Ferill 204. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 393  —  204. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um dómstóla, nr. 50/2016 (aðsetur Landsréttar o.fl.).

Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá dómsmálaráðuneyti, dómstólasýslunni og Landsrétti.
    Nefndinni bárust tvær umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.

Umfjöllun nefndarinnar.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um dómstóla, nr. 50/2016, annars vegar hvað varðar staðsetningu Landsréttar og hins vegar varðandi setningu í embætti héraðsdómara og heimild til endurskipunar aðalmanna við Endurupptökudóm.
    Landsrétti var komið á fót með lögum um dómstóla, nr. 50/2016, en í 2. gr. laganna er kveðið á um að Landsréttur hafi aðsetur í Reykjavík. Aftur á móti var heimilað með lögum nr. 10/2017 að dómstóllinn hefði aðsetur utan Reykjavíkur tímabundið, til 1. janúar 2022, þar sem ekki tókst að finna húsnæði sem hentaði dómstólnum fyrir gildistöku laganna þann 1. janúar 2018. Sú bráðabirgðaheimild var framlengd um fimm ár með lögum nr. 136/2021 en mun að óbreyttu falla úr gildi þann 1. janúar 2027. Frá því að Landsréttur tók til starfa hefur dómstóllinn haft aðsetur í Kópavogi. Með frumvarpinu er lagt til að fallið verði frá því að kveða á um það í lögum um dómstóla hvar Landsréttur skuli hafa aðsetur.
    Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi þess að Landsrétti séu tryggð góð starfsskilyrði til nánustu framtíðar og að húsnæði og aðbúnaður taki mið af þörfum starfseminnar, ekki síst hvað varðar öryggismál. Meiri hlutinn tekur því undir sjónarmið sem fram koma í umsögn um málið frá dómstólasýslunni og Landsrétti um að farið verði í tilteknar framkvæmdir sem er brýnt að ráðast í til að tryggja betur öryggi dómara, starfsfólks og annarra sem eiga erindi í dómhúsið til samræmis við tillögur sem fram koma í öryggisúttekt ríkislögreglustjóra frá október 2023. Samhliða nauðsynlegum endurbótum á núverandi húsnæði telur meiri hlutinn að huga þurfi að framtíðarsýn hvað varðar fullnægjandi húsnæði fyrir dómstólinn þar sem gætt verði að þeirri sérstöðu og skipulagi sem starfsemi dómstóla krefst. Í ljósi þess að ekki liggur fyrir tillaga um flutning Landsréttar í annað húsnæði að svo stöddu telur meiri hlutinn rétt að fallið verði frá ákvæði í núgildandi lögum sem mælir fyrir um staðsetningu dómstólsins í Reykjavík. Meiri hlutinn tekur þó undir það sem fram kemur í greinargerð með frumvarpinu um að gengið verði út frá því að Landsréttur muni ávallt hafa aðsetur á höfuðborgarsvæðinu.
    Þá telur meiri hlutinn það til bóta, líkt og lagt er til í frumvarpinu, að setja megi héraðsdómara, hvort heldur sem varadómara í einstöku máli eða til lengri tíma, þrátt fyrir að viðkomandi hafi náð 70 ára aldri. Með því er gætt samræmis við samsvarandi ákvæði um Hæstarétt Íslands og Landsrétt. Meiri hlutinn tekur jafnframt undir að tilefni sé til að rýmka heimild til endurskipunar dómenda við Endurupptökudóm enda kunni það að stuðla að aukinni samfellu í starfsemi dómsins, m.a. í ljósi þeirrar reynslu sem hefur fengist af starfsemi Endurupptökudóms frá því að hann tók til starfa á grundvelli laga nr. 47/2020.
    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Grímur Grímsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Víðir Reynisson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins. Grímur Grímsson og Víðir Reynisson rita undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.

Alþingi, 10. nóvember 2026.

Víðir Reynisson, form. Sandra Sigurðardóttir, frsm. Grímur Grímsson.
Guðmundur Ari Sigurjónsson. Jón Pétur Zimsen. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir.
Sigurður Örn Hilmarsson.