Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Ingibjörg Isaksen
1. þm. NA, F, IÓI
Ingibjörg Isaksen

   
Ingi Björn Albertsson

Ingi Björn Albertsson

Fæddur í Nice í Frakklandi 3. nóvember 1952. Foreldrar: Albert Guðmundsson (fæddur 5. október 1923, dáinn 7. apríl 1994) alþingismaður og ráðherra og kona hans Brynhildur Hjördís Jóhannsdóttir (fædd 22. ágúst 1926, dáin 22. júlí 2006) húsmóðir. Maki (23. apríl 1977): Magdalena Kristinsdóttir (fædd 27. júní 1953) húsmóðir og fóstra. Foreldrar: Kristinn Finnsson og kona hans Sigurbjörg Sigurðardóttir. Börn: Kristbjörg Helga (1975), Ólafur Helgi (1976), Ingi Björn (1978), Kristinn (1981), Albert Brynjar (1986), Thelma Dögg (1987).

Verslunarpróf VÍ 1971.

Framkvæmdastjóri Heildverslunar Alberts Guðmundssonar síðan 1973, eigandi frá 1988. Þjálfari 1. deildar liðs Knattspyrnufélagsins Vals 1989—1992. Þjálfari 1. deildar liðs Knattspyrnufélagsins Breiðabliks 1992—1994. Þjálfari 1. deildar liðs Knattspyrnufélags Keflavíkur 1994—1995, Fimleikafélags Hafnarfjarðar 1995.

Hefur setið í ýmsum stjórnum og nefndum á vegum Knattspyrnufélagsins Vals. Í Vestnorræna þingmannaráðinu 1989—1990. Í stjórn Sementsverksmiðjunnar síðan 1989. Fulltrúi í Þingmannasamtökum Norður-Atlantshafsríkjanna 1988—1995. Í stjórn Tollvörugeymslunnar hf. frá 1983. Í stjórn Húsbyggingarsjóðs Þroskahjálpar frá 1990. Formaður íþróttanefndar ríkisins frá 1991.

Alþingismaður Vesturlands 1987—1991 (Borgaraflokkur, Frjálslyndi hægri flokkurinn, Sjálfstæðisflokkur), alþingismaður Reykvíkinga 1991—1995 (Sjálfstæðisflokkur).

Formaður þingflokks Frjálslynda hægri flokksins 1989—1990.



Síðast breytt 20.11.2019.





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.