Ferill 265. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


156. löggjafarþing 2025.
Þingskjal 297—265. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla á sviði umhverfis- og orkumála.

Frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.



I. KAFLI

Breyting á orkulögum, nr. 58/1967.

1. gr.

    Í stað orðsins „ráðherra“ í 1. málsl. 1. mgr. 30. gr., 1. mgr. 31. gr. og 2. mgr. 32. gr. laganna kemur, í viðeigandi beygingarfalli: Umhverfis- og orkustofnun.

2. gr.

    Orðin „að fengnu áliti Umhverfis- og orkustofnunar“ í 1. málsl. 2. mgr. 32. gr. laganna falla brott.

II. KAFLI

Breyting á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.

3. gr.

    Í stað orðanna „í lofthelgi“ í 1. málsl. 1. mgr. 2. gr. laganna kemur: á innsævi, landgrunni, í landhelgi, lofthelgi.

4. gr.

    Í stað orðanna „Gefa skal“ í 1. málsl. 2. mgr. 6. gr. laganna kemur: Heimilt er að gefa.

5. gr.

    Við 1. mgr. 7. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Sé mengandi starfsemi sem er starfsleyfisskyld samkvæmt viðauka IV jafnframt starfsleyfisskyld samkvæmt viðauka I og/eða viðauka II skal Umhverfis- og orkustofnun gefa starfsleyfið út sem eitt leyfi og þarf þá ekki sérstakt leyfi heilbrigðisnefndar.

6. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 8. gr. laganna:
     a.      Á eftir orðinu „viðauka“ í 1. mgr. kemur: II og.
     b.      Fyrirsögn greinarinnar orðast svo: Skráningarskylda og almennar bindandi reglur.

7. gr.

    Á eftir 63. gr. a laganna kemur ný grein, 63. gr. b, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Afturköllun.

    Umhverfis- og orkustofnun eða heilbrigðisnefnd getur afturkallað starfsleyfi samkvæmt lögum þessum ef rekstraraðili brýtur gegn ákvæðum laganna, reglugerða settum samkvæmt þeim eða starfsleyfisskilyrðum.
    Áður en gripið er til afturköllunar starfsleyfis skal veita rekstraraðila skriflega aðvörun og hæfilegan frest til úrbóta. Sinni leyfishafi ekki slíkri aðvörun er heimilt að afturkalla leyfið.

8. gr.

    Við viðauka II við lögin bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Virkjun frá 1 MW.

9. gr.

    115. tölul. í viðauka IV við lögin orðast svo: Brennsluver þar sem nafnvarmaafl er jafnt og eða meira en 1 MW og minna en 50 MW.

III. KAFLI

Breyting á lögum um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998.

10. gr.

    Í stað orðanna „vatnsafli til raforkuframleiðslu“ í 2. málsl. 1. mgr. 1. gr. laganna kemur: orkulindum til undirbúnings raforkuvinnslu, sbr. 40. gr. raforkulaga, nr. 65/2003, á íslensku forráðasvæði innan sem utan netlaga.


11. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 7. gr. laganna:
     a.      Í stað „60“ í 2. málsl. kemur: 90.
     b.      Á eftir 3. málsl. kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að fresta niðurfellingu nýtingarleyfis um 90 daga til viðbótar að ósk leyfishafa enda standi yfir virkar samningsumleitanir við landeiganda um endurgjald.

IV. KAFLI

Breyting á raforkulögum, nr. 65/2003.

12. gr.

    Á eftir 2. málsl. 3. mgr. 4. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Umhverfis- og orkustofnun er heimilt að fresta niðurfellingu virkjunarleyfis um 90 daga til viðbótar að ósk leyfishafa enda standi yfir virkar samningsumleitanir við landeiganda um endurgjald.

13. gr.

    4. mgr. 21. gr. a laganna fellur brott.

V. KAFLI

Breyting á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004.

14. gr.

    Í stað orðanna „lagningu sæstrengja og neðansjávarleiðslna sbr. 2. mgr. 9. gr.“ í 1. málsl. 4. mgr. 28. gr. laganna kemur: varpi efna og lagningu sæstrengja og neðansjávarleiðslna, sbr. 9. gr.

VI. KAFLI

Breyting á lögum um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006.

15. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 33. gr. laganna:
     a.      Á eftir orðunum „skv. 1. máls. 1. mgr.“ í 4. mgr. kemur: eða veitingu bindandi umsagnar skv. 5. mgr.
     b.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                      Ef umsókn um heimild til mannvirkjagerðar í veiðivötnum varðar framkvæmd sem háð er leyfi Umhverfis- og orkustofnunar getur stofnunin veitt leyfi til mannvirkjagerðar í veiðivötnum að fenginni bindandi umsögn Fiskistofu, sbr. 6. gr. a laga um Umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024. Um málsmeðferð fer að öðru leyti skv. 1.– 4. mgr.

VII. KAFLI

Breyting á lögum um umhverfisábyrgð, nr. 55/2012.

16. gr.

    Í stað orðanna „í dagblaði sem er í almennri dreifingu“ í 2. mgr. 28. gr. og „í blaði sem er í almennri dreifingu“ í 2. málsl. 29. gr. laganna kemur: á vef Umhverfis- og orkustofnunar.

VIII. KAFLI

Breyting á lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013.

17. gr.

    Við 41. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Ef umsókn um undanþágu frá friðlýsingu varðar framkvæmd sem háð er leyfi Umhverfis- og orkustofnunar getur stofnunin veitt slíka undanþágu að fenginni bindandi umsögn Náttúruverndarstofnunar, sbr. 6. gr. a laga um Umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024. Um málsmeðferð fer að öðru leyti skv. 1. mgr.

18. gr.

    Á eftir orðinu „undanþágur“ í 1. málsl. 1. mgr. 92. gr. laganna kemur: og bindandi umsagnir.

IX. KAFLI

Breyting á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021.

19. gr.

    Við 12. gr. laganna bætist nýr stafliður, svohljóðandi:
     a.      gerð matslýsingar fyrir umhverfismat áætlunar.

20. gr.

    Við 2. málsl. 2. mgr. 19. gr. laganna bætist: m.a. um hvort framkvæmd er líkleg til að hafa áhrif á vatnshlot samkvæmt lögum um stjórn vatnamála.

21. gr.

    Við 1. mgr. 22. gr. laganna bætist nýr stafliður, svohljóðandi:
e.        áhrif framkvæmdar á vatnshlot samkvæmt lögum um stjórn vatnamála.

22. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 1. viðauka við lögin:
     a.      Tölul. 1.10 fellur brott.
     b.      Í stað tölunnar „50“ í 2. málsl. tölul. 3.02 kemur: 83.
     c.      Í stað orðsins „og“ í 1. málsl. tölul. 3.17 kemur: eða.
     d.      Orðin „3 km2 lands eða meira fara undir vatn eða“ í tölul. 10.11 falla brott.
     e.      Í stað tölunnar „132“ í tölul. 10.15 kemur: 220.
     f.      Í stað orðsins „og“ í 2. málsl. tölul. 11.05 kemur: eða.
     g.      Við tölul. 12.02 bætist: að því undanskildu þegar komið er upp smábátaaðstöðu innan hafnarmannvirkja sem fyrir eru.

23. gr.

    Á eftir „(verndun villtra plantna og dýra og lífsvæða í Evrópu)“ í e-lið iii. liðar 2. tölul. 2. viðauka við lögin kemur: svæða sem njóta verndar vegna.

X. KAFLI

Breyting á lögum um Umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024.

24. gr.

    Á eftir 6. gr. laganna koma tvær nýjar greinar, 6. gr. a og 6. gr. b, ásamt fyrirsögnum, svohljóðandi:

    a. (6. gr. a.)

Málsmeðferð og sameinuð leyfisveiting.

    Við afgreiðslu leyfisumsókna fyrir starfsemi sem er leyfisskyld samkvæmt mismunandi sérlögum á ábyrgð Umhverfis- og orkustofnunar skal stofnunin, eftir því sem mögulegt er og hagkvæmt, sameina afgreiðsluna í eitt leyfi. Heimilt er að gefa út leyfi eða tiltekna hluta þess til tiltekins tíma.
    Umhverfis- og orkustofnun er heimilt, óski umsækjandi þess, að sameina leyfisveitingu og heimildir sem falla undir valdsvið annarra stjórnvalda enda sé það heimilt samkvæmt viðkomandi sérlögum. Umhverfis- og orkustofnun skal þá afla umsagnar viðkomandi stjórnvalds um fram komna beiðni. Við afgreiðslu leyfis er Umhverfis- og orkustofnun óheimilt að víkja frá niðurstöðu viðkomandi stjórnvalds.
    Þau leyfi sem Umhverfis- og orkustofnun ber að birta opinberlega skulu birt á vef stofnunarinnar og telst það til opinberrar birtingar.

    b. (6. gr. b.)

Forgangsmeðferð.

    Við afgreiðslu umsókna um leyfisskyldar framkvæmdir skal Umhverfis- og orkustofnun tryggja forgang afgreiðslu leyfa vegna virkjunarframkvæmda sem falla undir orkunýtingarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar samkvæmt lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun.

25. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Frumvarp þetta er samið í umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytinu í samvinnu við Umhverfis- og orkustofnun og Skipulagsstofnun. Markmið þess er að einfalda og auka skilvirkni í stjórnsýslu umhverfis- og orkumála og stytta afgreiðslutíma leyfisumsókna hjá Umhverfis- og orkustofnun. Markmiðið er einnig aukin samræming við EES-rétt.
    Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins segir m.a. að ferli leyfisveitinga verði einfaldað, tímafrestir lögbundnir og verkefni í nýtingarflokki rammaáætlunar látin njóta forgangs í stjórnsýslu orkumála. Á undanförnum árum hefur myndast verulegt ójafnvægi milli framboðs og eftirspurnar á raforkumarkaði þar sem orkuöflun hefur ekki haldið í við vaxandi umsvif í samfélaginu. Þunglamaleg leyfisferli á sviði umhverfis- og orkumála eru á meðal orsaka þess hve hægt hefur gengið að koma nýframkvæmdum af stað. Ríkisstjórn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins hefur einsett sér að bæta úr þessari stöðu. Til þess að bæta úr þessari stöðu þarf að ráðast í lagabreytingar til að tryggja skilvirkari leyfisferla og styttri afgreiðslutíma á sviði umhverfis- og orkumála.
    Undirbúningsvinna og kortlagning vegna einföldunar á leyfisferlum, m.a. í tengslum við sameiningu Orkustofnunar og hluta Umhverfisstofnunar, hófst í umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytinu í febrúar 2024. Frumvarpsdrög höfðu verið birt í samráðsgátt 22. nóvember 2024 (mál nr. S-232/2024) en að samráði loknu var ákveðið að leggja til að gengið yrði lengra í einföldun og samþættingu leyfisferla heldur en áður hafði verið lagt upp með. Frumvarp þetta tekur mið af þessu og felur m.a. í sér almennari heimildir Umhverfis- og orkustofnunar til sameiningar leyfa en fyrri frumvarpsdrög gerðu ráð fyrir. Þá hefur verið fallið frá hugmyndum um að framkvæmdir í þágu orkuskipta og kolefnishlutleysis fái sérmeðferð að veittum rökstuðningi umsækjanda. Í staðinn er mælt fyrir um að verkefni sem samþykkt hafa verið í orkunýtingarflokk rammaáætlunar sæti sjálfkrafa forgangsmeðferð hjá Umhverfis- og orkustofnun. Þetta verður að skoða í samhengi við áform ríkisstjórnarinnar um að auka skilvirkni og festu við framkvæmd rammaáætlunar og tryggja að röðun virkjunarkosta taki mið af markmiðum stjórnvalda um aukna orkuöflun. Fleiri ákvæðum hefur verið bætt við frumvarpið í takti við áherslur ríkisstjórnarinnar, en almennt miðar frumvarpið að því að samþætta og samræma leyfisveitingar, kæruleiðir og tengdar ákvarðanir til að stytta heildartíma afgreiðsluferla og að regluverk styðji betur skilvirka, vandaða, aðgengilega og gagnsæja stjórnsýslu. Þá er markmiðið að innleiða hugmyndafræði um einn afgreiðslustað (e. one-stop shop ). Með því er átt við einn afgreiðslustað stjórnsýslu gagnvart umsækjanda eða leyfishafa.
    Rætt hefur verið við fjölda hagaðila vegna einföldunar leyfisferla og verkefnatillaga kynnt í samráðsgátt þar sem kallað var eftir uppbyggilegum tillögum. Við vinnslu þessa frumvarps hefur verið unnið með niðurstöður viðtala og umsagnir um verkefnatillögu. Áfram verður litið til þessara gagna og greininga í frekari vinnu í átt að einföldun og skilvirkni.
    Undirbúnings- og leyfisveitingaferli fyrir umfangsmiklar framkvæmdir er eðlilega flókið ferli þar sem að fjölmörgu þarf að huga. Framkvæmdir mega ekki vera á skjön við markmið um sjálfbæra þróun, heilnæmt umhverfi og umhverfisvernd. Þá þarf að gæta að því að almenningur geti haft áhrif á ákvarðanatöku sem varðar umhverfið í samræmi við Árósasamning um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum sem hefur verið fullgiltur hér á landi, sbr. þingsályktun nr. 46/139. Einnig er ljóst að mikil tækifæri eru til einföldunar og aukinnar skilvirkni. Með hraðari og skilvirkari ferli má hraða framförum í átt að sjálfbærara samfélagi auk þess að stuðla að ábyrgri nýtingu auðlinda.
    Þetta frumvarp felur í sér fyrsta áfanga lagabreytinga sem nauðsynlegar eru til þess að úrbætur á leyfisveitingaferlum raungerist. Eins og fyrr sagði verður áfram unnið að frekari breytingum í átt til einföldunar og innleiðingar hugmyndafræði um einn afgreiðslustað.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Eins og fram kemur í 1. kafla eru með frumvarpinu lagðar til lagabreytingar sem nauðsynlegar eru í þágu markmiða um einföldun stjórnsýslu, auk einföldunar, samræmingar og styttingar afgreiðslutíma leyfisumsókna á vegum Umhverfis- og orkustofnunar.

3. Meginefni frumvarpsins.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum sem varða málsmeðferð og leyfisveitingar á vegum Umhverfis- og orkustofnunar og er ætlað að einfalda stjórnsýslu, stytta og samræma málsmeðferð stofnunarinnar. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á eftirfarandi löggjöf:

3.1. Orkulög, nr. 58/1967.
    Lagt er til að veiting einkaleyfis til þess að starfrækja hitaveitur, sem annist dreifingu eða sölu heits vatns eða gufu til almenningsþarfa á tilteknu veitusvæði frá jarðhitastöðvum eða hitunarstöðvum með öðrum orkugjafa, verði falið Umhverfis- og orkustofnun í stað ráðherra.

3.2. Lög um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
    
Lögð er til breyting á gildissviðsákvæði laganna til aukins skýrleika. Lagt er til að fallið verði frá fortakslausri skyldu til að veita leyfi til tiltekins tíma og að heimild til að mæla fyrir um skráningarskyldu í stað starfsleyfisskyldu nái til fleiri tegunda starfsemi en nú er. Þá eru gerðar tillögur til einföldunar sem varða leyfisveitingar Umhverfis- og orkustofnunar og heilbrigðisnefnda.

3.3. Lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998.
    Lagt er til að gildissvið laganna taki breytingum til að tryggja að unnt verði að veita rannsóknarleyfi vegna virkjanakosta á hafi utan netlaga. Einnig er lagt til að regla um að leyfi falli niður að liðnum ákveðnum tíma, hafi ekki verið samið um endurgjald við landeiganda eða eignarnáms óskað, bjóði upp á ákveðinn sveigjanleika.

3.4. Raforkulög, nr. 65/2003.
    Gerð er tillaga um tiltekinn sveigjanleika varðandi reglu um að leyfi falli niður að liðnum ákveðnum tíma hafi ekki verið samið um endurgjald við landeiganda eða eignarnáms óskað. Um er að ræða sambærilega tillögu og hvað varðar lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu.

3.5. Lög um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004.
    Lagt er til að ákvarðanir Umhverfis- og orkustofnunar sem varða varp í hafið sæti kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

3.6. Lög um lax- og silungsveiði, nr. 61/2006, og lög um náttúruvernd, nr. 60/2013.
    Gerðar eru tillögur um heimild til að sameina tilteknar heimildir samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði og lögum um náttúruvernd með leyfisveitingu af hálfu Umhverfis- og orkustofnunar í þágu hugmyndafræði um einn afgreiðslustað.

3.7. Lög um umhverfisábyrgð, nr. 55/2012.
    Lagt er til að reglur um opinbera birtingu ákvarðana í lögum um umhverfisábyrgð geri ráð fyrir rafrænni birtingu á vef Umhverfis- og orkustofnunar í stað auglýsingar í dagblaði í almennri dreifingu.

3.8. Lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021.
    Lagðar eru til breytingar sem varða samspil laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana og laga um stjórn vatnamála, nr. 36/2011. Þá eru lagðar til ýmsar breytingar á viðaukum laganna í þágu einföldunar, skýrleika og samræmis við EES- rétt.

3.9. Lög um umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024.
    Lagðar eru til tilteknar breytingar á lögum um Umhverfis- og orkustofnun í þágu samræmdrar málsmeðferðar og leyfisveitinga, þar með talið heimild Umhverfis- og orkustofnunar til að sameina leyfisveitingu og heimildir sem falla undir valdsvið annarra stjórnvalda enda sé heimild fyrir því í viðkomandi sérlögum. Þá er lagt til að við afgreiðslu umsókna um leyfisskylda framkvæmd skuli Umhverfis- og orkustofnun tryggja forgang afgreiðslu leyfa vegna virkjana sem falla undir verndar- og orkunýtingaráætlun.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Frumvarpið samræmist Árósasamningi um aðgang að upplýsingum, þátttöku almennings í ákvarðanatöku og aðgang að réttlátri málsmeðferð í umhverfismálum sem Ísland hefur fullgilt með þingsályktun nr. 46/139. Þjóðréttarsamningurinn veitir almenningi rétt á að eiga aðkomu að ákvarðanatöku sem hefur áhrif á umhverfið.
    Talið er að frumvarpið samræmist ákvæðum stjórnarskrárinnar. Er þá sérstaklega litið til atvinnufrelsisákvæðis 75. gr. Í frumvarpinu er m.a. lagt til að Umhverfis- og orkustofnun verði heimilt að forgangsraða afgreiðslu mála í þágu framkvæmda í orkunýtingarflokki verndar- og orkunýtingaráætlunar. Það hefur verið talin almenn meginregla í stjórnsýslu að afgreiða mál í þeirri röð sem þau berast. Frá þessu megi þó víkja að ákveðnu marki og taka tillit til eðlis málanna og hversu mikilsverða hagsmuni málsaðila þau varða, sbr. álit umboðsmanns Alþingis í máli nr. 2907/1999. Þá kunna að vera ákvæði í sérlögum sem veita stjórnvöldum lagaheimild til að víkja frá meginreglunni. Í frumvarpinu felst tillaga um að Umhverfis- og orkustofnun skuli tryggja forgang afgreiðslu leyfa vegna virkjana sem falla undir verndar- og orkunýtingaráætlun.

5. Samráð.
    Áform um lagasetningu vegna einföldunar leyfisferla í umhverfis- og orkumálum fóru í opinbera kynningu í samráðsgátt stjórnvalda 7. júlí 2024 (mál nr. S-137/2024) og bárust ráðuneytinu 11 umsagnir um áformin sem tekið var mið af við gerð frumvarps þessa.
    Umsagnir um áform eru að mestu leyti jákvæðar gagnvart einföldun ferla. Í umsögnum koma m.a. fram sjónarmið um að ástæður tafa á leyfisferlum séu m.a. skortur á samþættingu í leyfisveitingaferlinu og vöntun á samræmingu milli leyfisveitenda. Tímafrestir séu ekki nægjanlega vel skilgreindir eða virtir af stofnunum og skortur sé á gegnsæi og heildaryfirsýn yfir stöðuna innan stjórnsýslunnar. Þá koma einnig fram sjónarmið um mikilvægi aðkomu almennings að ákvarðanatöku og að ekki verði gefið eftir í kröfum vegna náttúruverndar.
    Drög að frumvarpi voru birt til samráðs í samráðsgátt stjórnvalda frá 22. nóvember 2024 til 17. janúar 2025, mál nr. S-232/2024. Alls 20 umsagnir bárust um frumvarpið.
    Í ýmsum umsögnum er almennt stutt við markmið frumvarpsins en kallað eftir því að gengið verði lengra í einföldun ferla og ýmsum ábendingum komið á framfæri. Í umsögnum ýmissa náttúruverndarsamtaka er m.a. lögð áhersla á að einföldun megi ekki vera á kostnað gæða eða samráðs um framkvæmdir.
    Frumvarpið hefur tekið umtalsverðum breytingum frá lokum samráðstíma. Við breytingarnar var horft til umsagna hagaðila. Einnig var horft til umsagna hagaðila við drög að frumvarpi til breytinga á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021 (samræming við EES-reglur), sem var til samráðs 30. ágúst – 16. september 2024 (mál nr. S-169/2024) sem lagt hefur verið fram á 156. löggjafarþingi (129. mál). Í fyrsta lagi má nefna að nú er lagt til að gildissvið laga um rannsóknir og nýtingu auðlinda í jörðu taki breytingum til að tryggja að unnt verði að veita rannsóknarleyfi vegna virkjanakosta á hafi utan netlaga. Í öðru lagi er fallið frá tillögu um breytingu á raforkulögum varðandi gjaldskrá flutningsfyrirtækisins Landsnets hf. Í allmörgum umsögnum voru gerðar talsverðar athugasemdir við ákvæðið. Viðfangsefnið er enn til umfjöllunar á vettvangi ráðuneytisins en þess má vænta að lagðar verði fram tillögur að lagabreytingu varðandi gjaldskrá Landsnets hf. á næstu misserum. Í þriðja lagi má nefna ýmsar breytingar sem varða frekari einföldun, þar á meðal að fallið verði frá fortakslausri skyldu til að veita leyfi samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir til tiltekins tíma og að Umhverfis- og orkustofnun geti veitt leyfi samkvæmt lögum um lax- og silungsveiði að fenginni bindandi umsögn Fiskistofu. Í fjórða lagi eru gerðar tillögur um nokkrar breytingar á viðaukum laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana í þágu einföldunar, skýrleika og samræmis við EES-rétt. Í fimmta lagi gerir frumvarpið nú ráð fyrir að Umhverfis- og orkustofnun skuli tryggja forgang afgreiðslu leyfa vegna virkjunarframkvæmda sem falla undir orkunýtingarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar samkvæmt lögum um verndar- og nýtingaráætlun. Í frumvarpinu eins og það var birt til samráðs var mælt fyrir um almenna heimild til forgangsröðunar í þágu orkuskipta og kolefnishlutleysis og var það nokkuð gagnrýnt í samráði, einkum með vísan til þess að það væri nokkuð óljóst.

6. Mat á áhrifum.
    Efni frumvarpsins hefur almennt jákvæð áhrif á samfélagið þar sem lagt er til að dregið verði úr reglubyrði og stuðlað að skilvirkri stjórnsýslu. Frumvarpið felur í sér einföldun laga og stjórnsýslu sem stuðlar að minni reglubyrði og auknum fyrirsjáanleika fyrir atvinnulíf. Frumvarpið er til þess fallið að auðvelda aðgang nýrra aðila á markað og hafa þannig jákvæð áhrif á samkeppni. Frumvarpið hefur ekki áhrif á ríkissjóð.

Um einstakar greinar frumvarpsins.

Um 1. og 2. gr.

    Í orkulögum, nr. 58/1967, er fjallað um veitingu einkaleyfis til þess að starfrækja hitaveitur sem annist dreifingu eða sölu heits vatns eða gufu til almenningsþarfa á tilteknu veitusvæði, frá jarðhitastöðvum eða hitunarstöðvum með öðrum orkugjafa. Með ákvæðunum er lagt til að slík leyfisveiting verði færð á hendur Umhverfis- og orkustofnunar. Hitaveitur eru eitt af fjölmörgum málefnasviðum stofnunarinnar og eðlilegt að stuðla að samræmdri málsmeðferð leyfisveitinga innan málefnasviðsins.

Um 3. gr.

    Lagt er til að gildissviðsákvæði laga um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998, verði breytt þannig að það tilgreini innsævi, landhelgi og landgrunn. Með lögum nr. 12/2021 bættist VI. kafli A við lögin. Í 33. gr. a er gildissvið kaflans tilgreint. Ákvæðið tók breytingum í þinglegri meðferð þannig að ákvæðið tekur til efnahagslögsögu og landgrunns. Þannig má telja ákveðið innra ósamræmi á milli gildissviðsákvæðis laganna og 33. gr. a sem kann að leiða til réttaróvissu. Bent er á að lögin taka til sjókvíaeldis sem er einkum staðsett á innsævi Íslands.


Um 4. gr.

    Í 2. mgr. 6. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir kemur fram að gefa skuli út leyfi til tiltekins tíma. Lagt er til að í stað fortakslausrar skyldu til að binda leyfið í tíma verði það heimilt. Þannig gæti stofnunin veitt leyfi án sérstaks gildistíma og minnkað þannig stjórnsýslubyrði sem felst í endurnýjun leyfa. Aftur á móti kann í ýmsum tilvikum að vera fullt tilefni til að gefa leyfi út til tiltekins tíma, til dæmis vegna sérreglna sem taka til starfsemi. Í þessu samhengi er bent á að gert er ráð fyrir að í lögum um Umhverfis- og orkustofnun komi fram að heimilt sé að tímabinda leyfi í heild eða hluta, sbr. 24. gr. þessa frumvarps.

Um 5. gr.

    Með ákvæði 5. gr. er lagt til að sé mengandi starfsemi starfsleyfisskyld samkvæmt viðauka IV, þ.e. af hálfu heilbrigðisnefndar, jafnframt starfsleyfisskyld samkvæmt viðauka I og/eða viðauka II, skuli Umhverfis- og orkustofnun gefa út starfsleyfið sem eitt leyfi. Einföldunin fælist í því að í stað þess að þurfa leyfi fyrir mengandi starfsemi frá heilbrigðisnefnd og Umhverfis- og orkustofnun þyrfti einungis leyfi Umhverfis- og orkustofnunar. Í þeim tilvikum sem mengandi starfsemi er háð starfsleyfi bæði Umhverfis- og orkustofnunar og heilbrigðisnefndar er starfsleyfi og eftirlit Umhverfis- og orkustofnunar talið ná til nauðsynlegra þátta.


Um 6. gr.

    Í 6. gr. eru lagðar til breytingar á 8. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir.
    Í a-lið er lagt til að ráðherra verði heimilt að kveða á um með reglugerð að atvinnurekstur samkvæmt viðauka II við lög um hollustuhætti og mengunarvarnir verði háður skráningarskyldu í stað starfsleyfis. Heimild til að ákvarða skráningarskyldu í stað starfsleyfisskyldu samkvæmt gildandi lögum tekur til viðauka IV um starfsemi sem heilbrigðisnefnd gefur út starfsleyfi fyrir. Þeirri heimild var bætt við lögin með lögum nr. 66/2017 og var nýtt með reglugerð nr. 830/2022 um skráningarskyldan atvinnurekstur. Komin er marktæk reynsla af beitingu reglugerðar nr. 830/2022. Talið er að markmiðum löggjafarinnar megi ná með skráningarskyldu í stað starfsleyfisskyldu þar sem fyrirtæki bera ábyrgð á að starfa í samræmi við gildandi löggjöf hverju sinni. Rétt er að árétta að ákvæðið mælir ekki fyrir um sjálfkrafa skráningarskyldu heldur þarf að útfæra slíkt í reglugerð.
    Í b-lið er lögð til breyting á fyrirsögn ákvæðisins sem talin er í betra samhengi við efnisatriði þess.

Um 7. gr.

    Í lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir er ekki að finna beina heimild fyrir leyfisveitanda til að afturkalla starfsleyfi gerist rekstraraðili brotlegur við skilyrði starfsleyfisins eða uppfylli það ekki að öðru leyti. Almennt verður að teljast eðlilegt að leyfisveitandi geti afturkallað leyfi í slíkum tilvikum að undangenginni viðeigandi málsmeðferð í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttar. Hér ber einnig að vísa til þess að með 4. gr. frumvarpsins er lagt til að leyfi geti verið veitt án tiltekins tíma, þ.e. ótímabundin. Það kallar einnig á að leyfi geti sætt afturköllun í tilvikum þar sem rekstraraðili uppfyllir ekki lengur leyfisskilyrði.

Um 8. og 9. gr.

    Lagt er til að virkjun og orkuveita frá 1 MW verði færð úr viðauka IV yfir í viðauka II. Slík starfsemi mundi þá ekki vera háð starfsleyfi heilbrigðiseftirlits heldur Umhverfis- og orkustofnunar en gert er ráð fyrir að stofnunin geti sameinað starfsleyfið öðrum leyfum samkvæmt sérlögum á sviði stofnunarinnar, svo sem virkjunarleyfi skv. 4. gr. raforkulaga, nr. 65/2003. Einnig má vísa til þess að í nýlegri úttekt á vegum samtaka umhverfisyfirvalda á Evrópska efnahagssvæðinu (e. IMPEL, The European Union Network for the Implementing and Enforcement of Environmental Law) er lagt til að stærri jarðvarma- og vatnsaflsvirkjanir verði háðar leyfi og eftirliti Umhverfisstofnunar, nú Umhverfis- og orkustofnunar.


Um 10. gr.

    Með greininni er lögð til breyting sem tengist samspili laga um rannsóknir og nýtingu auðlinda í jörðu, nr. 57/1998, og 40. gr. raforkulaga, nr. 65/2003, að því er rannsóknarleyfi varðar. Vegna samspils þessara laga hefur í framkvæmd ekki verið talið unnt að veita rannsóknarleyfi vegna sjávarfallavirkjana nema eingöngu innan netlaga. Sama á við um rannsóknarleyfi vegna vindorkuvera. Með frumvarpinu er lagt til að orðalag 2. málsl. 1. mgr. 1. gr. laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu taki mið af 40. gr. raforkulaga, á þann hátt að í stað þess að í auðlindalögum komi fram að þau taki til rannsókna á vatnsafli til raforkuframleiðslu innan netlaga, þá verði kveðið á um að lögin taki einnig til rannsókna á orkulindum til undirbúnings raforkuvinnslu, sbr. 40. gr. raforkulaga, nr. 65/2003, á íslensku forráðasvæði innan sem utan netlaga. Með því móti verður unnt að veita rannsóknarleyfi til undirbúnings vindorkuvera og sjávarfallavirkjana jafnt innan sem utan netlaga.
    Bent er á að í frumvarpi til laga um breytingu á vatnalögum, nr. 15/1923, og lögum nr. 57/1998, um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu (samræming reglna um vatnsréttindi) sem lagt var fram á 141. löggjafarþingi (634. mál) var í 4. gr. að finna sambærilegt ákvæði sem var í greinargerð rökstutt með vísan til þess að ekki væri unnt að veita rannsóknarleyfi vegna sjávarfallavirkjana nema eingöngu innan netlaga. Frumvarpið náði ekki fram að ganga. Ýmsir aðilar hafa sýnt nýtingu vindorku á hafi áhuga og því er talið nauðsynlegt að Umhverfis- og orkustofnun geti veitt rannsóknarleyfi.


Um 11. og 12. gr.

    Í 1. mgr. 7. gr. laga um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu segir að áður en nýtingarleyfishafi hefji vinnslu í eignarlandi þurfi hann að hafa náð samkomulagi við landeiganda um endurgjald fyrir auðlindina eða fengið heimild til eignarnáms. Hafi hvorki náðst samkomulag um endurgjaldið né eignarnáms verið óskað innan 60 daga frá útgáfu nýtingarleyfis fellur það niður.
    Í 3. mgr. 4. gr. raforkulaga segir að áður en leyfishafi hefji framkvæmdir á eignarlandi þurfi hann að hafa náð samkomulagi við landeigendur og eigendur orkulinda um endurgjald eða fengið heimild til eignarnáms. Hafi hvorki náðst samkomulag um endurgjaldið né eignarnáms verið óskað innan 90 daga frá útgáfu leyfis fellur það niður.
    Ákvæðin eru fortakslaus hvað varðar niðurfellingu og réttarverkan þeirra er ekki háð aðkomu opinberra aðila, ekki er hægt að óska eftir rýmri heimild til að uppfylla ákvæðin. Vísa má til úrskurðar úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, þessu til stuðnings, í máli nr. 107/2018. Af þessu hefur hlotist nokkurt óhagræði í framkvæmd. Málsmeðferð leyfisveitinga til auðlindanýtingar er flókið, tímafrekt og kostnaðarsamt ferli. Niðurfelling leyfis á grundvelli svo þröngt afmarkaðra skilyrða ónýtir allt ferlið og hætta á tvíverknaði því mikil þar sem endurtaka þarf allt ferlið.
    Í 1. mgr. 11. gr. er lagt til að í 1. mgr. 7. gr. laga um rannsóknir og nýtingu auðlinda í jörðu verði mælt fyrir um 90 daga frest í stað 60 daga til að ná samkomulagi um endurgjald eða leita eignarnáms til samræmis við sambærilegt ákvæði raforkulaga. Í 2. mgr. er lagt til að Umhverfis- og orkustofnun verði heimilt að fresta niðurfellingu leyfisins um 90 daga til viðbótar að beiðni leyfishafa enda standi yfir virkar samningsumleitanir við landeiganda um endurgjald.
    Með 12. gr. er lagt til að sambærileg heimild til að fresta niðurfellingu leyfis um 90 daga til viðbótar verði lögfest í raforkulögum.

Um 13. gr.

    Í 21. gr. a raforkulaga er fjallað um aðgerðir vegna trjágróðurs. Grisjun trjágróðurs er öryggisráðstöfun sem ráðist er í þegar hæð eða útbreiðslusvæði gróðurs er þannig að það geti truflað flutning eða dreifingu á raforku eða valdið hættu við flutning og dreifingu á raforku. Í 4. mgr. 21. gr. a er fjallað um ágreining á milli flutningsfyrirtækisins eða dreifiveitu og landeiganda eða umráðamanns lands. Slíkum ágreiningi skal vísað til Raforkueftirlitsins til úrlausnar. Við málsmeðferð Raforkueftirlitsins leggur eftirlitið mat á málið út frá sjónarmiðum um hagnýtingarrétt landeiganda annars vegar og sjónarmiðum um öryggisráðstafanir í almannaþágu hins vegar. Ákvæðið gerir kröfu um að brýn nauðsyn sé fyrir hendi, en sjaldnast hefur landeigandi sérfræðiþekkingu á flutningi og dreifingu raforku og getur þannig ekki metið hvort um brýna nauðsyn sé að ræða. Þannig hefur milliganga Raforkueftirlitsins hingað til einungis verið formlegs eðlis í þeim tilgangi að staðfesta að heimilt sé að grisja gróðurinn.
    Með 13. gr. frumvarpsins er lagt til að hlutverk Raforkueftirlitsins sem milliliðs í ágreiningi um grisjun trjágróðurs sé lagt niður. Landeigandi nýtur aftur á móti áfram verndar eignarréttar og getur óskað eftir því að sýslumaður leggi lögbann við fellingu trjágróðurs, óháð því hvort hún sé hafin eða ekki. Þá hefur landeigandi, samkvæmt ákvæðinu, jafnframt rétt til bóta vegna sannanlegs tjóns sem hann verður fyrir. Litið er svo á að þær kröfur sem gerðar eru til grisjunar trjágróðurs í öðrum málsgreinum 21. gr. a raforkulaga séu fullnægjandi varnagli þess að trjágróður sé grisjaður án nauðsynjar eða í óhóflegu magni. Þannig sé milliganga Raforkueftirlitsins óþörf og einungis til þess fallin að lengja biðtíma annarra mála.

Um 14. gr.

    Í 1. mgr. 28. gr. laga um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004, segir að rísi ágreiningur um framkvæmd laganna og reglugerða settra samkvæmt þeim sé heimilt að vísa honum til ráðherra til úrskurðar, sbr. þó 4. mgr. Í 4. mgr. segir að ákvarðanir Umhverfis- og orkustofnunar er lúta að lagningu sæstrengja og neðansjávarleiðslna, sbr. 2. mgr. 9. gr., sæti kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.
    Hægt væri að sameina leyfisveitingu vegna efnistöku í sjó samkvæmt lögum um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins, nr. 73/1990, og varps í hafið skv. 1. mgr. 9. gr. laga nr. 33/2004 enda tengjast þessi leyfi oft sömu framkvæmd. Það sem helst kæmi í veg fyrir slíka sameiningu leyfisveitinga eru mismunandi kæruleiðir. Er því er lagt til að í 4. mgr. 28. gr. verði tilgreint að ákvörðun Umhverfis- og orkustofnunar um heimild til varps í hafið sæti einnig kæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála.

Um 15. og 17. gr.

    Í 15. og 17. gr. frumvarpsins felast tillögur um ráðstafanir í átt að því að gera Umhverfis- og orkustofnun að einum afgreiðslustað þegar einnig er skylt að afla tiltekinna heimilda annarra stofnana vegna starfsemi sem sótt er um leyfi fyrir.
    Í 15. gr. er lagt til að ef heimild til mannvirkjagerðar í veiðivötnum varðar framkvæmd sem háð er leyfi Umhverfis- og orkustofnunar geti stofnunin veitt leyfi til mannvirkjagerðar í veiðivötnum að fenginni bindandi umsögn Fiskistofu.
    Í 17. gr. er lagt til að ef umsókn um undanþágu frá friðlýsingu varðar framkvæmd sem háð er leyfi Umhverfis- og orkustofnunar geti stofnunin veitt undanþágu að fenginni bindandi umsögn Náttúruverndarstofnunar.
    Hagræði fyrir umsækjanda felst í afgreiðslu einnar stofnunar í stað tveggja en málsmeðferðin og efnisleg skoðun Fiskistofu eða Náttúruverndarstofnunar á umsókn um viðkomandi heimild eða undanþágu er sú sama.
    Byggt er á því að umsögn viðkomandi sérfræðistofnunar bindi afgreiðslu Umhverfis- og orkustofnunar við tiltekna niðurstöðu, þ.m.t. hvað varðar skilyrði sem unnt er að binda umrædda heimild. Hvað varðar undanþágu frá ákvæðum friðlýsingar er áréttað að um er að ræða heimild til undanþágu sem eftir sem áður ber að túlka þröngt.
    Hér er einnig vísað til a-liðar 24. gr. frumvarpsins þar sem lagt er til að fjallað verði um sameiningu leyfisveitinga í 6. gr. a laga um Umhverfis- og orkustofnun, þar á meðal að stofnuninni verði heimilt að sameina leyfisveitingu og aðrar heimildir sem falla undir verksvið annarra stjórnvalda enda sé heimild fyrir því í viðkomandi sérlögum.

Um 16. gr.

    Lagt er til að reglur um opinbera birtingu ákvarðana í lögum um umhverfisábyrgð geri ráð fyrir rafrænni birtingu á vef Umhverfis- og orkustofnunar í stað auglýsingar í dagblaði í almennri dreifingu. Talið er að ein helsta ástæðan fyrir þeirri skyldu hafi verið að tryggja aðgang viðeigandi aðila að upplýsingum um framangreindar ákvarðanir. Telja verður að unnt sé að ná markmiðum um tryggt aðgengi að upplýsingum með rafrænni birtingu þar sem auðvelt verður að nálgast þær á vef Umhverfis- og orkustofnunar.

Um 18. gr.

    Í 92. gr. laga um náttúruvernd er mælt fyrir um heimild til töku þjónustugjalds samkvæmt gjaldskrá. Lagt er til að slík heimild nái jafnframt til bindandi umsagna í samræmi við 17. gr. þessa frumvarps.


Um 19. gr.

    Í 12. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana er að finna lýsingu á ferli við umhverfismat áætlana. Lagt er til að fremst í uppröðuninni verði vísað til matslýsingar. Er það til aukins skýrleika um ferli umhverfismats áætlana og í samræmi við reglugerð um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 1381/2021.


Um 20. og 21. gr.

    Í 20. og 21. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 19. og 22. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021. Nokkur óvissa hefur verið um ýmsa þætti sem tengjast breytingum á vatnshloti skv. 18. gr. laga um stjórn vatnamála, nr. 36/2011. Í framkvæmd hefur verið um að ræða sérstaka umsókn framkvæmdaraðila sem Umhverfisstofnun, nú Umhverfis- og orkustofnun, hefur afgreitt með sérstakri ákvörðun. Eðlilegast er að mat og rökstuðningur um breytingu vatnshlots sé settur fram í umhverfismati viðkomandi framkvæmdar. Er því lagt til að í tilkynningu framkvæmdaraðila til Skipulagsstofnunar skuli framkvæmdaraðili leggja fram upplýsingar um hvort framkvæmd sé líkleg til að hafa áhrif á vatnshlot samkvæmt lögum um stjórn vatnamála. Þá skuli í umhverfismatsskýrslu framkvæmdaraðila gera grein fyrir áhrifum framkvæmdar á vatnshlot samkvæmt lögum um stjórn vatnamála.


Um 22. gr.

    Í 22. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á 1. viðauka við lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021. Tillögur í b-, d- og e- lið fela í sér viðbrögð við umsögnum við drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana, nr. 111/2021 (samræming við EES-reglur) sem lagt hefur verið fram á 156. löggjafarþingi (129. mál). Að öðru leyti er um að ræða tillögur til einföldunar, aukins skýrleika og samræmi við EES-rétt sem leiða af greiningu ráðuneytisins og Skipulagsstofnunar.
    Í a-lið er lagt til að tölul. 1.10 falli brott. Töluliðurinn mælir fyrir um að endurheimt lands frá hafi falli í b-flokk sem tilkynningarskyld framkvæmd. Tölul. 1.10 svarar til g-liðar 1. gr. 2. viðauka við tilskipunina sem á við um landfyllingar. Í tölul. 10.18 er hins vegar tilgreint að landfyllingar sem eru 5 ha eða stærri séu tilkynningarskyldar.
    Í b-lið er lögð til breyting á tölul. 3.02. Breytingunni er ætlað að tryggja samræmi matsskyldumarka vegna hagnýtingar jarðhita og raforkuvinnslu. Í a-lið 2. tölul. í I. viðauka við tilskipun 2011/92/ESB er varmaorkuver með a.m.k. 300 MW í hrávarma tilgreint matsskylt. Sambærileg viðmið eru sett við 50 MW í hrávarma í lið 3.02 og 3.17 í 1. viðauka við lög nr. 111/2021 og tilkynningarskylda sett við 2,5 MW í hrávarma. Til samanburðar liggur matsskylda við 10 MW í raforkuvinnslu. Að jafnaði þarf 10 MW jarðvarmavirkjun 83 MW af hrávarma. Matsskilyrði fyrir hagnýtingu jarðhita til hitaveitu eru þar af leiðandi umtalsvert þrengri en til raforkuvinnslu og bæði viðmiðin eru langt frá þeim sem tilskipunin kveður á um að teljist matsskylt eða 300 MW.
    Í c-lið er lagt til að í stað orðsins „og“ í 1. málsl. tölul. 3.17 komi „eða“. Töluliðurinn mælir fyrir um matsskyldu jarðvarmavera eða iðjuvera til framleiðslu á rafmagni, gufu og heitu vatni sem nemur 2.500 kW uppsettu afli eða meira, utan þess sem fellur undir tölul. 3.02. Orðalag töluliðarins má skilja með þeim hætti að iðjuver þurfi að framleiða allt þrennt, þ.e. rafmagn, gufu og heitt vatn, til að falla undir töluliðinn. Samsvarandi lið tilskipunarinnar, a-lið 3. tölul. II. viðauka, er hins vegar ætlað að ná yfir iðjuver sem framleiða eitt eða fleira, t.d. rafmagn eingöngu.
    Í d-lið er lagt til að orðin „3 km2 lands eða meira fara undir vatn eða“ í tölul. 10.11 falli brott. Í tölul. 10.11 í viðaukanum er kveðið á um flatarmálsskilyrði og rúmmálsskilyrði en tilskipunin gerir aðeins kröfu um rúmmálsskilyrði. Framkvæmdir undir viðmiðunarmörkunum mundu eftir sem áður falla í flokk B.
    Í e-lið er lagt til að í stað tölunnar „132“ í tölul. 10.15 í 1. viðauka við lögin komi „220“. Í tölul. 10.15. er kveðið á um að matsskylda skapist vegna lagningar loftlína yfir 132 kV spennu. Tilskipun Evrópusambandsins miðar hins vegar við 220 kV. Framkvæmdir undir viðmiðunarmörkunum mundu eftir sem áður falla í flokk B.
    Í f-lið er lagt til að í stað orðsins „og“ í 2. málsl. tölul. 11.05 komi „eða“. Í töluliðnum er mælt fyrir um tilkynningarskyldu vegna skolphreinsivirkja frá íbúðarbyggð eða atvinnustarfsemi, þ.m.t. stöðva með þaulnýtnum landbúnaði með afkastagetu a.m.k. 2.000 persónueiningar utan þess sem tilgreint er í tölul. 11.04. Í 2. málsl. er mælt fyrir um tilkynningarskyldu sams konar framkvæmda á verndarsvæðum og þar sem losað er í viðkvæman viðtaka ef afkastageta nemur a.m.k. 100 persónueiningum. Í því felst leiðrétting á orðalagi sem ætla verður að sé misritun. Ákvæðið eins og það kemur fram í viðaukanum má skilja á þá leið að skolphreinsivirki með afkastagetu á bilinu 100 – 2000 persónueiningar falli aðeins undir ákvæðið séu þau bæði staðsett á verndarsvæði og losi í viðkvæman viðtaka.
Í g-lið er lagt til að frá tölul. 12.02 verði undanskildar framkvæmdir við að koma upp smábátaaðstöðu innan hafnarmannvirkja sem fyrir eru. Í tölul. 12.02 eru smábátahafnir með a.m.k. 100 bátalægi tilgreindar sem tilkynningarskyldar framkvæmdir. Með tilliti til umhverfisáhrifa verður ekki talin þörf á að tilkynna framkvæmdir sem felast í að koma upp smábátaaðstöðu innan hafnarmannvirkja sem fyrir eru.


Um 23. gr.

    Með 23. gr. frumvarpsins er lögð til lítils háttar breyting á orðalagi í e-lið iii. liðar 2. tölul 2. viðauka við lögin. Þau svæði sem talin eru upp í iii. lið 2. tölul. 2. viðauka teljast verndarsvæði í skilningi laganna en framkvæmdir innan slíkra svæða eru tilkynningarskyldar óháð stærðarviðmiðum. Skipulagsstofnun hefur túlkað ákvæðið á þá leið að það taki til svæða sem hafa hlotið formlega vernd með innleiðingu samninga svo sem Ramsarsamningsins um votlendi og Bernarsamningsins um verndun villtra plantna og dýra og lífsvæða í Evrópu í íslenskan rétt eða svæða sem sérstaklega hafa verið skilgreind sem verndarsvæði á grundvelli alþjóðlegra skuldbindinga. Það má hins vegar túlka gildandi ákvæði á þá leið að svæði þar sem finna má tegundir á válista eða ábyrgðartegundir teljist til verndarsvæða en slík túlkun væri umtalsvert rýmri en tilefni er til.


Um 24. gr.

    Með ákvæðinu er lagt til að á eftir 6. gr. laga um Umhverfis- og orkustofnun, nr. 110/2024, komi tvö ný ákvæði, 6. gr. a og 6. gr. b.
     Um a-lið (6. gr. a.)
    Lagt er til að í nýrri 1. mgr. 6. gr. a laganna verði mælt fyrir um að við afgreiðslu leyfisumsókna fyrir starfsemi sem er leyfisskyld samkvæmt mismunandi lögum á ábyrgð Umhverfis- og orkustofnunar skuli stofnunin sameina afgreiðsluna í eitt leyfi eftir því sem mögulegt er og hagkvæmt. Tilgangur ákvæðisins er aukin þjónusta við almenning og skilvirkni sem lýtur að því að stofnunin gegni hlutverki að vera einn afgreiðslustaður umsókna um leyfi.
    Lagt er til að í 2. mgr. 6. gr. a verði mælt fyrir um almenna heimild fyrir Umhverfis- og orkustofnun til að sameina leyfisveitingu og heimildir sem falla undir valdsvið annarra stjórnvalda enda sé heimild fyrir því í viðkomandi sérlögum. Umhverfis- og orkustofnun skal þá afla umsagnar viðkomandi stjórnvalds um fram komna beiðni. Við afgreiðslu leyfis er Umhverfis- og orkustofnun óheimilt að víkja frá niðurstöðu viðkomandi stjórnvalds. Í tillögunni felst ráðstöfun í átt að því að gera Umhverfis- og orkustofnun að einum afgreiðslustað. Í þessu frumvarpi er að finna tillögur til heimilda fyrir slíkri sameiningu í tvennum sérlögum, þ.e. lögum um lax- og silungsveiði, nr. 14/2006, og lögum um náttúruvernd, nr. 60/2013, sbr. 15. og 17. gr. þessa frumvarps en til nánari skýringa er vísað framangreindrar umfjöllunar um 15. og 17. gr.
    Þá er lagt til að í 3. mgr. 6. gr. a komi fram að þau leyfi sem Umhverfis- og orkustofnun ber að birta opinberlega skuli birt á vef stofnunarinnar og teljist það til opinberrar birtingar. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur byggt á því að í opinberri birtingu, þar sem hún er skyld samkvæmt viðkomandi regluverki, felist birting í Stjórnartíðindum. Telja verður að unnt sé að ná markmiðum um tryggt aðgengi almennings að upplýsingum um gildistöku starfsleyfa með birtingu á vef Umhverfis- og orkustofnunar þar sem almenningur mun auðveldlega geta nálgast þær.
     Um b-lið (6. gr. b.)
    Í b-lið er lagt til að við afgreiðslu umsókna um leyfisskyldar framkvæmdir skuli Umhverfis- og orkustofnun tryggja forgang afgreiðslu leyfa vegna virkjunarframkvæmda sem falla undir orkunýtingarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar samkvæmt lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun. Í ákvæðinu felst sérregla gagnvart þeirri almennu meginreglu stjórnsýsluréttar að mál beri að afgreiða í þeirri röð sem þau berast. Þó ber að hafa í huga að slík forgangsröðun má ekki leiða til óhóflegrar seinkunar á afgreiðslu annarra mála sem bíða afgreiðslu hjá stofnuninni. Tillagan samræmist stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins þar sem segir m.a. að verkefni í nýtingarflokki rammaáætlunar skuli látin njóta forgangs í stjórnsýslu orkumála.

Um 25. gr.

    Ákvæðið þarfnast ekki skýringa.