Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður
Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending


Næst í nærmynd
Ása Berglind Hjálmarsdóttir
9. þm. SU, Sf, ÁBH
Ása Berglind Hjálmarsdóttir

   
Árni Johnsen

Árni Johnsen

Fæddur í Vestmannaeyjum 1. mars 1944, dáinn 6. júní 2023. Foreldrar: Poul C. Kanélas, Detroit, Bandaríkjunum, og Ingibjörg Á. Johnsen (fædd 1. júlí 1922, dáin 21. júlí 2006) kaupkona. Hún átti síðar Bjarnhéðin Elíasson skipstjóra og útgerðarmann í Vestmannaeyjum. Maki 1 (26. febrúar 1966): Margrét Oddsdóttir (fædd 28. september 1945) kennari. Þau skildu. Foreldrar: Oddur Sigurbergsson og Helga Einarsdóttir. Maki 2 (13. desember 1970): Halldóra Filippusdóttir (fædd 17. febrúar 1941) flugfreyja. Foreldrar: Filippus Tómasson og Lilja Jónsdóttir. Dætur Árna og Margrétar: Helga Brá (1966), Þórunn Dögg (1968). Sonur Árna og Halldóru: Breki (1977).

Kennarapróf KÍ 1966.

Kennari í Vestmannaeyjum 1964-1965 og í Reykjavík 1966-1967. Starfsmaður Surtseyjarfélagsins með aðsetur í Surtsey sumar og haust 1966 og 1967. Blaðamaður við Morgunblaðið 1967-1991. Dagskrárgerðarmaður við Ríkisútvarpið og við Sjónvarpið frá stofnun þess.

Hefur unnið að margs konar félagsmálum í Vestmannaeyjum og víðar. Var formaður tóbaksvarnanefndar 1984-1988. Í stjórn Grænlandssjóðs 1987-2001, í flugráði 1987-2001, í Vestnorræna þingmannaráðinu 1991-2001, formaður þess um tíma. Í stjórn Norrænu stofnunarinnar á Grænlandi, NAPA, um árabil. Formaður byggingarnefndar Þjóðleikhússins 1988-2001 og formaður stjórnar Sjóminjasafns Íslands 1989-1992.

Alþingismaður Suðurlands 1983-1987, 1991-2001 og Suðurkjördæmis 2007-2013 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Suðurlands febrúar-mars 1988, nóvember 1989, mars-apríl 1990, janúar-febrúar 1991 (Sjálfstæðisflokkur).

Fjárlaganefnd 1991-2001, samgöngunefnd 1991-2001 og 2007-2011 (formaður 1999-2001), menntamálanefnd 1991-2001, félagsmálanefnd 2007, félags- og tryggingamálanefnd 2007-2009, umhverfis- og samgöngunefnd 2011-2013.

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins 1994-2001 og 2007-2013 (formaður 1996-2001).


Hefur skráð viðtalsbækur og bækur um gamanmál alþingismanna, skrifað hundruð greina í Morgunblaðið og önnur blöð, einnig samið svítu, sönglög og sungið og spilað eigin lög og annarra á hljómplötur.


Síðast breytt 08.06.2023. Upplýsingar um nefndarstörf ná aftur til ársins 1991 (115. löggjafarþing). Sjá annars nefndasetur





Þingmenn í stafrófsröð

Skammstafanir í æviágripum



Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um
vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.