Ferill 294. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 332 — 294. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um almannavarnir.
Frá dómsmálaráðherra.
I. KAFLI
Gildissvið, markmið og orðskýringar.
1. gr.
Gildissvið og markmið.
Markmið almannavarna er að undirbúa, skipuleggja og gera ráðstafanir sem miða að því að koma í veg fyrir og takmarka, eftir því sem unnt er, að almenningur verði fyrir líkams- eða heilsutjóni eða umhverfi eða eignir verði fyrir tjóni, hvort sem er af mannavöldum eða ekki og hvort sem það er af völdum náttúruvár, heilbrigðisvár, netöryggisógnar, hernaðaraðgerða eða af öðrum ástæðum.
2. gr.
Grundvallarreglur almannavarna.
1. Sviðsábyrgðarreglan: Sá aðili sem fer venjulega með stjórn tiltekins sviðs samfélagsins eða tiltekins svæðis eða umdæmis skal skipuleggja viðbrögð og koma að stjórn aðgerða þegar hætta steðjar að.
2. Grenndarreglan: Staðbundin stjórnvöld undirbúa fyrirbyggjandi ráðstafanir og viðbragðsáætlanir.
3. Samkvæmnisreglan: Yfirvald eða stofnun sér á hættustundu um björgunarstörf á verksviði sínu.
4. Samræmingarreglan: Allir viðbragðsaðilar samhæfa störf sín við undirbúning aðgerða þannig að búnaður og mannafli sé nýttur á skilvirkan hátt.
3. gr.
Orðskýringar.
1. Aðgerðaáætlun: Áætlun sem gerð er á grundvelli greiningar og mats á áhættu og áfallaþoli þar sem tilgreint er til hvaða aðgerða eigi að grípa á tímabili áætlunarinnar til þess að draga úr áhættu og styrkja áfallaþol.
2. Almannavarnaaðgerð: Aðgerð viðbragðsaðila sem miðar að því að koma í veg fyrir og takmarka, eftir því sem unnt er, að almenningur verði fyrir líkams- eða heilsutjóni eða umhverfi og/eða eignir verði fyrir tjóni í samræmi við markmið laga þessara.
3. Almannavarnastig: Almannavarnastig lýsir alvarleika atburðar eða ástands, umfangi viðbúnaðar almannavarna og hversu brýn þörf er á að bregðast við í ljósi þess hversu alvarlegt eða umfangsmikið viðgangsefnið er.
4. Áfallaþol: Geta kerfis eða samfélags til að forðast, draga úr eða yfirstíga hættuástand með fyrirbyggjandi aðgerðum og viðbrögðum.
5. Endurreisn: Ferli sem felur í sér ákvarðanir og aðgerðir sem miða að því að endurheimta eða bæta lífsskilyrði samfélaga eftir áfall.
6. Greining og mat á áhættu: Heildarferli sem felur í sér að greina, lýsa og meta áhættu. Í áhættumati felst að ákvarða umfang og eðli áhættu og/eða áhættuþátta, þar á meðal greina óæskilegan atburð, ákvarða áhættuviðmið, meta líkur hans og umfang afleiðinga, auk óvissu sem fylgir matinu. Jafnframt felst í áhættumati samanburður á niðurstöðum við áhættuviðmið til að ákvarða hvort áhættan sé ásættanleg. Á grundvelli greiningar og mats á áhættu eru gerðar viðbragðs- og aðgerðaáætlanir og samanburður á niðurstöðum við áhættuviðmið til að ákvarða hvort áhættan sé ásættanleg.
7. Hættustund: Ástand sem hefst þegar hættustigi, neyðarstigi eða þjóðarvá er lýst yfir og lýkur þegar hættustigi, neyðarstigi eða þjóðarvá er aflýst. Á hættustundu virkjast tilteknar valdheimildir sem kveðið er á um í lögum þessum.
8. Neyðar- og öryggisbirgðir: Þær vörur, þau tæki og fjarskipti sem eru nauðsynleg til þess að tryggja lífsafkomu þjóðarinnar og þurfa að vera fyrir hendi svo að unnt sé að vernda líf og heilsu almennings og tryggja órofa virkni mikilvægra innviða sem eru nauðsynlegir til að sinna grunnþörfum íbúa og samfélags á hættustundu. Neyðar- eða öryggisbirgðir geta verið í eigu eða á forræði opinberra aðila eða einkaaðila.
9. Ómissandi innviðir: Kerfi, eignir, aðstaða, búnaður, net, mannvirki eða þjónusta sem er nauðsynleg til að tryggja grunnþarfir samfélagsins og samfélagið getur ekki verið án í sólarhring eða skemur. Ómissandi innviðir geta verið í eigu eða á forræði opinberra aðila eða einkaaðila.
10. Stjórn og samhæfing almannavarnaaðgerða: Samhæfing felur m.a. í sér samhæfingu og skipulag björgunar- og hjálparstarfa vegna hættu eða tjóns sem getur eða hefur skapast og stjórn almannavarnaaðgerða á landi, sjó eða í lofti í samvinnu við samhæfingarstöð, ef við á.
11. Viðbragðsáætlun: Áætlun sem er gerð á grundvelli greiningar og mats á áhættu og áfallaþoli þar sem lýst er viðbrögðum á hættustundu. Í viðbragðsáætlun er m.a. fjallað um skipulagningu aðgerða, viðbúnað og hlutverk viðbragðsaðila, tilgreiningu viðbragðsaðila, samhæfingu og stjórn viðbragðsaðila, samgöngur og fjarskipti, sálfélagslegan stuðning og aðstoð við fólk sem verður fyrir áhrifum af hættuástandi eða hamförum, sérstöðu fatlaðs fólks og viðkvæmra hópa í samfélaginu, hagvarnir, birgðir og neyðarflutninga til og frá landi og hvernig tryggja eigi órofna starfsemi og þjónustu.
II. KAFLI
Stjórnskipulag almannavarna.
4. gr.
Umsjón almannavarna.
Ráðherra er æðsti yfirmaður almannavarna í landinu.
Ríkislögreglustjóri annast málefni almannavarna í umboði ráðherra.
5. gr.
Viðbragðsaðilar almannavarna.
Til viðbragðsaðila almannavarna teljast einnig þeir sem hafa hlutverki að gegna samkvæmt viðbragðsáætlun hverju sinni.
6. gr.
Ráðherranefnd um almannaöryggi og varnarmál.
1. Að fjalla um stefnu stjórnvalda í almannavörnum.
2. Að fjalla um greiningar og mat á áhættu og áfallaþoli og fyrirbyggjandi aðgerðir.
3. Að fjalla um tilgreiningu og stöðu ómissandi innviða.
4. Að fjalla um ákvarðanir og fyrirmæli á grundvelli 42. gr.
Ráðherranefnd um almannaöryggi og varnarmál skal hittast tvisvar á ári til að ræða málefni almannavarna eða oftar ef aðstæður krefjast þess.
Ráðherranefnd um almannaöryggi og varnarmál getur vísað tilteknum málum til samráðshóps ráðuneytisstjóra um almannavarnir, sbr. 9. gr.
7. gr.
Stefna stjórnvalda um almannavarnir.
Við stefnumörkun stjórnvalda skal haft samráð við viðeigandi stofnanir, sveitarfélög og hag- og viðbragðsaðila eftir því sem við á.
8. gr.
Samstarf ríkis og sveitarfélaga um almannavarnir.
9. gr.
Samráðshópur ráðuneytisstjóra um almannavarnir.
Í samráðshópi ráðuneytisstjóra eiga sæti ráðuneytisstjóri þess ráðuneytis sem fer með málefni almannavarna, ráðuneytisstjóri þess ráðuneytis sem fer með opinber fjármál og ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins sem er jafnframt formaður hópsins. Á fundum samráðshópsins taka sæti ráðuneytisstjórar annarra ráðuneyta í samræmi við það málefni sem er til umræðu hverju sinni.
Umsýsla vegna samráðshóps ráðuneytisstjóra, boðun og undirbúningur funda er í höndum þess ráðuneytis sem fer með málefni almannavarna.
10. gr.
Ríkislögreglustjóri.
Hlutverk ríkislögreglustjóra varðandi fyrirbyggjandi aðgerðir, aðgerðir á hættustundu og endurreisn er í samræmi við ákvæði III.–VI. kafla.
Ríkislögreglustjóri tekur þátt í alþjóðlegu samstarfi stjórnvalda um almannavarnir.
Ríkislögreglustjóra er heimilt að semja við sjálfseignarstofnanir, félagasamtök eða aðra aðila um að þeir skuli annast framkvæmd almannavarna á tilteknu sviði.
Ríkislögreglustjóri skal skrá upplýsingar og tryggja varðveislu gagna í samræmi við hlutverk sitt og er heimilt að starfrækja miðlæga gagnagrunna og upplýsingakerfi í þágu almannavarna.
11. gr.
Samráðshópur ríkislögreglustjóra.
Ríkislögreglustjóri er formaður samráðshópsins og fer með umsýslu hans. Ráðherra setur með reglugerð, að höfðu samráði við ríkislögreglustjóra, nánari ákvæði um skipan, starfshætti, og skipulag samráðshópsins.
Samráðshópur ríkislögreglustjóra skal hittast að lágmarki tvisvar sinnum á ári eða oftar ef tilefni er til. Þá geta aðilar í samráðshópnum óskað eftir því að boðað verði til fundar.
12. gr.
Almannavarnanefndir.
Almannavarnanefnd skal skipuð að lágmarki fjórum fulltrúum sveitarfélaga auk lögreglustjóra viðkomandi lögregluumdæmis. Almannavarnanefnd kýs sér sjálf formann og varaformann.
Sveitarstjórnir ráða starfsmenn almannavarnanefnda, ef við á, og greiða kostnað af störfum þeirra.
Hlutverk almannavarnanefnda varðandi fyrirbyggjandi aðgerðir er í samræmi við ákvæði III. kafla.
III. KAFLI
Fyrirbyggjandi aðgerðir.
13. gr.
Fyrirbyggjandi aðgerðir og sviðsábyrgð.
Forsætisráðherra sker úr um hver ber ábyrgð á fyrirbyggjandi aðgerðum á tilteknu sviði samfélagsins ef vafi leikur á því eða upp kemur ágreiningur.
14. gr.
Fræðsla og forvarnir.
15. gr.
Fyrirbyggjandi aðgerðir og ábyrgð ríkislögreglustjóra.
Ríkislögreglustjóri ber ábyrgð á viðbragðsáætlunum sem taka til ástands eða atburða sem hafa áhrif á landið allt í samráði við viðeigandi aðila. Ríkislögreglustjóri skal jafnframt sjá til þess að æfingar séu haldnar samkvæmt þeim viðbragðsáætlunum.
Ríkislögreglustjóri annast samræmingu viðbragðsáætlana og er heimilt að setja viðmið fyrir almannavarnanefndir, viðbragðsaðila almannavarna, ráðuneyti, stofnanir ríkis og sveitarfélaga og ábyrgðaraðila ómissandi innviða um hvaða viðbragðsáætlanir skuli að lágmarki gera.
Ríkislögreglustjóri skal gera áætlun um fyrirkomulag, framkvæmd og umfang æfinga sem almannavarnanefndir, viðbragðsaðilar, ráðuneyti, stofnanir ríkis og sveitarfélaga og ábyrgðaraðilar ómissandi innviða skulu halda á grundvelli viðbragðsáætlana, í samráði við hlutaðeigandi aðila.
Ríkislögreglustjóri, almannavarnanefndir, viðbragðsaðilar almannavarna, stofnanir ríkis og sveitarfélaga, ábyrgðaraðila ómissandi innviða og einkaaðilar sem hafa hlutverki að gegna í skipulagi almannavarna samkvæmt samningi skulu án endurgjalds taka þátt í æfingu viðbragðsáætlunar eftir því sem þurfa þykir.
16. gr.
Fyrirbyggjandi aðgerðir og skyldur ráðherra og ríkisstofnana.
Einstakir ráðherrar og ríkisstofnanir á þeirra vegum skulu greina og meta áhættu og áfallaþol fyrir þann hluta samfélagsins sem fellur undir starfssvið þeirra. Slík greining skal fara fram á a.m.k. fjögurra ára fresti.
Á grundvelli greiningar og mats á áhættu og áfallaþoli skulu ráðherrar og ríkisstofnanir á þeirra vegum gera aðgerðaáætlanir. Þá skulu sömu aðilar gera viðbragðsáætlanir á sínu sviði. Þessir aðilar geta óskað eftir aðstoð ríkislögreglustjóra við gerð viðbragðs- og aðgerðaáætlana sem annast samræmingu þeirra, sbr. 3. mgr. 15. gr.
Einstakir ráðherrar og ríkisstofnanir á þeirra vegum bera ábyrgð á að æfingar séu haldnar samkvæmt viðbragðsáætlunum sem heyra undir þau, á grundvelli áætlunar ríkislögreglustjóra, sbr. 15. gr.
17. gr.
Fyrirbyggjandi aðgerðir og skyldur almannavarnanefnda.
Á grundvelli greiningar og mats á áhættu og áfallaþoli skulu almannavarnanefndir og hlutaðeigandi lögreglustjóri gera aðgerðaáætlanir. Þá skulu sömu aðilar gera viðbragðsáætlanir hver fyrir sitt umdæmi. Þessir aðilar geta óskað eftir aðstoð ríkislögreglustjóra við gerð viðbragðs- og aðgerðaáætlana, sbr. 3. mgr. 15. gr.
Almannavarnanefndir bera ábyrgð á að æfingar séu haldnar samkvæmt viðbragðsáætlunum sem heyra undir þær á grundvelli áætlunar ríkislögreglustjóra, sbr. 15. gr.
Almannavarnanefndum er heimilt að hafa samvinnu sín á milli um gerð viðbragðsáætlana.
18. gr.
Fyrirbyggjandi aðgerðir og skyldur sveitarfélaga.
Sveitarfélög skulu greina og meta áhættu og áfallaþol í sveitarfélagi sínu. Slík greining skal fara fram á a.m.k. fjögurra ára fresti.
Á grundvelli greiningar og mats á áhættu og áfallaþoli skulu sveitarfélög gera aðgerðaáætlanir. Þá skulu þau jafnframt gera viðbragðsáætlanir. Sveitarfélög geta óskað eftir aðstoð ríkislögreglustjóra við gerð viðbragðs- og aðgerðaáætlana, sbr. 3. mgr. 15. gr.
Sveitarfélög bera ábyrgð á að æfingar séu haldnar samkvæmt viðbragðsáætlunum sem heyra undir þau á grundvelli áætlana ríkislögreglustjóra, sbr. 15. gr.
Við framfylgd þessarar greinar skal sveitarfélag hafa samráð við hlutaðeigandi almannavarnanefnd.
19. gr.
Ákvörðun um tilgreiningu ómissandi innviða.
Ráðherrar skulu upplýsa ríkislögreglustjóra um ákvarðanir um tilgreiningu ómissandi innviða á sínu málefnasviði. Ríkislögreglustjóri skal hafa heildstætt yfirlit yfir ómissandi innviði á hverjum tíma.
20. gr.
Fyrirbyggjandi aðgerðir og skyldur ábyrgðaraðila ómissandi innviða.
Ábyrgðaraðilar ómissandi innviða skulu greina og meta áhættu og áfallaþol þess kerfis, eignar, aðstöðu, búnaðar eða mannvirkis sem þeir bera ábyrgð á og telst til ómissandi innviða. Slík greining skal fara fram á a.m.k. fjögurra ára fresti.
Á grundvelli greiningar og mats á áhættu og áfallaþoli skulu ábyrgðaraðilar ómissandi innviða gera aðgerðaáætlanir. Þá skulu sömu aðilar gera viðbragðsáætlanir vegna þeirra ómissandi innviða sem þeir bera ábyrgð á. Þessir aðilar geta óskað eftir aðstoð ríkislögreglustjóra við gerð viðbragðs- og aðgerðaáætlana, sbr. 3. mgr. 15. gr.
Ábyrgðaraðili ómissandi innviða ber ábyrgð á að æfingar séu haldnar samkvæmt viðbragðsáætlunum sem heyra undir þá á grundvelli skipulags ríkislögreglustjóra, sbr. 15. gr.
21. gr.
Hlutverk ráðherra varðandi öryggis- og neyðarbirgðir.
22. gr.
Eftirlit með fyrirbyggjandi aðgerðum.
Viðeigandi aðilar skulu afhenda ríkislögreglustjóra greiningar og mat á áhættu og áfallaþoli, viðbragðs- og aðgerðaáætlanir. Í samráði við hlutaðeigandi aðila skal birta viðbragðsáætlanir opinberlega nema sérstök rök standi til annars. Þá er þeim aðilum sem tilgreindir eru í 1. mgr. skylt að veita ríkislögreglustjóra upplýsingar um stöðu fyrirbyggjandi aðgerða, sé þess óskað.
Ríkislögreglustjóri getur, ef tilefni þykir til, beint því til viðkomandi aðila að gera úrbætur er varðar fyrirbyggjandi aðgerðir.
Ríkislögreglustjóri skal upplýsa ráðherranefnd um almannaöryggi og varnarmál um mat á stöðu fyrirbyggjandi aðgerða og ómissandi innviða.
23. gr.
Upplýsingaskylda opinberra aðila og einkaaðila.
IV. KAFLI
Almannavarnastig, samhæfing og stjórn aðgerða.
24. gr.
Hættustund og sviðsábyrgð.
Ríkislögreglustjóri ber ábyrgð á samhæfingu aðgerða á hættustundu í samhæfingarstöð í samræmi við lög þessi.
Lögreglustjórar bera ábyrgð á samhæfingu og stjórn almannavarnaaðgerða á hættustundu í héraði í samræmi við lög þessi.
Landhelgisgæsla Íslands ber ábyrgð á samhæfingu og stjórn almannavarnaaðgerða á hættustundu á sjó og í samræmi við lög þessi og í samráði við lögreglustjóra í hlutaðeigandi umdæmi ef við á.
25. gr.
Almannavarnastig.
1. Óvissustig er:
a. þegar grunur vaknar um yfirvofandi atburði af náttúru- eða mannavöldum eða vegna bresta í innviðum sem á síðari stigum gætu ógnað heilsu og öryggi fólks, umhverfi eða byggð og krafist samhæfingar viðbragðsaðila,
b. þegar afla þarf upplýsinga um atburð sem óvissa ríkir um.
2. Hættustig er þegar upplýsingar hafa borist sem gefa til kynna að þörf sé á að samhæfa aðgerðir og verklag viðbragðsaðila til að koma í veg fyrir og takmarka, eftir því sem unnt er, að almenningur eða umhverfi og eignir verði fyrir tjóni af náttúru- eða mannavöldum eða vegna bresta í innviðum.
3. Neyðarstig er þegar fyrir liggur að atburður krefst aðkomu fjölda viðbragðsaðila og aukin þörf er á samhæfingu og stjórnskipulagi almannavarna.
4. Þjóðarvá er þegar umfang neyðarástands er þannig að viðbragðsaðilar sjá sér ekki fært að bregðast við í samræmi við skyldur sínar og lög þessi og þegar annað eftirfarandi skilyrða er uppfyllt:
a. neyðarástand hefur áhrif á mörg umdæmi eða allt landið á sama tíma,
b. fyrirséð er að neyðarástand hefur umfangsmikil neikvæð samfélagsleg og efnahagsleg áhrif sem taka til alls samfélagsins.
Ríkislögreglustjóri tekur ákvörðun um óvissu-, hættu- og neyðarstig hverju sinni í samráði við hlutaðeigandi lögreglustjóra eða Landhelgisgæslu Íslands, ef unnt er, og tilkynnir ráðherra. Ríkislögreglustjóri skal jafnframt sjá til þess að ákvörðun um almannavarnastig verði birt opinberlega. Óvissu-, hættu- og neyðarstig geta tekið til landsins alls eða verið svæðisbundin.
Forsætisráðherra lýsir yfir þjóðarvá hverju sinni í samráði við ráðherra almannavarna og tilkynnir jafnframt ríkisstjórn. Eftir að þjóðarvá hefur verið lýst yfir skal kalla saman ríkisstjórn svo fljótt sem verða má.
26. gr.
Samhæfing og stjórn almannavarnaaðgerða.
Samhæfing og stjórn almannavarnaaðgerða í héraði er í höndum lögreglustjóra í viðkomandi lögregluumdæmi í samræmi við lögbundið hlutverk.
Samhæfing og stjórn almannavarnaaðgerða á sjó og í lofti er á verksviði Landhelgisgæslu Íslands í samræmi við lögbundið hlutverk.
27. gr.
Samhæfingarstöð og hlutverk hennar.
Ríkislögreglustjóri skal virkja samhæfingarstöð þegar nauðsyn krefur að mati embættisins eða þeirra sem koma að stjórn leitar, björgunar eða viðbragða við almannavarnaástandi.
Ríkislögreglustjóri stýrir samhæfingarstöðinni og samhæfingu aðgerða, eftir atvikum, ásamt öðrum aðilum á grundvelli viðbragðsáætlunar.
Í samhæfingarstöðinni starfa fulltrúar þeirra viðbragðsaðila sem eru tilgreindir í viðeigandi viðbragðsáætlunum og ber þeim að fara að fyrirmælum þess aðila sem stýrir samhæfingu aðgerða.
Ríkislögreglustjóra er heimilt að óska eftir aðkomu annarra aðila en tilgreindir eru í viðbragðsáætlun til þess að starfa í samhæfingarstöðinni hverju sinni.
Ef upp kemur ágreiningur um hver skuli gefa fyrirmæli eða hvaða fyrirmæli skuli gefin sker ríkislögreglustjóri úr ágreiningnum. Ákvörðun ríkislögreglustjóra samkvæmt þessu ákvæði verður ekki skotið til ráðherra
Kostnaður af starfsemi samhæfingarstöðvar greiðist úr ríkissjóði.
28. gr.
Tímabundin stofnun og rekstur þjónustumiðstöðvar.
Ráðuneyti og sveitarfélög, þ.m.t. undirstofnanir þeirra, skulu veita liðsinni sitt til að þjónustumiðstöðin geti þjónað tímabundnu hlutverki sínu í samræmi við 1. mgr.
Haft skal samráð við hlutaðeigandi sveitarstjórnir og eftir atvikum neyðarstjórn sveitarfélags um starfsemi þjónustumiðstöðvar samkvæmt þessari grein.
Stofnun þjónustumiðstöðvar hefur ekki áhrif á ábyrgð sveitarfélaga á þeim lögbundnu verkefnum sem þeim er falið að sinna.
29. gr.
Aðgerðastjórn í héraði og samhæfing almannavarnaaðgerða.
Í aðgerðastjórn eiga sæti fulltrúi lögreglustjóra, björgunarsveita, slökkviliðs, heilbrigðisþjónustu, Rauða krossins á Íslandi og aðrir viðbragðsaðilar í samræmi við viðbragðsáætlanir. Lögreglustjóra er heimilt að kalla inn í aðgerðastjórn aðra aðila sem tengjast aðgerð hverju sinni.
Aðgerðastjórn annast stjórn og samhæfingu almannavarnaaðgerða í héraði í samvinnu við samhæfingarstöð.
Viðbragðsaðili getur óskað eftir því að samhæfingarstöð annist stjórn almannavarnaaðgerða vegna tiltekinnar hættu. Áður en ríkislögreglustjóri tekur ákvörðun í málinu skal hann kanna afstöðu viðkomandi lögreglustjóra til beiðninnar.
30. gr.
Vettvangsstjórn í héraði.
Vettvangsstjóri fer með stjórn og samhæfingu á vettvangi á grundvelli fyrirmæla lögreglustjóra eða aðgerðastjórnar.
31. gr.
Aðgerðastjórn á sjó og í lofti og samhæfing almannavarnaaðgerða.
32. gr.
Neyðarstjórn sveitarfélaga og hlutverk hennar.
Hlutverk neyðarstjórnar er að samhæfa aðgerðir og grípa til viðeigandi ráðstafana vegna neyðarástands til að tryggja grunnþjónustu sveitarfélaga og órofna starfsemi. Neyðarstjórn skal hafa samvinnu við almannavarnanefnd viðkomandi sveitarfélags.
Neyðarstjórn ber að veita aðgerðastjórn upplýsingar um starfsemi sína og skal fara að fyrirmælum aðgerðastjórnar vegna almannavarnaaðgerða til þess að fyrirbyggja eða bregðast við vá.
33. gr.
Samhæfing og stjórn almannavarnaaðgerða vegna náttúruvár.
Ríkislögreglustjóri stýrir samhæfingu aðgerða í samhæfingarstöð vegna náttúruvár í samráði við Veðurstofu Íslands og viðkomandi lögreglustjóra.
Þegar samhæfingarstöð er virkjuð vegna náttúruvár starfa þar fulltrúar þeirra viðbragðsaðila sem eru tilgreindir í viðeigandi viðbragðsáætlunum og ber þeim skylda til að fara eftir fyrirmælum þess aðila sem stýrir samhæfingu aðgerða, sbr. 27. gr.
Um stjórn aðgerða í héraði vegna náttúruvár fer skv. 29. gr.
34. gr.
Samhæfing og stjórn borgaralegra aðgerða vegna hernaðarógna.
Ríkislögreglustjóri stýrir samhæfingu borgaralegra aðgerða í samhæfingarstöð vegna hernaðarógna í samráði við hlutaðeigandi lögreglustjóra og Landhelgisgæslu Íslands.
Þegar samhæfingarstöð er virkjuð vegna hernaðarógna starfa þar fulltrúar þeirra viðbragðsaðila sem eru tilgreindir í viðeigandi viðbragðsáætlunum og ber þeim skylda til að fara að fyrirmælum þess aðila sem stýrir samhæfingu aðgerða, sbr. 27. gr.
Um stjórn aðgerða í héraði vegna hernaðarógnar fer skv. 29. gr. Ef aðstæður krefjast þess getur ríkislögreglustjóri farið með stjórn borgaralegra aðgerða í héraði vegna hernaðarógna í samráði við viðkomandi lögreglustjóra og gefið lögreglumönnum fyrirmæli þar að lútandi, sbr. 5. gr. lögreglulaga, nr. 90/1996.
Landhelgisgæsla Íslands fer með stjórn borgaralegra aðgerða á sjó og í lofti vegna hernaðarógna, sbr. 31. gr.
35. gr.
Samhæfing og stjórn almannavarnaaðgerða vegna heilbrigðisvár.
Ríkislögreglustjóri stýrir samhæfingu almannavarnaaðgerða í samhæfingarstöð vegna heilbrigðisvár í samráði við sóttvarnalækni og viðkomandi lögreglustjóra.
Þegar samhæfingarstöð er virkjuð vegna heilbrigðisvár starfa þar fulltrúar þeirra viðbragðsaðila sem eru tilgreindir í viðeigandi viðbragðsáætlunum og ber þeim skylda til að fara að fyrirmælum þess aðila sem stýrir samhæfingu aðgerða samkvæmt viðbragðsáætlun.
Um stjórn aðgerða í héraði vegna heilbrigðisvár sem fellur undir sóttvarnalög fer skv. 29. gr.
36. gr.
Samhæfing og stjórn almannavarnaaðgerða vegna netógnar.
Ríkislögreglustjóri fer með samhæfingu almannavarnaaðgerða í samhæfingarstöð vegna netógnar í samráði við netöryggissveitina CERT-IS og viðkomandi lögreglustjóra.
Þegar samhæfingarstöð er virkjuð vegna netógnar starfa þar fulltrúar þeirra viðbragðsaðila sem eru tilgreindir í viðeigandi viðbragðsáætlunum og ber þeim skylda til að fara að fyrirmælum þess aðila sem stýrir samhæfingu aðgerða.
Þegar almannavarnastigi hefur verið lýst yfir vegna netógnar skal virkja stjórnstöð netöryggissveitarinnar CERT-IS sem starfar með samhæfingarstöðinni, ef þörf krefur.
Um stjórn almannavarnaaðgerða í héraði vegna netógnar fer skv. 29. gr.
37. gr.
Aðgengi að neyðar- og öryggisfjarskiptakerfi.
Ráðherra er heimilt að fela aðila í opinberri eigu rekstur neyðar- og öryggisfjarskiptakerfisins.
38. gr.
Aðgengi fjölmiðla og samstarf.
V. KAFLI
Valdheimildir á hættustundu og skyldur almennings.
39. gr.
Valdheimildir lögreglustjóra á hættustundu.
Fyrirmælum þessum er öllum skylt að hlíta.
40. gr.
Leigunám.
Stofnunum ríkis og sveitarfélaga er skylt á hættustundu að ljá í þágu almannavarna fasteignir og lausafjármuni, eftir því sem við verður komið, án sérstaks endurgjalds.
41. gr.
Neyðarheimild ríkislögreglustjóra til aðgerða.
Ríkislögreglustjóri skal upplýsa ráðherra um aðgerðir sem gripið er til á grundvelli þessa ákvæðis eins fljótt og auðið er.
42. gr.
Fyrirmæli ráðherra.
Ráðherra getur falið ríkislögreglustjóra tímabundið að gefa út áhættumat fyrir tiltekið svæði eftir að atburður er hafinn eða um langvarandi atburð er að ræða.
Sérhver ráðherra getur, að fenginni tillögu ríkislögreglustjóra og að höfðu samráði við ráðherranefnd um almannaöryggi og varnarmál, ákveðið:
a. að opinberir aðilar eða einkaaðilar skuli grípa til fyrirbyggjandi aðgerða eða ráðstafana,
b. að gefa fyrirmæli um sölu og dreifingu birgða eða að birgðir verði teknar eignarnámi.
c. að opinberir aðilar eða einkaaðilar skuli veita aðstoð, liðsinna eða útfæra nánar einstaka þætti laga þessara.
Gefi ráðherra fyrirmæli á grundvelli 3. mgr. skal leitast við að semja um skyldur þeirra einkaaðila sem fyrirmælin varða. Þá skal ríkið bæta það tjón sem af hlýst fyrir viðkomandi aðila samkvæmt almennum reglum.
Ráðherra skal aðeins taka ákvörðun eða gefa fyrirmæli samkvæmt þessari grein þegar brýna nauðsyn krefur og þegar ekki eru talin önnur vægari úrræði fyrir hendi.
43. gr.
Skyldur eiganda og umráðamanns húsnæðis.
Sveitarfélag sem flutt er frá greiðir kostnað vegna húsnæðis og fæðis sem látið er í té samkvæmt þessari grein en á kröfu um endurheimt á hendur þeim sem fyrirgreiðslunnar hafa notið.
44. gr.
Skylda til aðstoðar við almannavarnir.
Ríkislögreglustjóri hefur ákvörðunarvald um flutning þeirra manna sem kvaddir hafa verið til tafarlausrar aðstoðar í þágu almannavarna. Ef fjöldi manns er fluttur á milli umdæma skal haft samráð við hlutaðeigandi lögreglustjóra eða almannavarnanefnd.
45. gr.
Almenn borgaraleg skylda við almannavarnir.
Þeim sem kvaddir hafa verið til starfa skv. 1. mgr. ber að sæta læknisskoðun ef nauðsynlegt þykir.
Enginn má á neinn hátt tálma því að maður gegni starfi sem hann hefur verið kvaddur til í þágu almannavarna.
Sé heilsufari manns eða annars einstaklings sem hann ber ábyrgð á svo háttað að öryggi og/eða heilsu viðkomandi eða aðila sem hann ber ábyrgð á, sé stefnt í sérstaka hættu með því að fela honum að gegna slíkum störfum skal hann undanþeginn skyldu skv. 1. mgr.
Ríkislögreglustjóri boðar þá sem kvaddir hafa verið til starfa í þágu almannavarna til námskeiða og æfinga. Öllum viðkomandi ber að fara að þeim fyrirmælum og öðrum starfsreglum. Óheimilt er að hverfa úr starfi án leyfis.
Á hættustundu má sá sem kvaddur hefur verið til starfa ekki fara úr umdæmi lögreglustjóra án samþykkis lögreglustjóra eða þess er hann tilnefnir.
Ef sá sem kvaddur hefur verið til starfa í þágu almannavarna verður fyrir meiðslum eða tjóni á námskeiði eða æfingu á hann rétt á bótum.
46. gr.
Beiðni um alþjóðlega borgaralega aðstoð.
Sé ekki unnt að fá samþykki ráðherra skv. 1. mgr. skal ákvörðunin borin undir ráðherra eins fljótt og auðið er.
Ráðherra skal upplýsa aðra ráðherra eða ráðherranefnd um almannaöryggi og varnarmál eftir því sem við á. Ráðherra metur hvort og hvernig á að upplýsa ríkisstjórn og Alþingi.
Heimild á grundvelli ákvæðis þessa útilokar ekki að ríkislögreglustjóri kalli eftir erlendri aðstoð samkvæmt ákvæðum lögreglulaga.
47. gr.
Boð um alþjóðlega borgaralega aðstoð.
Ríkislögreglustjóra er heimilt að samþykkja boð um alþjóðlega aðstoð í heild eða að hluta. Ríkislögreglustjóri getur ákveðið að hafna boði um alþjóðlega aðstoð að undangengnu mati.
VI. KAFLI
Endurreisn.
48. gr.
Endurreisn og sviðsábyrgð.
49. gr.
Samband íslenskra sveitarfélaga, sveitarfélög og endurreisn.
Samband íslenskra sveitarfélaga skal útbúa leiðbeiningar um gerð viðbragðsáætlunar fyrir sveitarfélög um uppbyggingu í kjölfar atburðar eða ástands og hvernig staðið verði að endurreisn.
Sveitarfélög skulu gera áætlanir um uppbyggingu í kjölfar atburðar eða ástands og um endurreisn og skipuleggja aðgerðir samkvæmt þeim.
50. gr.
Tímabundin þjónustumiðstöð og endurreisn.
Ákvörðun um að þjónustumiðstöð hætti starfsemi eða að verkefni verði færð annað skal tilkynnt með hæfilegum fyrirvara og skal ríkislögreglustjóri skila áætlun um yfirfærslu starfseminnar til viðkomandi sveitarfélags.
51. gr.
Samhæfing aðgerða sveitarfélaga við endurreisn.
Sveitarstjórnir bera eftir sem áður ábyrgð á lögbundnum og ólögbundnum verkefnum á grundvelli sveitarstjórnarlaga.
VII. KAFLI
Rýni aðgerða eða aðgerðaleysis viðbragðsaðila.
52. gr.
Rýnifundir ríkislögreglustjóra.
Ákveði ríkislögreglustjóri að halda ekki rýnifund geta þeir viðbragðsaðilar sem virkjaðir voru vegna aðgerða eða fyrirhugaðra aðgerða óskað eftir því að rýnifundur verði haldinn og ber ríkislögreglustjóra þá að verða við því.
Veita skal viðkomandi viðbragðsaðilum tækifæri á að koma sjónarmiðum á framfæri um gæði viðbragða. Ríkislögreglustjóri skal rita og varðveita fundargerð um efni og niðurstöður rýnifundar. Hann skal jafnframt afhenda viðkomandi viðbragðsaðilum, samráðshópi ríkislögreglustjóra og ráðherra fundargerð og niðurstöður.
Ríkislögreglustjóri hefur eftirlit með því að viðbragðsaðilar grípi til viðunandi úrbóta í samræmi við niðurstöður rýnifundar.
VIII. KAFLI
Rannsóknarnefnd almannavarna.
53. gr.
Rannsóknarnefnd almannavarna.
Ráðherra er heimilt að setja á fót rannsóknarnefnd almannavarna þegar almannavarnastigi hefur verið aflétt og rýnifundi skv. 52. gr. er lokið ef hann telur þörf á aðkomu utanaðkomandi aðila til að rýna og meta aðgerðir eða aðgerðaleysi viðbragðsaðila. Ráðherra er heimilt að setja á fót rannsóknarnefnd almannavarna ef ástæða þykir til, þótt almannavarnarstigi hafi ekki verið aflétt.
Samráðshópur ríkislögreglustjóra getur ákveðið að óska eftir því að ráðherra setji á fót rannsóknarnefnd almannavarna ef samráðshópurinn telur þörf á.
Ráðherra skal setja á fót rannsóknarnefnd almannavarna ef einstaklingur lætur lífið eða verður fyrir stórfelldu líkamstjóni í tengslum við aðgerðir eða aðgerðaleysi viðbragðsaðila, óháð því hvort grunur er um refsivert brot. Starf nefndarinnar skal eingöngu miða að því að leiða í ljós orsakir atburðarins en ekki að skipta sök eða ábyrgð, með það að markmiði að draga lærdóm af og stuðla að umbótum.
Nefndin fjallar ekki um refsiverða háttsemi einstaklinga eða refsiábyrgð. Vakni grunur um að refsiverð háttsemi hafi átt sér stað tilkynnir hún það lögreglu eða ákæruvaldi. Nefndin skal leitast við að haga störfum sínum þannig að hún raski ekki mögulegri rannsókn sakamáls og getur hún frestað umfjöllun um tiltekin atvik á meðan þau eru til meðferðar hjá lögreglu eða ákæruvaldi.
Rannsóknarnefnd skal skila ráðherra skriflegri skýrslu um störf sín í samræmi við erindisbréf og skal hún birt opinberlega.
54. gr.
Skipun rannsóknarnefndar og starfsskilyrði.
Um sérstakt hæfi nefndarmanna fer eftir ákvæðum stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
Á nefndarmönnum hvílir þagnarskylda skv. X. kafla stjórnsýslulaga, nr. 37/1993. Þagnarskylda helst þegar störfum nefndarinnar er lokið.
Nefndinni er heimilt að kalla eftir aðstoð sérfræðinga eða annarri aðstoð við störf nefndarinnar. Um hæfi og þagnarskyldu þeirra sem aðstoða nefndina fer eftir 2. og 3. mgr.
Kröfum í einkamáli og málum skv. 2. og 3. tölul. 242. gr. almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, vegna atriða sem koma fram í skýrslu nefndarinnar eða öðrum skýrslum í tengslum við rannsóknina verður ekki beint gegn nefndarmönnum sem unnið hafa að rannsókninni. Sama gildir ef mál er höfðað út af málsmeðferð vegna skýrslunnar. Ríkið ber ábyrgð á athöfnum nefndarmanna eftir almennum reglum og ber ábyrgð á kostnaði, hvort sem mál er höfðað fyrir innlendum eða erlendum dómstóli.
Upplýsingalög gilda ekki um störf nefndarinnar eða um þau gögn sem nefndin aflar sér eða sem hún útbýr eða lætur útbúa.
55. gr.
Aðgangur að gögnum.
56. gr.
Heimildir rannsóknarnefndar.
Viðbragðsaðilum, starfsmönnum sveitarfélaga og öðrum opinberum starfsmönnum, sem ella væru bundnir þagnarskyldu, er skylt að veita nefndinni upplýsingar og skýringar sem lúta að þeim atburði sem rannsókn beinist að sé þess óskað, eftir atvikum með því að gefa nefndinni skýrslu. Hið sama gildir um þá sem hafa látið af störfum. Öðrum sem nefndin telur að kunni að búa yfir vitneskju sem nýtist í störfum hennar, og ella væru bundnir þagnarskyldu starfa sinna vegna, er jafnframt skylt að veita nefndinni upplýsingar.
Þeim sem gefur skýrslu fyrir nefndinni er heimilt að skorast undan því að svara spurningu ef ætla má að í svari hans geti falist játning eða bending um að hann hafi framið refsiverðan verknað eða að það geti orðið honum til mannorðsspjalla.
Sá sem vísvitandi gefur nefndinni rangar eða villandi upplýsingar skal sæta sektum eða fangelsi allt að fjórum mánuðum. Um slík mál fer samkvæmt lögum um meðferð sakamála.
Ekki er heimilt að nota upplýsingar sem einstaklingur hefur veitt nefndinni sem sönnunargagn í sakamáli sem höfðað er gegn honum.
IX. KAFLI
Kostnaðarskipting milli ríkis og sveitarfélaga vegna almannavarna.
57. gr.
Skipting kostnaðar vegna almannavarna.
Ef sveitarfélög hafa samstarf um skyldur sínar samkvæmt þessum lögum skal skipta kostnaði á milli þeirra samkvæmt íbúatölu.
X. KAFLI
Refsiábyrgð.
58. gr.
Refsiákvæði.
XI. KAFLI
Reglugerðir, gildistaka o.fl.
59. gr.
Reglugerðarheimildir.
1. Starfshætti og skipulag samráðshóps ríkislögreglustjóra.
2. Tilhögun neyðar- og öryggisfjarskiptakerfis.
3. Efni og gerð viðbragðsáætlana og aðgerðaáætlana.
4. Ómissandi innviði.
5. Flokkun almannavarnastiga, inntak þeirra og viðbrögð.
6. Skipulag og starfsemi samhæfingarstöðvar og þjónustumiðstöðvar.
7. Móttöku erlends hjálparliðs.
8. Skyldu til að aðstoða við almannavarnir og almenna borgaralega skyldu við almannavarnir.
9. Rannsóknarnefnd almannavarna.
60. gr.
Gildistaka.
Við gildistöku laga þessara falla úr gildi lög um almannavarnir, nr. 82/2008.
Reglugerðir og önnur stjórnvaldsfyrirmæli sem sett eru samkvæmt lögum, nr. 82/2008, skulu halda gildi sínu að svo miklu leyti sem þau fara ekki í bága við lög þessi. Þá skulu samningar sem gerðir voru í tíð þeirra laga halda gildi sínu uns þeir verða endurskoðaðir af hálfu samningsaðila.
61. gr.
Breyting á öðum lögum.
1. Lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011: Eftirfarandi breytingar verða á 4. mgr. 9. gr. laganna:
a. Á eftir orðinu „ríkisfjármál“ í 1. málsl. kemur: ráðherranefnd um almannaöryggi og varnarmál.
b. Á eftir 2. málsl. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Forsætisráðherra, sá ráðherra sem fer með málefni almannavarna og sá ráðherra sem fer með varnarmál skulu eiga fast sæti í ráðherranefnd um almannaöryggi og varnarmál. Þá skulu ráðherrar, sem fara ekki með málefni skv. 5. málsl. en eru formenn stjórnmálaflokka sem eiga aðild að ríkisstjórn, eiga fast sæti í ráðherranefndinni.
2. Varnarmálalög, nr. 34/2008: Á eftir 4. gr. laganna kemur ný grein, 4. gr. a, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Ráðherranefnd um almannaöryggi og varnarmál.
1. Að fjalla um stefnu stjórnvalda í öryggis- og varnarmálum.
2. Að fjalla um málefni sem varða öryggi og/eða varnir ríkisins, þ.m.t. hættumat á sviði varnarmála.
3. Að vera upplýsinga- og samstarfsvettvangur ráðherra vegna mála á sviði öryggis- og varnarmála.
Ráðherranefnd um almannaöryggi og varnarmál skal hittast tvisvar á ári til að ræða málefni öryggis og varnarmála eða oftar ef aðstæður krefjast þess.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.