Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Jóhann Páll Jóhannsson
1. þm. RS, Sf, JPJ
Jóhann Páll Jóhannsson

   
Jóhann Ársælsson

Jóhann Ársælsson

Fæddur í Ólafsvík 7. desember 1943. Foreldrar: Ársæll Jónsson (fæddur 25. september 1918, dáinn 12. ágúst 1996) frá Arnarstapa, vitavörður og bóndi, síðan hafnarstjóri í Rifi og kona hans Anna Sigrún Jóhannsdóttir (fædd 3. júní 1919, dáin 26. maí 2000) húsmóðir. Maki (27. maí 1966): Guðbjörg Róbertsdóttir (fædd 10. júlí 1944) skólaritari. Foreldrar: Róbert E. Duplease og Þorgerður Jóna Oddsdóttir. Börn: Ársæll (1966), Ægir (1968), Kári (1970), Gerður Jóhanna (1976).

Nám í skipasmíði 1961-1965, skipasmíðameistari 1965.

Framkvæmdastjóri Bátastöðvarinnar Knarrar á Akranesi 1974-1991 og 1995-1999.

Bæjarfulltrúi á Akranesi 1974-1982 og 1986-1990. Í stjórn Sementsverksmiðju ríkisins 1977-1981. Í stjórn HAB 1979-1987. Í miðstjórn Alþýðubandalagsins síðan 1987. Í stjórn Síldarverksmiðja ríkisins 1992-1993. Í bankaráði Landsbankans 1995-1998.

Alþingismaður Vesturlands 1991-1995 (Alþýðubandalag) og 1999-2003 (Samfylkingin), alþingismaður Norðvesturkjördæmis 2003-2007.

Varaþingmaður Vesturlands október 1984 (Alþýðubandalag).

Sjávarútvegsnefnd 1991-1995 og 1999-2007, samgöngunefnd 1991-1995 og 2003-2004, umhverfisnefnd 2000-2003, sérnefnd um stjórnarskrármál 1999 og 2000-2002, kjörbréfanefnd 2003-2007, iðnaðarnefnd 2004-2007, landbúnaðarnefnd 2006-2007.



Síðast breytt 15.11.2019. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.