Ferill 158. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 159  —  158. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 283/2026 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) og nr. 287/2026 um breytingar á bókun 10 um að einfalda skoðun og formsatriði vegna vöruflutninga og bókun 31 um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins við EES-samninginn.


Frá utanríkisráðherra.



    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
     1.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 283/2026 frá 25. september 2026 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn og fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/956 frá 10. maí 2023 um að koma á fót aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis.
                  b.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2025/2083 frá 8. október 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) 2023/956 að því er varðar að einfalda og styrkja aðlögunarkerfið við landamæri vegna kolefnis.
     2.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 287/2026 frá 25. september 2026 um breytingar á bókun 10 um að einfalda skoðun og formsatriði vegna vöruflutninga og bókun 31 um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins við EES-samninginn um fjárframlög vegna reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/956 frá 10. maí 2023 um að koma á fót aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á tveimur ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar (fskj. I–IV).

2. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 283/2026 frá 25. september 2026 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 283/2026 fellir inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
     a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/956 frá 10. maí 2023 um að koma á fót kerfi um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM).
     b.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2025/2083 frá 8. október 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) 2023/956 að því er varðar að einfalda og styrkja aðlögunarkerfið við landamæri vegna kolefnis.
    Með reglugerð (ESB) 2023/956, svokallaðri CBAM-reglugerð, er sett á fót aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis, svokallað CBAM-kerfi, þar sem gjöld eru lögð á tilteknar vörur sem fluttar eru inn frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Kerfinu er ætlað að jafna samkeppnisstöðu iðnaðar innan EES gagnvart iðnaði sem er staðsettur í ríkjum utan EES og koma í veg fyrir kolefnisleka. Kolefnisleki á sér stað þegar losunarfrek starfsemi færist frá ríkjum sem búa að metnaðarfullu loftslagsregluverki, líkt og er innan EES, til annarra ríkja þar sem lögbundinn kostnaður vegna losunar gróðurhúsalofttegunda er minni. Fyrirtæki sem falla undir kerfið eru þau sem flytja árlega inn 50 tonn eða meira af vörum sem teljast til CBAM-vara. Innan þessara 50 tonna getur verið ein tollskyld vara eða fleiri sem falla undir CBAM-kerfið. Um er að ræða eftirfarandi vörur:
     a.      áburður,
     b.      ál og álvörur,
     c.      járn og stál,
     d.      sement,
     e.      vetni og
     f.      rafmagn.
    Virkni kerfisins er á þann veg að innflytjendum vara sem falla undir CBAM-kerfið ber að kaupa svokölluð CBAM-vottorð. Verð þeirra mun endurspegla verð ETS-losunarheimilda en verð heimildanna verður endurreiknað og gefið út vikulega af hálfu Evrópusambandsins (ESB). Fjöldi CBAM-vottorða sem kaupa þarf fyrir innfluttar CBAM-vörur er háður losun við framleiðslu varanna, að frádregnu mögulegu kolefnisgjaldi sem þegar hefur verið greitt í upprunalandi vörunnar. Innflutningur á vetni og rafmagni er þó alltaf háður kaupum á CBAM-vottorðum óháð fyrrnefndum 50 tonna þröskuldi.
    Innflytjandi CBAM-vara þarf að fá samþykki sem CBAM-skýrslugjafi til þess að mega flytja vörurnar inn. CBAM-skýrslugjafi safnar upplýsingum um losun varanna sem hann flytur inn frá löndum utan ESB og gefur út og skráir í gagnagrunn svokallaða CBAM-yfirlýsingu um innflutninginn og losun hans. Innflytjandi jafnar svo losunina með því að kaupa og skila inn CBAM-vottorðum fyrir losuninni.
    Með reglugerð (ESB) 2025/2083, sem gerir breytingar á CBAM-gerðinni, var CBAM-kerfið einfaldað og styrkt. Gildissvið kerfisins var þrengt þannig að það næði aðeins til þeirra sem flytja inn áðurnefnd 50 tonn eða meira af CBAM-vörum á ársgrundvelli. Hlutverk og skyldur innflytjenda og óbeinna tollamiðlara voru skýrð, útreikningur innbyggðrar losunar og frádráttur kolefnisverðs í þriðju ríkjum var einfaldaður auk þess sem reglur um CBAM-skrá, CBAM-vottorð og viðurlög voru uppfærðar.
    Upptaka fyrrgreindra gerða í EES-samninginn og innleiðing þeirra hér á landi kallar á setningu sérstakra laga um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM). Fyrirhugað er að umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra leggi fram frumvarp í þessu skyni á yfirstandandi löggjafarþingi.
    Gert er ráð fyrir að lögfesting frumvarpsins hafi fjárhagsáhrif fyrir ríkissjóð. Innleiðing CBAM-kerfisins mun kalla á kostnað vegna uppsetningar og reksturs upplýsingatæknikerfa, þar með talið hugbúnaðar til að halda utan um skráningar tengdar kerfinu og tengingar við gagnagrunn framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Þá munu stjórnvöld bera kostnað vegna stjórnsýslu við framkvæmd kerfisins, svo sem vegna samþykktar innflytjenda sem CBAM-skýrslugjafa, tollafgreiðslu CBAM-vara og eftirlits með skráðum upplýsingum um losun. Kostnaður stjórnvalda verður mestur í upphafi innleiðingar á reglugerðunum. Sam-kvæmt áhrifamati Evrópusambandsins gæti árlegur kostnaður stjórnvalda vegna CBAM-kerfisins numið um 10 til 100 millj. kr. miðað við stærð ríkis, auk kostnaðar við upplýsingatæknikerfi. Samkvæmt fjárhagsmati mun stærsti hluti kostnaðarins falla til árið 2027 eða um 110 til 150 millj. kr. en árlegur rekstrarkostnaður eftir það er talinn verða um 60 til 80 millj. kr. Á móti kostnaði við innleiðingu og rekstur kerfisins er gert ráð fyrir tekjum ríkissjóðs af sölu CBAM-vottorða. Miðað við núverandi forsendur fjárhagsmatsins er áætlað að tekjur ríkissjóðs af kerfinu verði að lágmarki um 350 millj. kr. á ári. Þótt kostnaður verði líklega mestur í upphafi er gert ráð fyrir að tekjur ríkisins af kerfinu verði til lengri tíma meiri en kostnaður við framkvæmd þess.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd og umhverfis- og samgöngunefnd um upptöku reglugerðanna í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerðu þær ekki athugasemdir við upptöku reglugerðanna í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og umrædd gerð kynnt nefndinni sérstaklega.

3. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 287/2026 frá 25. september 2026 um breytingar á bókun 10 um að einfalda skoðun og formsatriði vegna vöruflutninga og bókun 31 um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 287/2026 er nátengd upptöku reglugerðar (ESB) 2023/956 í EES-samninginn (felld inn með ákvörðun nr. 283/2026) og felur í sér út-færslur varðandi tæknileg atriði og fjárframlög vegna CBAM-kerfisins. Bókanir 10 og 31 við EES-samninginn þarfnast því breytinga í samræmi við þátttöku EFTA-ríkjanna innan EES í CBAM-kerfinu. Vegna tengingarinnar þykir rétt að tryggja að ákvarðanirnar taki gildi samtímis og var ákvörðunin því einnig tekin með stjórnskipulegum fyrirvara.

4. Um upptöku ESB-gerða í EES-samninginn og um stjórnskipulegan fyrirvara.
    Á hverju ári er nokkur fjöldi ESB-gerða tekinn upp í EES-samninginn með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar. Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar, nema eitthvert þeirra beiti heimild skv. 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir. Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
    Almennt hafa íslensk stjórnvöld einungis gert stjórnskipulegan fyrirvara þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi, en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu, en einnig hefur tíðkast að heimila stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt til samræmis við viðkomandi ákvörðun.
    Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á aug-ljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.
    Umræddar ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar fela í sér breytingar á EES-samningnum en þar sem þær kalla á lagabreytingar hér á landi voru þær teknar með stjórn-skipulegum fyrirvara. Í samræmi við það sem að framan segir er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeim breytingum á EES-samningnum sem í ákvörðununum felast.


Fylgiskjal I.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 283/2026 frá 25. september 2026 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn.


www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0159-f_I.pdf



Fylgiskjal II.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/956 frá 10. maí 2023 um að koma á fót aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis.


www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0159-f_II.pdf


Fylgiskjal III.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2025/2083 frá 8. október 2025 um breytingu á reglugerð (ESB) 2023/956 að því er varðar að einfalda og styrkja aðlögunarkerfið við landamæri vegna kolefnis.


www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0159-f_III.pdf


Fylgiskjal IV.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 287/2026 frá 25. september 2026 um breytingu á bókun 10 um að einfalda skoðun og formsatriði vegna vöruflutninga og bókun 31 um samvinnu á sérstökum sviðum utan marka fjórþætta frelsisins við EES-samninginn.


www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0159-f_IV.pdf