Ferill 204. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 212  —  204. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um dómstóla, nr. 50/2016 (aðsetur Landsréttar o.fl.).

Frá dómsmálaráðherra.



1. gr.

    Orðin „og hefur aðsetur í Reykjavík“ í 2. gr. laganna falla brott.

2. gr.

    Í stað orðanna „í Reykjavík“ 1. mgr. 27. gr. laganna kemur: þar sem dómstóllinn hefur aðsetur.

3. gr.

    Á eftir 1. málsl. 2. mgr. 34. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er að setja dómara samkvæmt ákvæði þessu þótt hann hafi náð 70 ára aldri.

4. gr.

    Á eftir 1. málsl. 4. mgr. 35. gr. laganna kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Heimilt er að setja dómara skv. 2. mgr. þótt hann hafi náð 70 ára aldri.

5. gr.

    Í stað orðanna „einu sinni“ í 2. málsl. 5. mgr. 54. gr. laganna kemur: tvisvar sinnum.

6. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Með frumvarpi þessu, sem samið er í dómsmálaráðuneytinu, eru lagðar til breytingar á lögum um dómstóla, nr. 50/2016. Veigamesta breytingin sem lögð er til með frumvarpinu lýtur að staðsetningu Landsréttar, nánar tiltekið að ekki verði lengur mælt fyrir um í lögum að sá dómstóll hafi aðsetur í Reykjavík. Í frumvarpinu er einnig að finna tillögur um minni háttar breytingar varðandi setningu í embætti héraðsdómara annars vegar og heimild til endurskipunar aðalmanna við Endurupptökudóm hins vegar.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.
    Landsrétti var komið á fót með lögum um dómstóla, nr. 50/2016, sem tóku gildi 1. janúar 2018 að nokkrum ákvæðum til bráðabirgða undanskildum. Frá upphafi hefur verið mælt fyrir um í 2. gr. laganna að Landsréttur hafi aðsetur í Reykjavík. Þar sem örðugt reyndist fyrir gildistöku laganna að finna húsnæði sem hentaði starfsemi Landsréttar var heimilað með lögum nr. 10/2017 að dómstóllinn hefði aðsetur utan Reykjavíkur til 1. janúar 2022. Sú bráðabirgðaheimild var framlengd um fimm ár með lögum nr. 136/2021. Að óbreyttu mun sú heimild falla úr gildi 1. janúar 2027 og er því nauðsynlegt að huga að endurskoðun ákvæðisins. Þrjár leiðir koma þar til athugunar. Í fyrsta lagi að bráðabirgðaheimildin falli niður og Landsrétti verði fundið aðsetur í Reykjavík, í öðru lagi að bráðabirgðaheimildin verði framlengd að nýju og í þriðja lagi að breyta lögum þannig að ekki verði lengur kveðið þar á um í hvaða sveitarfélagi Landsréttur hafi aðsetur. Þriðja leiðin er lögð til með frumvarpinu.
    Frá því að Landsréttur tók til starfa hefur dómstóllinn haft aðsetur í húsnæði í eigu íslenska ríkisins við Vesturvör í Kópavogi. Komin er nokkuð löng reynsla á aðsetur dómstólsins þar og þykir húsnæðið að mörgu leyti henta starfsemi hans vel. Mikilvægt er að tryggja Landsrétti góð starfsskilyrði til nánustu framtíðar og að húsnæði og aðbúnaður taki mið af þörfum starfseminnar. Sérstaka áherslu þarf að leggja á öryggismál í húsnæðinu og viðeigandi ráðstafanir til að tryggja öryggi dómara, annars starfsfólks og þeirra sem eiga erindi við dómstólinn, samhliða því að stuðla að góðum aðbúnaði og starfsaðstæðum að öðru leyti. Þá verður ekki annað séð en að starfsemi Landsréttar samræmist skipulagsáætlunum sveitarfélagsins.
    Í þessu ljósi þykir ekki ástæða til að hrófla við staðsetningu og starfsemi Landsréttar með flutningi í annað húsnæði auk þess sem vandkvæðum kann að vera bundið að útvega slíkt húsnæði þegar litið er til þarfa dómstólsins. Því er lagt til að ekki verði mælt fyrir um í lögum í hvaða sveitarfélagi dómstóllinn hafi aðsetur og stendur hvorki til þess stjórnskipuleg né rökbundin nauðsyn. Er því lagt til að fyrirmæli þess efnis verði felld brott úr lögum. Rétt er þó að taka fram að gengið er út frá því að Landsréttur hafi ávallt aðsetur á höfuðborgarsvæðinu.
    Aðrar breytingar sem lagðar eru til eru minni háttar. Þannig er lagt til að setja megi héraðsdómara, hvort heldur sem varadómara í einstök mál eða til lengri tíma, þótt viðkomandi hafi náð 70 ára aldri. Er með því gætt samræmis við samsvarandi ákvæði um Hæstarétt Íslands og Landsrétt. Þá er lagt til að fyrirmælum um að ekki megi skipa sama mann sem aðalmann í Endurupptökudóm oftar en einu sinni verði breytt þannig að það megi gera tvisvar. Komin er nokkur reynsla á starfsemi Endurupptökudóms og þykir hún sýna að takmörkun gildandi laga gangi óþarflega langt og hamli jafnvel samfellu í starfsemi dómsins.

3. Meginefni frumvarpsins.
3.1. Staðsetning Landsréttar.
    Í 2. gr. laga um dómstóla segir að Landsréttur sé áfrýjunardómstóll og hafi aðsetur í Reykjavík. Þá segir í 1. mgr. 27. gr. sömu laga að Landsréttur haldi dómþing í Reykjavík nema sérstök ástæða sé til annars. Með 1. og 2. gr. frumvarpsins eru lagðar til breytingar á þessu þannig að í 2. gr. verði einungis kveðið á um að Landsréttur sé áfrýjunardómstóll en greinin innihaldi ekki fyrirmæli um aðsetur dómstólsins. Líkt og rakið er í 2. kafla er gert ráð fyrir að starfsemin verði áfram að Vesturvör í Kópavogi en komi til þess síðar meir að útvega þurfi dómstólnum nýtt húsnæði er gengið út frá að það verði ávallt á höfuðborgarsvæðinu. Er þá m.a. horft til nálægðar við aðrar stofnanir, svo sem stærstu héraðsdómstóla landsins og Hæstarétt Íslands, ríkissaksóknara, héraðssaksóknara og lögreglu, sem og íbúafjölda og þess að flesta lögmenn er að finna á höfuðborgarsvæðinu. Ef finna þyrfti dómstólnum nýtt aðsetur yrði það verkefni dómsmálaráðuneytis og Framkvæmdasýslu – Ríkiseigna að finna hentugt húsnæði í samráði við dómstólasýsluna og Landsrétt sjálfan, að teknu tilliti til þarfa dómstólsins og kostnaðar. Sú breyting sem lögð er til á 27. gr. laga um dómstóla leiðir af hinni fyrri; þannig verði ekki lengur mælt fyrir um að Landsréttur haldi dómþing í Reykjavík heldur þar sem dómstóllinn hefur aðsetur.

3.2. Setning héraðsdómara.
    Í 34. og 35. gr. laga um dómstóla er að finna ákvæði um setningar héraðsdómara, hvort heldur sem varadómara sem taka sæti í einstökum málum eða til lengri tíma. Í báðum tilvikum er mælt fyrir um að sá sem settur er sem héraðsdómari skuli uppfylla skilyrði til að fá skipun í það embætti. Umrædd ákvæði voru að mestu tekin óbreytt upp í gildandi lög um dómstóla úr eldri lögum um dómstóla, nr. 15/1998. Á sama tíma voru ákvæði um setningu dómara við Hæstarétt, sbr. 17. og 18. gr. laganna, endurskoðuð og ný ákvæði sett um setningu dómara við Landsrétt, sem er að finna í 25. og 26. gr. laganna. Á báðum stöðum er skýrlega mælt fyrir um að setja megi dómara við þessa dómstóla, sem varadómara eða til lengri tíma, þótt viðkomandi hafi náð 70 ára aldri. Er það nauðsynlegt vegna fyrirmæla í 5. mgr. 52. gr. laga um dómstóla um að veita skuli dómara lausn frá embætti ekki síðar en frá þeim degi er hann nær 70 ára aldri. Samsvarandi breyting var ekki gerð á þeim ákvæðum sem varða setningu héraðsdómara. Það hefur ekki valdið vandkvæðum en rétt þykir að samræma ákvæðin að þessu leyti enda eiga öll sömu sjónarmið við. Er það lagt til með 3. og 4. gr. frumvarpsins.

3.3. Endurskipun dómenda við Endurupptökudóm.
    Með lögum nr. 47/2020 sem að stærstum hluta tóku gildi 1. desember 2020 var komið á fót sérdómstól, Endurupptökudómi, sem sker úr um hvort heimila skuli endurupptöku dómsmála sem dæmd hafa verið í héraði, Landsrétti eða Hæstarétti, sbr. 54. gr. laga um dómstóla. Ráðherra skipar fimm dómendur í dóminn; tvo að undangenginni auglýsingu en þrjá að fengnum tilnefningum reglulegu dómstiganna þriggja. Jafnmargir varamenn eru skipaðir á sama hátt.
    Samkvæmt 5. mgr. 54. gr. laga um dómstóla er skipunartími í dóminn fimm ár en þó þannig að skipunartími eins manns rennur út hvert ár. Samkvæmt sama ákvæði verður sami maður ekki skipaður sem aðalmaður í dóminn oftar en einu sinni. Með 5. gr. frumvarpsins er lagt til að þetta verði rýmkað þannig að eftirleiðis verði heimilt að skipa sama mann sem aðalmann tvisvar sinnum. Er þar m.a. horft til þess að málafjöldi við dóminn hefur dregist töluvert saman frá því sem var í upphafi og þess að umsækjendur um þau embætti sem auglýst hafa verið síðari ár hafa yfirleitt ekki verið margir. Breyting í þessa veru kann jafnframt að stuðla enn frekar að samfellu í starfsemi dómsins þar sem dómendum sem hafa áhuga á að starfa áfram í Endurupptökudómi gefst að öðrum skilyrðum fullnægðum tækifæri til að gera það. Þá er einnig til þess að líta að þegar dómendum við Endurupptökudóm er veitt lausn af einhverjum ástæðum er sá sem kemur í stað viðkomandi skipaður út skipunartíma þess fyrri. Það getur leitt til þess að í sumum tilvikum er aðalmaður skipaður til mun skemmri tíma en fimm ára, t.d. í eitt til tvö ár, og er þá óheimilt að skipa hann aftur. Það þykir óheppilegt. Í ljósi framangreinds og þeirrar reynslu sem nú hefur fengist af starfsemi Endurupptökudóms þykir tilefni til að leggja umrædda breytingu til.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ákvæðum laga um dómstóla sem varða aðsetur Landsréttar, samræmingu ákvæða um setningar dómara og heimild til endurskipunar aðalmanna við Endurupptökudóm. Frumvarpið er ekki talið fela í sér álitaefni sem kalla á sérstaka umfjöllun um samræmi við stjórnarskrá eða alþjóðlegar skuldbindingar.

5. Samráð.
Frumvarpið snertir fyrst og fremst dómara og starfsfólk Landsréttar en jafnframt lögmenn, lögreglu, saksóknara, málsaðila og aðra sem þurfa að mæta í húsnæði Landsréttar. Haft hefur verið samráð við Framkvæmdasýslu - Ríkiseignir og dómstólasýsluna við undirbúning frumvarpsins.
Áform um lagasetningu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 16. júlí - 4. ágúst 2026 (mál nr. S-135/2026). Umsögn barst frá einum einstaklingi og þótti hún ekki gefa tilefni til endurskoðunar áformaðrar lagasetningar. Drög að frumvarpi voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda 10.-18. september 2026 (mál nr. S-170/2026) og bárust engar umsagnir.

6. Mat á áhrifum.
    Landsréttur hefur frá upphafi haft aðsetur að Vesturvör í Kópavogi, nú í tæplega níu ár. Með frumvarpinu er lagt til að fyrirmæli í lögum um að dómstóllinn hafi aðsetur í Reykjavík verði felld brott, sem felur í sér að óbreyttu ástandi verði viðhaldið. Ekki er því gert ráð fyrir að frumvarpið hafi áhrif á ríkissjóð. Þá verður ekki séð að breytingar á ákvæðum um setningar dómara eða skipun í Endurupptökudóm hafi áhrif á ríkissjóð.
Þar sem ráðgert er að Landsréttur hafi áfram aðsetur á sama stað og frá upphafi er ekki um breytingu að ræða sem áhrif hefur á jafnrétti kynjanna.

Um einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.

    Með þessari grein er lagt til að fyrirmæli um að Landsréttur hafi aðsetur í Reykjavík verði felld brott. Ákvæðið þarfnast að öðru leyti ekki skýringa en nánar um sjónarmið að baki því vísast til 2. kafla og kafla 3.1.

Um 2. gr.

    Breytingin sem lögð er til á 1. mgr. 27. gr. laganna leiðir af 1. gr. frumvarpsins. Eftir breytinguna mun Landsréttur halda dómþing þar sem dómstóllinn hefur aðsetur nema sérstök ástæða sé til annars. Heimild til að halda dómþing annars staðar helst því óbreytt. Ákvæðið þarfnast að öðru leyti ekki skýringa.

Um 3. gr.

    Í 34. gr. laganna er fjallað um setningu varadómara í héraði, þ.e. dómara sem eru settir til að taka sæti í einstökum málum. Lagt er til að skýrt verði kveðið á um að setja megi varadómara þótt hann hafi náð 70 ára aldri, enda uppfylli hann önnur skilyrði til að vera skipaður í embættið. Er það til samræmis við hliðstæð ákvæði um setningu varadómara við Hæstarétt og Landsrétt.

Um 4. gr.

    Í 35. gr. laganna er fjallað um setningar héraðsdómara til lengri tíma, yfirleitt nokkurra mánaða, vegna leyfa eða annarra forfalla dómara. Lagt er til að skýrt verði kveðið á um að heimilt verði að setja dómara á grundvelli 2. mgr. 35. gr. laganna þótt hann hafi náð 70 ára aldri. Rétt er að taka fram að þetta á ekki við þegar sett er í embætti í stað dómara sem fengið hefur leyfi á grundvelli 3. mgr. 35. gr. laganna, þ.e. til allt að sex ára til að geta tekið sæti í alþjóðlegum dómstóli eða tekið við starfi við aðra alþjóðastofnun eða þegið setningu sem landsréttardómari eða hæstaréttardómari. Þessi breyting er til samræmis við hliðstæð ákvæði um setningu dómara við Hæstarétt og Landsrétt.

Um 5. gr.

    Með þessari grein er lagt til að fyrirmælum í 5. mgr. 54. gr. laganna, um að ekki megi skipa sama mann oftar en einu sinni sem aðalmann, verði breytt. Þannig verði eftirleiðis kveðið á um að sama mann megi ekki skipa sem aðalmann við Endurupptökudóm oftar en tvisvar, nái frumvarpið fram að ganga. Ákvæðið þarfnast að öðru leyti ekki skýringa en um sjónarmið að baki því vísast til kafla 3.3.

Um 6. gr.

    Ákvæðið þarfnast ekki skýringa.