Ferill 222. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 237  —  222. mál.




Tillaga til þingsályktunar


um skattumhverfi gagnavera.


Flm.: Hildur Sverrisdóttir, Jens Garðar Helgason, Guðlaugur Þór Þórðarson, Bryndís Haraldsdóttir, Berglind Harpa Svavarsdóttir, Diljá Mist Einarsdóttir, Ólafur Adolfsson, Ingveldur Anna Sigurðardóttir.


    Alþingi ályktar að fela fjármála- og efnahagsráðherra að semja og leggja fram frumvarp á Alþingi um skattumhverfi gagnavera sem miði að því að skýra lagaumgjörð starfseminnar og auka fyrirsjáanleika í rekstrarumhverfi þeirra. Frumvarpið skal lagt fram eigi síðar en á vorþingi 2027.

Greinargerð.

    Með tillögunni er lagt til að Alþingi feli fjármála- og efnahagsráðherra að semja og leggja fram á Alþingi frumvarp til laga sem miði að skýrara og fyrirsjáanlegra skattumhverfi gagnavera og taki af allan vafa um þær reglur sem gilda um skattlagningu starfseminnar. Frumvarpið skal lagt fram á Alþingi eigi síðar en á vorþingi 2027. Við undirbúning frumvarpsins verði sérstaklega tekin til skoðunar skattaleg meðferð starfsemi gagnavera, þar á meðal reglur um virðisaukaskattsskyldu og innskattsrétt, fastar starfsstöðvar erlendra aðila ásamt milliverðlagningu í viðskiptum tengdra félaga. Við mótun frumvarpsins verði jafnframt tekið mið af skuldbindingum Íslands samkvæmt EES-samningnum og viðeigandi alþjóðlegum skattareglum.
    Á rúmlega áratug hefur orðið mikil uppbygging á sviði gagnavera- og vinnslu hér á landi. Fyrstu gagnaverin litu dagsins ljós skömmu eftir hrun efnahagskerfisins en síðan þá hefur verið mikil gróska í geiranum. Framan af var starfsemi og notkun gagnaveranna aðallega tengd rafmyntagrefti en síðan þá hefur áherslan fremur verið lögð á hátæknireiknivinnu. Augljós tækifæri eru til frekari vaxtar vegna tilkomu gervigreindar. Aðstæður til standsetningar gagnavera hér á landi eru enn fremur með besta móti, enda raforka hér ódýr og framboð stöðugt, auk þess sem svalt loftslag getur nýst til að draga úr kostnaði sem hlýst af kælingu gagnaveranna.
    Nefnda þróun má glögglega sjá í ýmsum hagtölum. Í fyrra var fjárfesting í gagnaverum umfangsmikil og raunar meginástæða þess að fjárfesting atvinnuveganna jókst milli ára. Í nýlegri samantekt Landsvirkjunar var enn fremur greint frá því að á tímabilinu frá því í september árið 2024 þar til í ágúst árið 2025 hefðu innflutningsverðmæti vegna tölva og raftækjabúnaðar fyrir gagnaver numið rúmlega einum milljarði bandaríkjadollara eða um 123 milljörðum kr. á gengi þess dags. Sé horft fram hjá fjárfestingum gagnavera í fyrra bera hagtölur með sér að almenn atvinnuvegafjárfesting sé nokkuð óbreytt frá fyrra ári. Áfram er gert ráð fyrir vexti í greininni en vísbendingar eru á lofti um að fjárfesting í öðrum geirum dragist saman.
    Staðan er enn fremur sú að fjárfesting í geiranum er, ásamt vexti einkaneyslu, ein helsta skýring hagvaxtar í hagkerfinu. Sveiflur í fjárfestingum iðnaðarins hafa enn fremur mælanleg áhrif á útflutning hagkerfisins. Áætlað er að útflutningstekjur greinarinnar hafi verið á þriðja tug milljarða króna árið 2025.
    Þessi vöxtur greinarinnar hefur náðst þrátt fyrir nokkrar áskoranir sem blasað hafa við, einkum og sér í lagi vegna óvissu í skattkerfinu um hvaða reglur myndu gilda um greinina. Í árdaga hennar lét ríkisskattstjóri uppi nokkur bindandi álit, sem flest eru óbirt, um hvaða reglur myndu gilda. Álitaefnin lutu m.a. að föstum starfsstöðvum og því hvaða angar starfseminnar bæru virðisaukaskatt.
    Brugðist var við ástandinu að hluta með setningu laga nr. 163/2010, um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, en með þeim var m.a. bætt við skilgreiningu á því hvað teldist vera útflutningur á rafrænt afhentri þjónustu og þar með velta sem undanþegin væri skattskyldu samkvæmt lögunum. Við meðferð þingmálsins komu fram athugasemdir ýmissa aðila um að rekstrarumhverfi íslenskra gagnavera væri ekki sambærilegt við umhverfi gagnavera í Evrópu, m.a. vegna þess að bæði íslensk gagnaver og erlendir viðskipavinir þeirra væru tvískattaðir að því er varðar virðisaukaskatt, annars vegar þegar netþjónar væru fluttir til landsins og hins vegar þegar þjónusta gagnavera væri flutt úr landi og seld til viðskiptavina. Í kjölfarið var aukið við lögin með setningu nýrrar 42. gr. A ( þskj. 581, 208. mál á 139. löggjafarþingi). Síðar kom í ljós að breytingin samræmdist ekki EES-samningnum og voru breytingarnar felldar brott að mestu með lögum nr. 24/2013, um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum. Þó var ráðherra veitt heimild til reglusetningar í reglugerð um endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna innflutnings erlendra fyrirtækja á vörum auk reglna um kaup á vörum og þjónustu innan lands.
    Í framkvæmd hafa ýmis álitamál verið uppi varðandi virðisaukaskattsskyldu gagnavera og í reynd hefur skattyfirvöldum og dómstólum verið falið að fella starfsemina að gildandi regluverki. Sú framkvæmd hefur jafnan, eins og oft vill verða með skatteftirlit, verið afturvirk og komið nokkuð aftan að greininni. Álitamálin hafa m.a. lotið að því hvort gagnaverin uppfylli skilyrði fyrir því að vera skráð á virðisaukaskattsskrá, sbr. dóm Hæstaréttar Íslands frá 20. desember 2024 í máli nr. 22/2024, úrskurð Landsréttar frá 3. október 2024 í máli nr. 99/2024 og nú síðast dóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá 20. nóvember 2025 í máli nr. E-169/2025, auk samsvarandi úrskurða fyrir yfirskattanefnd, en skráning er forsenda þess að rekstraraðilar geti innskattað aðkeyptar vörur og þjónustu. Þá rataði nýverið fyrir dóm ágreiningur um það hvort telja ætti þjónustu gagnavera aðstöðuleigu í þeim tilfellum sem viðskiptavinir þeirra gera kröfu um að tölvubúnaður sé í eigu annars aðila en gagnaversins, þ.e. viðskiptavinarins eða þriðja aðila. Slík aðstöðuleiga er virðisaukaskattsskyld hér á landi ólíkt því sem almennt gildir um útflutta þjónustu veranna. Við þetta bætist óvissa sem ríkt hefur vegna framkvæmdar ríkisskattstjóra í málum sem varða milliverðlagningu á þjónustu sem erlend móðurfélög veita dótturfélögum hér á landi.
    Gríðarleg tækifæri eru til staðar fyrir frekari vöxt hér á landi á þessu sviði, einkum og sér í lagi í ljósi þróunar, uppbyggingar og aukinna umsvifa á sviði gervigreindar. Mikilvægt er að óljós ákvæði í skattalögum og ófyrirsjáanlegar ákvarðanir skattyfirvalda standi ekki í vegi fyrir erlendri fjárfestingu. Af þeim sökum leggja flutningsmenn til að fjármála- og efnahagsráðherra verði falið að leggja fram frumvarp á Alþingi sem skýrir frekar skattumhverfi greinarinnar með það að markmiði að auka fyrirsjáanleika í starfsemi gagnavera.