 millj. kr. árið 2024 og að útgreiðsluhlutfallið hafi farið niður í 34,4%. Ætla megi að þetta hlutfall haldi áfram að lækka með vaxandi flutningskostnaði. Þessi þróun leiðir af sér að markmiði laganna um að styðja við framleiðsluiðnað og atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni sem býr við skerta samkeppnisstöðu vegna lengri flutningsleiða og þar með hærri flutningskostnað verði ekki náð á sama hátt og áður. Styrkurinn er mikilvægt verkfæri til þess að bæta hluta þess aðstöðumunar sem fyrirtæki og framleiðendur sem staðsettir eru fjarri innanlandsmarkaði eða útflutningshöfn búa við. Því er mikill ávinningur af því að fjárveitingar til verkefnisins haldist í hendur við vaxandi flutningskostnað.

6. Mat á áhrifum.
    Samfélagslegur ávinningur af samþykkt frumvarpsins felur í sér að stuðningur til minni framleiðanda á landsbyggðinni heldur áfram til 2030. Breytingarnar eru í samræmi við byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036 og stuðla að fjölbreyttu atvinnulífi og búsetufrelsi.
    Byggðastofnun fer með framkvæmd laga um svæðisbundna flutningsjöfnun og mun frumvarpið ekki hafa áhrif á verkefni stofnunarinnar en reikna má með að ef frumvarpið verði að lögum muni það halda áfram að hafa jákvæð áhrif á minni sveitarfélög á landsbyggðinni.
    Verði frumvarpið ekki samþykkt þá verða áhrifin þau að framlag ríkisins lækkar um 163 millj. kr. á ári.